laugardagur, nóvember 25, 2006

haldiði að ellismellirnir í hljómsveitinni rock star supernova séu ekki bara búnir að gefa út sína fyrstu plötu sem ásamt lucas sem sigraði samnefnda keppni. ég get ekki gert sjálfum mér að hlusta á þetta en ég er engu að síður nokkuð viss um að þetta eigi eftir að vera vinsælt meðal einhverra ameríku redneck rokkara. þegar keppnin var í gangi voru rockstar menn með yfirlýsingar um að þeir væru að framkalla eitthvað nýtt og ferskt en ég held að það sanni sig á þessari plötu að þetta eru útbrunnir endar sem ætti bara að segja þetta gott og lifa á þeim miljónum dollara sem þeir eiga eftir.

eini maðurinn sem ég ber vott af virðingu fyrir í þessari hljómsveit er jason newstead því hann er þó með eitthvað tónlistarvit, enda á hann að hafa "slasað" sig og getur ekki spilað með þeim á tónleikum. fréttir herma að þetta slys hafi aðeins verið til að covera það að jason vildi út eða að þeir gilby og tommy lee hefðu viljað hann út því hann passaði ekki í hljómsveitina. hvort sem það var held að ég að það hafi verið fínt fyrir hann að losna undan þessari rock star pínu

hvaða hljómsveit ætli púlli svona þátt næst.. rock star queen? rock star joy division? rock star nirvana? möguleikarnir eru óendalegir

http://www.myspace.com/supernova


skrifað af criticts 14:37 criticts

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

fannst vanta að koma núna inn með smá íslenskt fautarokk. hljómsveitin reykjavík! gaf út nýlega plötuna glacial landscapes, religion, oppression & alcohol sem er bara fínasti íslenski rokkruddi, hrátt sound og nánast öskrandi söngur gerir þetta af sérlega áhugaverðri plötu.

satt best að segja veit ég ekki mikið um þessa hljómsveit en meðlimir hennar eru sagðir vera miklir drykkjumenn og nefna einmitt áfengi sem einn af áhrifavöldum sínum á myspace síðunni sinni.

gaman að segja frá því að lagið þeirra all those beautiful boys var gaypride lag þessa árs. reyndar í útúr poppaðri disko útgáfu sem gerir lagið gay, en ég held að hafi verið tilgangurinn.

http://www.myspace.com/reykjaviktheband


skrifað af criticts 22:16 criticts

mánudagur, nóvember 20, 2006

fitubollurokkararnir í deftones voru nýlega að gefa út sína fimmtu breiðskífu sem heitir saturday night wrist. ég hef nú aldrei verið mikill deftones aðdáandi og sem dæmi um það sleppti ég að fara á þá á hróaskeldu. af forvitni gerðist ég svo grófur að útvega mér plötuna og hlusta á hana. í ljós kemur að þessi plata er ekki jafn ruddalegur groddi og margt annað sem maður hefur heyrt með deftones.

mér þykir diskurinn vera meira í anda hins ofnotaða en alltaf jafn ofur svala bíómynda/þátta lagsins "change (in the house of flies)" sem þeir gerðu frægt á sínum tíma. hrottafengin öskur spila ekki jafn stóra rullu en deftones hljómurinn er alltaf til staðar. lögin mein (feat. serj tankian söngvara system of a down), hole in the earth og kimdracula eru afar áhlustanleg lög.

deftones - mein (feat. serj tankian)

http://myspace.com/deftones


skrifað af criticts 20:31 criticts

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

stockholm búarnir peter, bjorn og john skipa samnefnda hljómsveit (peter bjorn & john) og gáfu nýverið út plötuna writers block. þeir segjast vera undir áhrifum '60s baroque popps, orku popps og nýbylgju tónlistar en margir kannast kannski við blísturs gleðipoppslagið young folks sem hljómað hefur í útvarpinu undanfarna daga.

diskurinn er flottur, söngurinn sérstakur og það er eitt af því sem gerir þetta svona fjári skemmtilegt allt saman.

peter bjorn & john - the chills




skrifað af criticts 14:07 criticts

mánudagur, nóvember 13, 2006

dúndrandi blikkljós, öskrandi há drum & bass/ jungle/ trance tónlist, allra lita glow stick og mis skær föt voru það sem einkenndu fjölmennasta þemaparty strandgötunnar til þessa. skemmtilegur viðburður þar sem villt e-pillu dansspor voru stigin í takt við þess lega tónlist, mitt framlag til þessarar tónlistar var mix diskur með lögum eftir pendulum og prodigy.

þannig að ef einhver er að fara að halda rave party á næstunni að þá mæli ég sérstaklega með þessum hljómsveitum, svín virkar.

http://www.myspace.com/holdyourcolour

http://www.myspace.com/theprodigy


skrifað af criticts 19:26 criticts

dönsk tónlist getur víst verið góð og það hefur sannað sig núna árið 2006 en ég held að ég hafi aldrei heillast jafn mikið af hljómsveitum frá danaveldinu en einmitt á þessu ári. ein af þessum hljómsveitum er who made who sem skipuð er af þessum þremur stæðilegu karlmönnum í beinagrindabúningunum.

þeir spiluðu á hróaskeldu en af allri flórunni sem finna mátti þar þá sleppti ég því að sjá þá. þeir spiluðu líka á nýafstaðinni airwaves og er ekki spurning um að ég hefði kíkt á þá hefði ég verið fyrir sunnan.

whomadewho - space for rent


skrifað af criticts 16:47 criticts

sunnudagur, nóvember 05, 2006

nýjasta nýtt í íslenskri tónlist er lay low, hún spilar bland af blús og kántrí-tónlist. það eru engin takmörk fyrir því hvað fjölmiðlar og tónlistarspekúlantar dýrka þessa ungu tónlistarkonu og hef ég ekki heyrt eina slæma umfjöllun um hana. þrátt fyrir stuttan tíma í tónlistarbransanum þá hefur hún afrekað ýmislegt t.d. er eitt lag hennar í mýrinni sem nú er verið að sýna í bíóhúsum.

allir spá því að hún sigri nýliðann á íslensku tónlistarverðlaununum og getur vel verið að það verði en ég er ekki sérlega heitur fyrir þessu, hver veit nema fólk sem les það sem er skrifað hérna líki við þetta.


http://www.myspace.com/baralovisa


skrifað af criticts 14:24 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3