fimmtudagur, desember 29, 2005
dikta

að þessu sinni tek ég fyrir íslensku hljómsveitin dikta sem skipuð er fjórum einstaklega hæfileikaríkum mönnum og var sveitin nýlega að gefa út diskinn hunting for happiness. ace, gítarleikari bresku sveitarinnar skunk anansie stjórnaði upptökum á plötunni sem gerir það að verkum að platan verður fágaðri og betri hvað gæði tónlistarinnar varðar. þessi seinni plata diktu er mjög frábrugðin hinni fyrri, andartak, sem var hrá unglingarokkplata ef svo að orðum mætti komast.

á hunting for happiness er öllu umturnað, fullsköpuð, þroskuð hljómsveit lætur til sín taka og sem dæmi má nefna kemur fyrsta lag plötunnar "losing every day" sterklega til greina sem eitt besta lag ársins 2005. haukur heiðar, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar getur jafnt sungið mjúklega, fallega sem og ákveðið og kröftuglega svo maður heyrir jafnt róleg og hugljúf lög í bland við snögg-poppuð rokklög. öll lögin hljóma vel og fanga mann allan, varla hægt að finna nokkurn galla í útsetningum, hljómi, lagasmíðum eða öðru sem við kemur disknum. diskurinn á fullt erindi inn á erlendann plötumarkað þar sem hann er engu síðri en það sem vinsælast er erlendis þessa dagana, enda var snjallt hjá dikta mönnum að fá til liðs við sig reyndan upptökustjóra. topp gripur

ekki má svo gleyma að dj rassgat, vel þekktur dj í kofa tómasar frænda vildi láta bendla við sig sem vin og meðspilara í þessari hljómsveit. rassgatið rokkar

dikta - losing every day


síðan er planið að koma með lista yfir 9 bestu/mest hlustuðustu plöturnar sem ég komst í kynni við árið 2005, auk þess sem áhugaverðast var í tónlistarlífinu á þessu ári.


skrifað af criticts 02:45 criticts

laugardagur, desember 17, 2005
unkle

tilraunakennda elektróníska/hip hop hljómsveitin unkle frá london vakti athygli mína fyrir þó nokkuð löngum tíma en ég hafði steingleymt tilvist hennar þar til ég rakst á grein um hana nú fyrir stuttu. hljómsveitin samanstendur af þremenningum sem búa til hip hop sömpl og takta af stakri snilld og fá svo til sín þekkta og óþekkta listamenn til að koma fram í sumum lögum þeirra, t.d. mike d, thom yorke í laginu rabbit in your headlights, ásamt ýmsum öðrum. að mínu mati er diskurinn psyence fiction þeirra lang besti diskur þar sem trip hop taktar þeirra mæta allskyns tónlistarstefnum svo úr verður fínasta skemmtun.

allir ættu að geta fundið a.m.k. eitt lag með unkle sem höfðar til þeirra svo það er bara að fara út að leita.

unkle - unkle main title theme
unkle - rabbit in your headlights


skrifað af criticts 20:25 criticts

mánudagur, desember 12, 2005
gúmmí subway

nú verð ég að segja að ég hef gaman af skondnum reynslusögum tengdum vinnu, en í gær sá ég og heyrði stúlkurnar á subway lýsa fyrir nýjum starfskrafti hvernig þær hefði einn daginn tekist að sletta sósu yfir glerið og jafnvel hafi það komið fyrir að þær höfðu slett sósunni upp í loftið, funny stuff? svo það munar nú ekkert um það hversu freaky og óútreiknanlegir hlutirnir gerast hjá starfsfólki subway.. þau leggja líf sitt augljóslega í hættu á hverjum degi.

en nú spyr maður sig hvar frumleiki hættir, er hægt að sigra frumleika? ég spyr því nú er einmitt til ákaflega frumleg jólaplata sem ber nafnið a rubber band christmas. hér er um að ræða fólk sem spilar jólalög á venjulegar gúmmíteygjur og verður útkoman afar áhugaverð. sláið í gegn í jólapartyinu ykkar með a rubber band christmas í tækinu.

feliz rubberdad


meira hér


skrifað af criticts 19:27 criticts

föstudagur, desember 09, 2005
boards of canada

nú flytjum við okkur frá kanada en skiljum þó ekki alveg við það. varð nú á vegi mínum hljómsveitin boards of canada frá skotlandi sem spilar afslappaða raftónlist en þó á köflum lög með hröðu tempói. þetta er ótrúlega þægileg bakgrunnstónlist t.d. við lærdóm eða þegar maður er að reyna að sofna. orð sem fá lýst tónlistinni gætu verið á þessa leið: mild, draumkennd, fínleg, slóttug, afslappandi, dáleiðandi, drungaleg, undirgefin, dapurleg, sefandi, fáguð, fjarlæg og einkennileg. ég mæli eindregið með að fólk prófi að hlusta á nýja hluti, eitthvað sem það hefur aldrei heyrt áður og veit ekkert um, þá sérstaklega ef það hlustar alltaf á sömu hlutina og er farið að klæja í fingurnar á að heyra eitthvað nýtt.

boards of canada er trommu, synth/hljómborðs tónlist sem allir ættu að getað hlustað á án þess að verkja í eyrun að einhverju viti.

boards of canada - roygbiv
boards of canada - an eagle in your mind


skrifað af criticts 15:50 criticts

mánudagur, desember 05, 2005
hot hot heat

ekkert lát er af kanadískum hljómsveitum enda verður maður halda sig nálægt uppruna sínum. hljómsveitin hot hot heat spilar hressa indie tónlist sem er 89% líkleg til þess að fá þig til að slá tagt með löppunum, dilla rassinum eða gjörsamlega brjótast út í viltan trans og dansa látlaust um allt herbergið.

eins og ég sagði er hljómsveitin frá kanada og var hún að gefa út disk á þessu ári sem nú er langt komið með að vera búið. platan heitir elevator og er ég búinn að hlusta örlítið á hana en þó ekki búinn að mynda mér skoðun um hana. hins vegar er platan make up the breakdown frá árinu 2002 í betri kanntinum, líflegur hljómborðsleikur kemur manni í gott skap í lögum eins og talk to me dance with me og no, not now. enn ein hljómsveitin sem hlýtur kanadískan gæðastimpil criticts og verður spennandi að sjá hvort fleiri kanadískar hljómsveitir hljóti þann heiður.

hot hot heat - no, not now


skrifað af criticts 20:39 criticts

mannanofn.is

benedikt

nafn þetta er tekið úr latinu, samsvarar latneska orðinu "benedictus" sem þýðir blessaður.

birkir

nafn þetta að öllum líkindum leitt af kvennafninu björk.

bjarni

nafn þetta er veik beygingarmynd af nafninu björn.

friðgeir

nafn þetta er myndað af forliðnum "frið" sem merkir friður, - ró, - næði og viðliðnum "geir" sem merkir spjót.

heiða

nafn þetta er stytting á nöfnum sem enda á "-heiður" og merkir björt, - skær.

jónas

nafn þetta er komið úr biblíunni af hebreska nafninu "yonah" sem merkir dúfa.

róbert

nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi.

tryggvi

nafn þetta er leitt af lýsingarorðinu "tryggur" sem merkir trúr, - traustur.

þorvaldur

nafn þetta er samsett af forliðnum "þór" í merkingunni þrumuguðinn þór úr norrænni goðafræði, og viðliðnum "valdur" sem merkir hefur vald á, - ræður yfir.

örvar

nafn þetta er líklega myndað af forliðnum "ör" í merkingunni hermaður og viðliðnum "var" sem merkir gætinn, - varkár.


skrifað af criticts 18:44 criticts

föstudagur, desember 02, 2005
wallpaper 2

þá er wallpaper desember mánaðar komið, taumlaus jólagleði

wallpaper 2


skrifað af criticts 21:27 criticts

árshátið og jets overhead

árshátið gærdagsins var vel heppnuð þar sem góður matur, húmor, tónlistaratriði og gleði var í fyrirrúmi og voru það svo bogomil font, páll óskar og miljónamæringarnir sem spiluðu á dansleik að lokinni formlegri dagskrá. gömlu dansarnir voru dansaðir uppi sem var mjög góð skemmtun ásamt ógleymanlegri, erótískri myndatöku 3.t. því má segja að þetta stórteiti á vegum menntaskólans á akureyri hafi vakið mikla lukku.

þar sem ég er 1/8 kanadamaður má ég til að birta nokkur orð um kanadadísku hljómsveitina jets overhead. segist hún vera undir áhrifum listamanna á borð við pink floyd, interpol og mamas and the papas en ég verð að segja að ég heyri ekki beint tenginguna við pink floyd en hinar tvær hljómsveitirnar eiga mun betur við. hljómsveitin er tiltörlega ný en þó hefur hún verið iðin við tónlistarsmíði og gaman er að segja frá því að þau eru svo gjafmild á vinnu sína að þau gefa manni þann kost að hala niður öllu efni sem þau hafa tekið upp, þar á meðal nýjasta disknum þeirra, að kostnaðar lausu. þessi hljómsveit hlýtur kanadískan gæðastimpil criticts

jets overhead - seems so far


skrifað af criticts 15:32 criticts

fimmtudagur, desember 01, 2005
worm is green

push play er önnur plata íslensku hljómsveitarinnar worm is green og skellti ég mér á þann grip núna um síðustu helgi. ég renndi marg oft í gegnum diskinn og má segja að hljómurinn á honum sé samblöndun raf- og pop tónlistar í rólegri kanntinum. textarnir og boðskapur laganna beinast öll í átt að köldum raunveruleika vélanna og mætti segja að véltækni/vélmenni sé megin þema þessarar plötu en túlka má textana á ýmsa vegu eins og alla aðra texta og munu textahöfundar vera þeir einu sem skilja þá fullkomlega. söngurinn er einfaldur en skilar sér vel og það sama mætti segja um textana. auk þessa eru ýmsar laglínur mjög grípandi t.d. í laginu "electron john" þar sem maður byrjar að slá taktinn líkt og maður þekki hann en þó er maður að heyra lagið í fyrsta skipti. svipar þessi diskur mjög til "you", fyrst bang gang disksins, þar sem söngkona syngur og karlmaður hvíslar með lögunum líkt og barði var þekktur fyrir að gera.

trommuhljóð/trommuheilar, gítar, samplar, sythesizerar og önnur hljóðfæri og hljóð koma mjög vel út að mínu mati og henntar þessi diskur vel til hlustunar hvort sem manni vantar tónlistarefni til að hlusta á um miðjan dag eða eitthvað rólegt og þægilegt til að sofna við.


skrifað af criticts 00:50 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3