mánudagur, desember 24, 2007

tvöþúsund og sjö er búið að vera þrusu fínt tónlistarár, bæði erlendis og innanlands. fullt af nýjum hljómsveitum hafa gefið út efni ásamt því að gamlar góðar hljómsveitir gefi út nýja diska eins og t.d. radiohead, queens of the stoneage, interpol og smashing pumpkins svo eitthvað sé nefnt.

ég ætla að taka saman það sem mér fannst standa upp úr, gefa einhver verðlaun, drulla yfir það sem mér fannst sökka og því ætla ég að byrja þennan pistil á því að lýsa yfir vonbrigðum mínum með bloc party. þeir gáfu út diskinn weekend in the city sem svo sannarlega verður betri með hverri hlustun en hann verður aldrei nógu góður. lélegir textar og skortur af dínamík gera þennan disk frekar ómerkilegann og ef þetta hefði verið frumraun þeirra að þá hefði ég skotið þá á kaf og ekki hlustað á meira frá þeim. bloc party sem sagt vonbrigði ársins 2007.

en úr vondu yfir í gott að þá eru margar nýjar hljómsveitir búnar að gefa út fyrsta diskinn sinn. fullt af ungum íslenskum hljómsveitum komu upp á sjónarsviðið, bloodgroup, benny crespo's gang, jakobínarína, sometime, lada sport, sprengjuhöllin og hjaltalín eru allt hljómsveitir sem gáfu út frumburð sinn á árinu. fleiri nýjar hljómsveitir gáfu út efni, meðal annars motion boys, steed lord og últra mega technobandið stefán. hægt er því að segja að íslensk tónlist hafi aldeilis fengið að blómstra þetta árið því gamlir jálkar eins og megas gáfu líka út nýtt efni, stórstjörnur á borð við björk, mugison, gus gus, hjálma og mínus gáfu líka út nýja diska sem allir voru afbragðsgóðir og fengu víðast hvar mikið lof.

plötur erlendis frá voru af mörgum toga. það sem mér fannst samt merkilegt þegar ég var að taka saman nýjar plötur eru hvað það voru margar hljómsveitir sem voru að gefa út disk númer tvö. band of horses, bloc party, arcade fire, arctic monkeys, lcd soundsystem, go! team og kaiser chiefs eru allt dæmi um hljómsveitir sem gáfu út sinn annan disk og voru þetta mjög góðir diskar, nema náttúrulega weekend in the city með bloc party.

ég er samt að spá í að fara yfir í það að gefa einhver verðlaun fyrir ýmsan árangur.

ljótustu plötuumslög ársins innan- og utanlands:
jakobínarína og smashing pumpkins. hægt að sjá umslögin með að smella á hljómsveitarnöfnin.

besta nafn á plötu:
supercalifragilisticexpialidocious eftir sometime. þetta er nafn sem enginn getur munað, borið fram eða skilið og því fær það þessi verðlaun.

texti ársins:
textinn við lagið homecoming með the teenagers er að mínu mati besti texti ársins. hann er fyndinn og sýnir tvær mismunandi hliðar á sama máli.

versti tónlistarmaður ársins:
mika.. það er bara ekkert gott við þennan mann. hann gaf út disk á árinu sem var þeim "gæðum" gæddur að lögin á disknum fóru alltaf versnandi. til að undirstrika þetta að þá er fyrsta lag disksins ógeðslega leiðinlegt, þannig að þið sjáið hversu slæmur diskurinn er. mika gerðist líka svo grófur að covera lagið teardrop með massive attack. ég hef ekki heyrt aðra eins útreið á einu lagi og frekar vil ég láta draga mig eftir malbiki á 100km hraða en að hlusta á þessa útgáfu aftur. mika er því vel að þessum titli kominn.

en þá er það bara nokkurn vegin komið og ekkert eftir nema birta lista yfir 5 bestu plötur ársins. þessi listi inniheldur bæði íslenskar og erlandar hljómsveitir og því var gríðarlega erfitt að velja í þessi fimm eftstu sæti og er nokkuð ljóst að margir eiga eftir að vera mér ósammála í valinu, en þeir geta þá bara gert sinn list.

plöturnar eru:

5# sticky situation með bloodgroup

skemmtileg plata sem inni heldur dansvæn lög og því er meira að segja enn skemmtilegra að vera á tónleikum með þeim. góður diskur, margir tónleikar, lönduðu plötusamning. þetta hefur verið gott ár fyrir bloodgroup.

4# pieces of the people we love með the rapture

það er ekki hægt að vera fúll og hlusta á þennan disk, ekki möguleiki. þetta er diskur sem fær jafnvel danshræddustu menn aðeins til að dilla sér.

3# cross með justice

ef þú ert á leið í party og þarft að koma þér í gírinn að þá er þessi diskur algjörlega málið. frakkar eru greinilega sú þjóð sem kann að gera bestu raftónlistina saman ber justice, daft punk og air.

2# benny crespo's gang með benny crespo's gang

diskur sem hefur verið lengi í framkvæmd kom loks út og þau mega svo sannarlega taka sér svona langan tíma í að gera næsta disk ef hann verður eitthvað í líkingu við þennan. ekki einn veikan blett hægt að finna á þessum disk, dúndur rokkaplata sem rúllar viðstöðulaust í gegn.

1# myth of the near future með klaxons

klaxons eiga bestu plötu og bestu tónleika ársins að mínu mati. dans/rokk elektróník sem hittir beint í mark. nú verður maður bara að krossleggja fingurna og vona að þeir kúki ekki á sig með disk tvö eins og bloc party gerðu.


skrifað af criticts 15:45 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3