föstudagur, febrúar 24, 2006
pistill

í nafni þess að í dag sé kominn föstudagur að þá ætla ég að smella framan í ykkur tveimur vel völdum lögum sem hafa átt miklu fylgi að fagna í itunes hjá mér.

fyrra lagið er með hljómsveitinni wolf parade sem var að gera það virkilega gott árið 2005, var ofarlega á vel flestum listum yfir bestu plötur ársins. lagið it´s a curse stendur mikið upp úr og var það lagið sem fékk mig til í að renna í gegnum plötuna aftur, og aftur

wolf parade - it´s a curse

seinna lagið er með hljómsveitinni ..and you will know us by the trail of the dead sem er virkilega gott band sem hefur þá fjölbreyttni að hafa tvo trommara, allavegana á tónleikum. þó þetta sé hart nafn að þá er hljómsveitin ekki í þeim pakka að öskra úr sér inniflunum og fórna geitum, þetta er indie post-rokk hljómsveit sem er alveg þess virði að skoða

..and you will know us by the trail of the dead - will you smile again

gleymum því svo ekki að það er roskilde-festival næsta sumar eins og öll önnur sumur. nú gerir maður ekki sömu mistök og í fyrra með því að fara ekki, nú verður kíkkað til dk. hljómsveitir eins og franz ferdinant, placebo, sigur rós, the streets ásamt queens of the stoneage hafa ákveðið að mæta og enn eru 121 dagar í festivalið svo nóg af hljómsveitum eiga eftir að bætast við. allt um hljómsveitirnar sem búnar eru að skrá sig á festið má finna hér http://www.roskilde-festival.dk/object.php?obj=539000c&code=1

svo nú verður enginn plebbi og allir fara á roskilde þetta sumarið


skrifað af criticts 01:09 criticts

föstudagur, febrúar 17, 2006
úlpa

ég er tilbúinn að borga þeim sem getur lánað mér nýja diskinn með úlpu 25kr, cash. þessi diskur á víst að vera bærilegur en sú saga er á kreiki um að úlpa sé meira tónleikaband en stúdíó stússarar. girl er eina lagið sem ég á með þeim og er ég búinn að hlusta á það af og til. ok frekar oft

úlpa - girl

nú eru einnig dóp-étandi dagar mínir taldir, það var köttað á mig og ég fæ ekki lengur my fix


skrifað af criticts 18:50 criticts

fimmtudagur, febrúar 09, 2006
ske

ske, hljómsveit sem er hvað þekktust fyrir að hafa innanborðs þau guðmund steingrímsson kenndan við kvöldþáttinn auk ágústu evu, betur þekkt sem silvía nótt, en ástæðan fyrir því að ég gerist svo kræfur að nefna þessa hljómsveit á nafn er vegna þess að ég fékk nú nýlega í hendurnar nýjasta grip þeirra, feelings are great, og líkar afburðar vel.

góðar lagasmíðar, söngur og útsetningar einkenna plötuna og gera hana að virkilega hlustanlegum hlut. skífa þessi er þó örlítið dýpri og dimmari en fyrra verk þeirra "life, death, happiness and stuff" sem er útúrsmekkuð af hressleika.

það er hins vegar ekki ágústa eva sem ljáir ske rödd sína á þessum disk eins og ég hélt, heldur er það ungfrú ragnheiður gröndal sem syngur svona listavel í lögum eins og "beautiful flowers" og "girl at work". afsakaðu jónas að ég hafi logið því að þér að ágústa eva syngi á þessum disk, i just didin´t know any better. virðist vera svo að þær deili því með sér að syngja inn á plötur hljómsveitarinnar, jafnvel að ágústa eva hafi bara nóg á sinni könnu þessa dagana.

ekki hata hljómsveitina þó þið hatið gumma úr kvöldþættinum, gott band hér á ferð

ske - girl at work




skrifað af criticts 20:49 criticts

laugardagur, febrúar 04, 2006
coldcut

hljómsveitir sem eru flokkaðar í sama flokk og massive attack, dj shadow og unkle eru svo sannarlega þess virði að tékka á. elektróníska hip hop/breakbeat bandið coldcut var stofnað 1986 í london og inniheldur það tvo dj'a. ég veit svo sem ekkert annað um þetta band en get aðeins sagt að lagið sem ég á með þeim er alls ekkert líkt massive attack, veit ekki alveg hvar allmusic fær þá tengingu. hresst lag engu að síður

coldcut - true skool


skrifað af criticts 19:06 criticts

fimmtudagur, febrúar 02, 2006
daníel ágúst haraldsson

swallowed a star er diskur eftir daníel ágúst haraldsson, fyrverandi söngvara hljómsveitarinnar gus gus. platan kom út í lok síðasta sumars ef minnið er ekki að blekkja mig og hef ég alltaf ætlað mér að heyra þennan grip þar sem daníel gerði góða hluti með gus gus ásamt því að búið var að lofa þennan disk hástöfum. get ég þakkað tónlistargagnagrunni amtbókasafns akureyrar það að ég fékk loks að heyra þennan disk.

diskurinn inniheldur hæfilega mikið af tæknirúnki í sambland við strengjatónlist og útkoman er nokkurs komnar fullorðins popp. platan er þung en ég hlustaði u.þ.b. þrisvar sinnum á hana og það er ekki hægt að segja annað en að hún verði betri og betri með tímanum, góðar útsetningar setja svip sinn á plötuna ásamt einstökum söng daníels, platan er heilsteypt, vönduð og alveg þess virði að eyða tímanum í að hlusta á. ég mæli kannski ekki með henni fyrir alla en þeir sem hlustuðu á gus gus og eru nýjungagjarnir á tónlist ættu ekki að verða vonsviknir með þetta verk daníels

----

til að vega upp á móti þungri plötu þá ætla ég að koma með smá léttmeti en það er hljómsveitin people in planes. band þetta er frá cardiff í wales en þeir spila poppaða indie tónlist, alls ekkert sem ekki hefur heyrst áður, engar stórvægilegar nýjungar en þó ekkert sérstaklega mainstream heldur. það sem varð til þess að þessi hljómsveit fékk smá vott af umfjöllun er að leikarinn joaquin phoenix er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar og leikstýrði hann myndbandi þeirra við lagið "if you talk too much (my head will explode)". ekki láta diddú-lega byrjun lagsins hrella ykkur

people in planes - if you talk too much (my head will explode)




skrifað af criticts 19:42 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3