sunnudagur, janúar 29, 2006
músík

fyrir þá sem ekki vissu að í gærkvöldi þá var oddvitinn the place to be. fólk gat sagt sér það sjálft að þegar hermigervill og trabant koma saman á einum stað með músíkgræjur sínar að þá verður tjúttað.

svo ég vindi mér beint í flytjendurna tvo, sleppi dj málum sem voru fyrir og eftir tónleika, þá var það hermigervill sem byrjaði. hann spilaði semfellda músík án þess að stoppa milli laga og kom þessi suðupottur mjög vel út, nýjar útgáfur laganna litu dagsins ljós í sambland við nýtt efni og spuna. maðurinn gerði sér svo lítið fyrir og reif sig úr þeim fötum sem hann hafði staðið í og kom þá í ljós glans rauður palliettu galli sem glansaði og glampaði á meðan hann spilaði tónlist sína, frumleg og flott framkoma. hann var í góðum gír og fyrir mér var hermigervill hápunktur kvöldsins.

á eftir hermigervil mættu trabant, sumir i leðurbuxum, aðrir í stuttbuxum og seint meir var fátt um föt en allan tíman voru þeir út úr smekkaðir af glimmeri sem smitaðist út í áhorfendaskarann. þeir tóku öll sín frægustu lög sem var mjög skemmtilegt og fólk kunni vel að meta glansið og glamorið þar sem dansgólfið var stútað af fólki í viltum transi.

mér til mikillar undrunar lagði einhver hendurnar sínar á axlirnar á mér og hoppaði ótt og títt, í forvitni minni leit ég við og var það þá ekki hermigervill sjálfur sem hamaðist á bakinu á mér og hafði svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta orð þetta kvöldið þar sem hann fór hamförum á dansgólfinu allan tíman meðan trabant spilaði, krýni ég hann svalasta tónlistarmann íslands.

góðir tónleikar og árið 2006 byrjar skemmtilega hvað tónlist og tónleika varðar, gæðastympill criticts á þessa tónleika, ekki spurning.


skrifað af criticts 18:32 criticts

þriðjudagur, janúar 24, 2006
( )



skrifað af criticts 22:50 criticts

föstudagur, janúar 20, 2006
prófmúsík

í próftíð er magic og peruskyr nauðsynleg næring námsmannsins ásamt þessu lagi:

aphex twin - windowlicker

iforward russia! er eitt þeirra banda sem mikið er talað um í bretlandi þessa dagana, leeds band líkt og kaiser chiefs sem spilar þó mún ágengari og kraftmeiri músík. votta má fyrir áhrifum hljómsveita eins og sonic youth og at the drive in ásamt greinilegum hljómsvip breskarar tónlistar í þessu samspili aggresívra músítóna.

núverandi nafn hljómsveitarinnar, sem áður hafði heitið misgóðum nöfnum, er komið vegna þess að þeir vildu hafa meiri reisn og virðingu yfir nafninu en ekki vegna þess að þeir eru bulland kommúnistar né boðberar pólitískra stefna.
núverandi line-up og nafn er frá 2004 og líkt og arctic monkeys er fyrsta plata þeirra væntanleg á þessu ári. tónlistarárið 2006 virðist fara vel af stað

iforward russia! - thirteen
iforward russia! - fourteen



skrifað af criticts 07:59 criticts

fimmtudagur, janúar 19, 2006
nýr orðaforði einhver?

nú hef ég mikið verið að spá hvort ekki sé kominn tími til að hrista upp í tónlistarlegum orðaforða, svo ég taki nú dæmi:

tæknirúnk í stað techno og raftónlistar
sápukúlurokk fyrir fm hljómsveitir sem telja sig vera harðkjarna (sbr. blink182)
rímnarunu tónlist fyrir hip hop og rapp
ófétis tónlist í stað pönks

jafnvel gætu íslenskar hljómsveitir notað orðið nýmóðins í stað alternative þar sem því orði er hópnauðgað í stórum stíl.

möguleikarnir eru endalausir, what you reckon?


skrifað af criticts 17:17 criticts

þriðjudagur, janúar 17, 2006
ninja!

vegna áhugaverðs nafns og undalegrar ástæðu fyrir tilveru sinni ákvað ég að gá hvernig hljómsveitin ninja high school myndi spjara sig í tækinu hjá mér. hljómsveitin varð til vegna þeirrar ástæðu að einn maður var orðinn þreyttur á að hlusta á lagið butterfly með crazytown eða eins og hann sagði:"this sucks! i can do better than this!" upp úr því varð til ninja high school.

ég efast ekki um að hver sem er geti gert skárri tónsmíðar en óbjóðsbandið crazy town en ninja high school fer ekki mikið hærra en það. hljómsveit sem segir sig vera:"a positive hardcore dance-rap band" getur varla náð háum hæðum þó auðvelt sé að fá lög þeirra á heilann,"positive laser set it on!" en dæmi hver fyrir sig. þess má geta að hljómsveitin fékk falleinkunn hjá benna, hip hop/rap sérfræðingin criticts

ninja high school - positive laser

eftir ófagra en þó ekki allskostar ónýta reynslu af ninja high school ákvað ég að gefast ekki upp á ninja hljómsveitunum og næst á dagskrá var sænskættaða hljómsveitin loveninjas sem mætti lýsa sem: the killers meet the strokes meet modest mouse. hugljúfar og mótækilegar melódíur ásamt því að sungið er á ensku (fyrir þá sem fóru flatt á dungen).

verð ég að segja að loveninjas ber sigur úr bítum hvað betri ninja hljómsveitina varðar og þó ég viti lítið um hljómsveitina eins og er að þá er ég viss um að hún á eftir að gera fínustu hluti í íslensku útvarpi í náinni framtíð, mark my words.

loveninjas - meet me here

loveninjas - keep your love


skrifað af criticts 18:08 criticts

laugardagur, janúar 14, 2006
myndband

nú barst mér sú fyrirspurn frá dyggum lesanda hvort ég ætlaði ekki að fara að gagnrýna bíómyndir aftur en ekki aðeins tónlist. eins og ég sé hlutina að þá er mun meiri grósku og fjölbreytni að finna í tónlistinni ásamt því að maður getur algjörlega óvart dottið inn á eitthvað gott tónlistarlega séð. maður hins vegar dettur ekki beint inn á góðar bíómyndir alveg óvart án þess að þurfa að eyða einum og hálfum tíma í það, ef ekki lengur.

engu að síður hef ég ákveðið að hitta þennan dygga lesanda nánast á miðri leið og sýna honum og öðrum sem skoða þessa síðu myndband sem er með því frumlegra, betra og skemmtilegra sem ég hef séð í langan tíma.

hér er um að ræða jason forrest sem er með betri hljóðbútabræðurum í dag og skipar sér þar sess með ekki ómerkilegari mönnum en rjd2 og hermigervil. myndband þetta er við lag hans sem nefnist war photographer og í því má finna sambland af austantjalds teiknimyndastíl, transformers, glamrokki og víglegum/drukknum víkingum. þetta er fátt annað en taumlaus snilld og ættu allir að geta skemmt sér yfir þessu

jason forrest - war photographer (quicktime)


skrifað af criticts 20:00 criticts

hairdoctor

ég veit ekki hvort þið tókuð eftir hljómsveitinni hairdoctor í kastljósinu núna fyrr í kvöld, en þar er á ferð tveir hárgreiðslumenn sem kalla sig hairdoctor, voru að gefa út plötuna shampoo og dreifa sjampói í bréfum þegar þeir spila á tónleikum. settið þeirra var einkar áhugavert í kastljósinu, annar þeirra spilar á gítar með hárkollu hangandi á enda hans og söng í hljóðnema sem fastur var í hárþurku. hinn masteraði tölvumál og synth ásamt því að vera með hárkollu á standi rétt hjá sér. getið séð þetta á http://ruv.is undir sjónvarp, finnið þetta alveg sjálf.

ég er allavegana búinn að vera að leita að þessum disk nokkuð lengi án árangurs þannig að ef þið eigið hann eða þekkið einhvern sem á hann að þá væri ég meira en reiðubúinn í að fá þann disk lánaðann. hárgreiðslumenn sem semja tónlist.. hvernig getur það klikkað?

hairdoctor - major label


ég vil líka benda á, þó seint er, jólalagatal xfm þar sem samið var eitt lag fyrir hvern dag. má þarna finna skemmtilegt safn laga sem gott er að eiga fyrir næstu jól.

http://hairdoctormusic.com/jola.htm

síðast en ekki síst getið þið kíkt á heimasíðu sommerfuglerne sem er ótrúlega óaktív en það á allt eftir að breytast get ég lofað ykkur. just wait for it

http://sommerfuglerne.blogspot.com


skrifað af criticts 01:50 criticts

fimmtudagur, janúar 12, 2006
depeche mode

hver hefur ekki heyrt í eða heyrt um depeche mode, hljómsveit sem hefur verið starfandi frá 1980 og gefið út vænlegt safn af plötum. nú í október árið 2005 gáfu þeir út nýja plötu, playing the angel, sem að ég var satt best að segja skíthræddur við. ég hef ekki almennilega lagt í að hlusta á gripinn þar sem síðasta plata þeirra exciter slökkti mikið í áhuga mínum á hljómsveitinni, þó að á þeim disk hafi leynst góð lög eins og "dream on" og "i feel loved".

en nú gerðist ég svo brattur og renndi nokkrum sinnum í gegnum diskinn. ég get fátt annað sagt að ég hafi verið undrandi á því hve diskurinn var framúrskarandi góður. dm menn fiska hér á nýjum miðum þó að þeirra trademark tónn sé aldrei langt undan. gæti þessi nýbreytni stafað af því að söngvarinn, david gahan, er farinn að blanda sér í tónlistarsmíðar hljómsveitarinnar sem hafa ávalt verið í traustri umsjá martin gore, sem kalla mætti heila hljómsveitarinnar. gahan kemur með nýja strauma í lögin, frábrugðna þunglyndislegum hugsunarhætti gore, og gefur þetta plötunni einstakan blæ.

það hefur verið sagt að hljómsveitin sé loksins komin á þann stað sem þeir voru á fyrir fimmtán árum, á violator-tímabilnu svokallaða, þar sem þeir voru hvað frægastir og sígild lög eins og "enjoy the silence" og "personal jesus" litu dagsins ljós.

"suffer well", instant hittið "precious" og lög gahans, "i want it all” og "nothing's impossible” eru þau lög sem standa upp úr á þessari plötu sem er gengsteypt, rennur vel í gegn og mjög hlustendavæn svo þeir sem eru að komast í snertingu við depeche mode í fyrsta skiptið ættu ekki að týnast í djúpum pælingum gore og gahans.

það mætti segja að þessi plata hafi endurvakið áhuga minn á depeche mode sem leigið hefur í dvala í góðan tíma og af þeirri ástæðu hlýtur playing the angel með depeche mode gæðastympil criticts sem er hæsta viðurkenningarstig sem hægt er að vinna sér inn á þessari síðu.

depeche mode - suffer well


skrifað af criticts 12:51 criticts

þriðjudagur, janúar 10, 2006
jeff who?

hver elskar ekki gamalt, ófrumlegt, alternative, metal pop-pönk? fyrir þá sem urðu æstir að þá ber ég þær leiðinlegu fréttir að hljómsveitin jeff who? er ekki svarið. þessi hljómsveit er ný á nálinni, nokkuð flippuð hljómborðs/hljóðgervil rokkhljómsveit sem spilar hressa en einkar innantóma tónlist.

gítarleikur er sæmilegur, bassaleikur til fyrirmyndar, trommur halda takti en eru ekkert sem fær fólk til að klæja í klofið, hljómborðs/hljóðgervilsleikur er fínn þegar hann er og söngurinn er góður þó textasmíðin sé eins vond og söngurinn er góður. annað lag disksins "the golden age" er einstaklega gott lag en gefur þó varla til kynna hvað á eftir kemur, jú lög númer 3 til 10 eru kannski ekki harla ólík en þau bera engu að síður ekki sama gæðastympil og þetta lag.

það lag sem er hvað ólíkast hinum lögunum er lagið "bob murray" og hafa gagnrýnendur sagt að þeir hafi fengið niðurgang við það eitt að hlusta á þetta lag. ég er þeim algjörlega ósammála, held að þeir hafi einungis borðað skemmda kartöflu eða útrunnið extratyggjó, því mér finnst þetta hið ágætasta lag og ef ekki bara annað besta lag disksins.

semsagt fín diskó popprokkuð hljómsveit sem allt í lagi er að hlusta á from time to time. verður fróðlegt að fylgjast með hvort það komi nýr diskur með þeim og hvernig hann verði þá

jeff who? - the golden age
jeff who? - bob murray


skrifað af criticts 20:14 criticts

fimmtudagur, janúar 05, 2006
arctic monkeys

alltaf er eitthvað nýtt að koma, hvort sem það springur með púffi, pomp og prakt, verður endingarstutt og leiðindagjarnt, eða smýgur ósjálfrátt inn í undirmeðvitundið og maður man alltaf hversu góð platan/hljómsveitin var, líkt og góð súkkulaði kaka, mhhmm.. súkkulaði kaka.

nýtt nýtt, arctic monkeys. post punk, indie, danshæfur alternetive rokk hressleiki frá sheffiled, south yorkshire, englandi. sveitin hefur gefið frá sér nokkur lög þó eitt þeirra sé yfirgnæfandi vinsælast, i bet you look good on the dancefloor. hljómsveitin hefur ekki enn gefið út plötu þó frumraun þeirra sé væntanleg þann 30. jan 2006 en engu að síður er hljómsveitin orðin óhemju fræg á bretlandi.

þá spurjið þið að sjálfsögðu hvernig hljómsveitin geti verið orðin svona gríðarlega vinsæl án þess að hafa gefið út plötu? svarið er að sjálfsögðu internetið börn mín góð! þau fáu lög sem hafa komið með þeim hafa lent á internetinu og hafa fleiri miljónir manns náð í þau hvort sem það sé í gegnum itunes eða einhver ólögleg laga-niðurhals forrit. hvað voru metallica að tala um að internetið hefði vond áhrif á tónlistarheiminn? sannar bara að þeir eru þröngsýnir á nýja tækni, nýjar leiðir til að koma sér á framfæri og þeir hugsa um fátt annað en að þéna feitt cash. risaeðlur

mæli hikluast með arctic monkeys. eitthvað sem allir, fullir sem ófullir, geta dillað sér við á fimmtudagsoddvitum eða öðrum tónlistarlöghæfum skemmtistöðum sem því miður finnast ekki á akureyri.

arctic monkeys - i bet you look good on the dancefloor




skrifað af criticts 23:48 criticts

sunnudagur, janúar 01, 2006
2006

þá er árið 2005 búið og árið 2006, ár tónlistar og annars, er byrjað. þá er upplagt að fylgja flæði blaða og útvarpsstöðva og gera lista yfir 10 plötur sem stóðu upp úr á árinu 2005. ég tek þó fram að þessi listi er örlítið öðruvísi þar sem plöturnar þurfa ekki endilega að hafa komið út árið 2005, heldur er þetta listi yfir þær plötur sem ég hlustaði á mest á árinu. listinn er svo hljóðandi

1. bloc party - silent alarm
2. depeche mode - the singles 86-98
3. massive attack - 100th window
4. death from above 1979 - you're a woman, i'm a machine
5. röyksopp - the understanding/melody a.m.
6. hermigervill - lausnin/sleepwork
7. kasabian - kasabian
8. kaiser chiefs - employment
9. ég - plata ársins
10. boards of canada - music has the right to children


það kemur örugglega öllum á óvart að bloc party sé í fyrsta sæti á listanum en svona er ég bara óútreiknanlegur. annars kom mikið af góðum plötum á árinu sem ekki komust á listann, þó sérstaklega plötur eftir íslenskar hljómsveitir t.d. dikta - hunting for happiness, sigur rós - takk, emilíana torrini - fisherman's woman, worm is green - push play, ampop - my delusions, jeff who - death before disco og lengi mætti áfram telja en það sem varð þess valdandi að þessar plötur komust ekki á listann var að þær komu flestar svo seint út á árinu þannig að maður náði ekki þessari þráhyggju hlustun á þær. hver veit nema þær komi sterkar inn árið 2006.

þessi listi er svo ekki bindandi fyrir smekk allra heldur er þetta aðeins listi gerður eftir minni tónlistarhlustun þannig að fyllist ekki óðagoti ef þið sjáið ekki uppáhalds hljómsveitina ykkar þarna.

áramóta wallpaper criticts, smellist hér


skrifað af criticts 18:11 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3