þriðjudagur, september 28, 2004
nezitic.tk
nei nei, þetta var nú ekkert hin raunverulega gagnrýni á nezitic.tk . þetta var nú bara smá spaug á kostnað vestjóra nezitic þar sem þeir voru búnir að bíða spennntir í rúman mánuð eftir að sjá gagnrýnina. en hin raunverulega gagnrýni kemur þann 2. október. punktur.
skrifað af criticts
23:12
criticts
nezitic.tk
fín síða..
skrifað af criticts
19:27
criticts
laugardagur, september 25, 2004
bang gang
hreint út sagt frábært! þetta var með því besta sem ég hef farið á í sumar. þetta var svo magnað að það er ekki til nógu sterk orð yfir það hversu skemmtilegt þetta var.
þar sem að ég hef hlustað á bang gang frá því að fyrsti diskur þeirra kom út að þá var þetta viss upplifun að sjá þetta svona live. ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast en ekki bjóst ég nú við þessu.. þetta byrjaði nú ekki vel þar sem það voru einhverjar tafir á tónleikunum vegna einhverra tæknilegra örðuleika. ég lét það ekki á mig fá og sat bara hinn rólegasti í sæti mínu. svo mættu þau á sviðið, védís hervör arnadottir og svo trommuleikarinn og hljómborðsleikarinn sem ég hafði nú ekki séð áður. svo byrjuðu hljómarnir að flæða um salinn og var þá farið að hljóma lagið inside, upphafslag plötunnar something wrong. söng védís hervör eins og engill og stóð hún sig með stakri prýði en þó sást hvergi til barða og restinnar af hljómsveitinni. en maður hugsaði lítið um það og hlustaði á það sem var að gerast beint fyrir framan mann. svo um leið og trommarinn byrjaði að tromma að þá löbbuðu inn í salinn barði ásamt gítarleikaranum og bassaleikaranum og ætlaði þá allt um koll að keyra og byrjuðu allir að klappa sem mér fannst reyndar frekar heimskulegt þar sem þetta var inn í miðju lagi og aumingjans védís var að reyna að syngja í gegnum allt klappið. en þegar þeir voru komnir uppá svið tóku þeir sér hljóðfæri í hönd og byrjuðu að spila. og þá hófust tónleikarnir að alvöru.
þau tóku öll helstu lögin af something wrong og má þar nefna lög á borð við follow, forward and reverse, find what you get, stop in the name of love og svo tiltillag plötunnar, something wrong. einnig voru tekin gömul lög af disknum you þar sem bandið fór gjörsamlega á kostum og var þetta svo mikil snilld að ég get ekki hætt að segja hvað það var mikil snilld. barði er náttúrulega algjör snillingur og var ekki að spurja að því að hann fór alveg á kostum hvort sem hann var að spila og syngja eða að skjóta hnitmiðuðum gamanorðum til áhorfenda milli laga. troomuleikarinn var einnig afburðargóður þrátt fyrir háan aldur. svo stóð restinn af hljómsveitinni sig líka eins og hetjur. gítarleikarinn glamraði á gítarinn líkt og barði og bassa leikarinn sló bassann og á milli þess luft-trommaði hann og var með luft-hljómborðsleik sem var nokkuð skemmtilegt. og hljómborðsleikarinn vissi allann tímann hvað hann var að gera.
öll umgjörðin í kringum tónleikana var bara nokkuð góð. hljóðið var til fyrirmyndar og þegar bassatromman hljómaði að þá fann maður fyrir því. og bassinn ómaði vel og söngurinn líka þannig að ekkert er hægt að setja útá hljóðið. svo var lýsingin bara mjög góð. nema hvað að eitt ljósið fór alltaf í augað á manni með svona 15 sec millibili þarna í einhverjum 2-3 lögum þannig að manni var farið að verkja svoltið í augað en maður harkaði það nú bara af sér. En ég segi það enn og aftur að þessir tónleikar voru hrein snilld og fá þeir fimm stjörnur af fjórum mögulegum fyrir hátt skemmtana gildi, frumleika og bara magnað show.
bang gang tónleikar: ***** aumingja þið ef þið misstuð af þessu
skrifað af criticts
17:05
criticts
miðvikudagur, september 22, 2004
comment
þá er það komið í lag
skrifað af criticts
23:24
criticts
comment
magnað, commentið frosið þannig að það sést ekki hvað eru komin mörg comment. haloscan ekki alveg að gera sig. o well, fixa það seinna
skrifað af criticts
22:24
criticts
200.000 naglbítar
nei takk.
í gær varð ég fyrir því óláni að lenda á all hörmulegum tónleikum með 200.00 naglbítum.
byrjum á byrjuninni. í fyrsta lagi að þá var þetta annað árið í röð sem þeir voru á busaballi MA og kannski það hafi verið oftar, man það ekki. en það drepur ekki neinn held ég að fá einhverja aðra hljómsveit til að spila, bara svona til tilbreytingar. ég hef ekkert á móti 200.00 naglbítum og finnst mér það mjög góð hljómsveit en ég held að þeir þurfi að fara að spá aðeins í tónleikaprógramminu sínu. prógrammið var algjör endurtekning frá því í fyrra og spiluðu þeir öll sömu lögin. og ekki nóg með það heldur voru ein 3-4 lög spiluð tvisvar. þetta finnst mér til hábornar skammar þar sem þeir hafa nú gefið út eina 3 diska og samtals eru á þeim 37 lög þannig að vera að spila sömu lögin tvisvar á sama ballinu er bara rugl. þannig að svona allt í allt finnst mér þetta bara hafa verið frekar misheppnað ball.
svo að ég legg til að fengin verður önnur hljómsveit á næsta ári ti að spila og svo ættu 200.00 naglbítar að laga aðeins til tónleikaplanið sitt og búa kannski til nokkur þannig að þau séu ekki alltaf alveg eins. og fær þetta ball ekki nema eina stjörnu frá mér.
ball með 200.000 naglbítum: *
skrifað af criticts
13:46
criticts
sunnudagur, september 19, 2004
medulla
medulla er nýjasti diskur bjarkar
frumlegur og framandi, því getur enginn neitað en tel ég að skemmtanagildi hans sé ekki eitthvað til að hrópa húrra fyrir. það bregður alveg fyrir eitt og eitt gott lag en margt á þessum disk má líkja við blautann hund.
fyrir þá sem ekki vissu að þá eru ekki notuð nein hljóðfæri í lögunum heldur einungis raddir fólks og má nefna að rahzel sem hefur gert garðinn frægann sem mennskt beatbox og er einnig í hljómsveitinni the roots kemur mikið fyrir á disknum og einnig má finna rödd mike pattons, sem var söngvari faith no more, á disknum en hefur hann og rahzel verið að vinna mikið saman uppá síðkastið og má sem dæmi nefna að þeir komu fram á reading hátíðinni sem haldin var ekki fyrir svo löngu. einnig má til gamans geta að diskurinn var tekinn upp á 18 mismunandi stöðum í heiminum, þar á meðal new york, íslandi, feneyjum og kanarí eyjum.
er þessi diskur ekki fyrir alla en fyrir suma verður þessi diskur sem himnasending. þó mér hafi ekki verið skemmt allann tímann á meðan ég hlustaði á þennan disk að þá var þetta fróðlegt og eitthvað glænýtt þannig að medulla fær þrjár stjörnur af fjórum möguleikum fyrir frumleika, mikla vinnu og ágætis skemmtanagildi.
björk - medulla: ***
skrifað af criticts
19:28
criticts
laugardagur, september 18, 2004
depeche mode
ég tók mig núna til fyrir stuttu og hlustaði á the singels 86-98 með depeche mode. er þetta 2 diska safnplata sem gefin var út árið 1998 og eins og nafnið gefur til greina að þá er þetta samansafn af singlum sem þeir hafa gefið út á tímabilinu 86' til 98'. má hér finna mörg af bestu lögum depeche mode t.d. enjoy the silence, personal jesus, strangelove og eitt af betri lögum sem ég hef heyrt, home.
er depeche mode gamalt 80's band sem hefur þróaðst örlítið í átt að nútímanum eftir því sem nær dregur en halda þó alltaf svoltið í gamla depech mode stílinn. það sem einkennir depech mode lög er flottur gítar, útpældir og magnaðir textar ásamt ýmsum effectum sem þeir setja í lögin sem gerir þau mjög flott. og ætla ég hiklaust að gefa þessum safndisk þeirra yfir bestu lög sem þeir hafa gert fjórar stjörnur af fjórum mögulegum og vænti ég þess að allir þeir sem lesa þessa gagnrýni fari núna á stundinni og reyni að redda sér þessum disk.
depeche mode - the singels 86-98: ****
skrifað af criticts
19:14
criticts
fimmtudagur, september 16, 2004
frikki vs. hvíta línan
hér með verður dagurinn 15. september haldin hátíðlegur öll næstu ár þar sem þess verður minnst hvernig friðrik bragi lagði hvítu línuna af velli eftir að hún gjörsamlega bakaði mig. þetta var hörð orusta en eins og þið sjáið sem áður hafið komið á síðuna að þá er línan horfin! og við skulum bara vona að hún komi aldrei aldrei aftur, þó kannski maður skjóti henni kannski inn annað slagið bara svona uppá það að maður fái nú ekki fráhvarfseinkenni. en friðrik fær fjórar stjörnur af fjórum mögulegum fyrir að ná að koma línunni fyrir kattarnef.
friðrik bragi: ****
skrifað af criticts
17:29
criticts
miðvikudagur, september 15, 2004
kill bill vol. 2
hér er á ferðinni eitt enn meistaraverkið eftir quentin tarantino og er ég bara nokkuð viss um að þessi mynd slái út þá fyrri en er það ekki eitthvað sem skiptir máli því að maður þarf að sjá báðar myndirnar. þetta er basicly bara ein mynd í 2 pörtum. en uma thurman stendur sig eins og hetja í þessari mynd ásamt david carradine sem lék hinn ofur svala Bill með miklum kostum og fannst mér það magnað miðað við það að hann er 2 árum frá því að vera sjötugur. myndin er snjöll og er mikið af skemmtilegum bardagaatriðum og er pai mei (sá sem kenndi umu thurman að slást í myndinni) svo fyndinn að hálfa væri nóg.
það er leiðinlegt þegar gagnrýnendur fara eitthvað að tala um um myndina og missa svo útúr sér eitthvað mikilvægt atriði í myndinni eða eitthvað sem á að vera surprise. þannig að ég ætla bara hér með að sleppa því að segja um hvað myndirnar eru og bara segja ykkur hvað mér fannst um myndina og hvernig leikararnir stóðu sig og svo framvegis.
en kill bill vol. 2 fær hiklaust 4 stjörnur sem og kill bill eitt og saman eru þetta msm myndir. einnig eru 2 aðrar msm myndir frá quentin tarantino og eru það myndirnar reservoir dogs og pulp fiction.
kill bill vol. 2: **** msm
skrifað af criticts
13:01
criticts
sunnudagur, september 12, 2004
schüle durden
jæja nú er skólinn að byrja þannig að ég get farið að meta og gagnrýna allt í sambandi við hann. allt eins og fög, kennara, busa og bekkjarfélaga. þetta verður þó allt í mjög miklu hófi og enginn einn tekinn fyrir svo þessi síða verði ekki talin ábyrg fyrir persónuárásum eða öðru slíku.
annars hefur mér tekist að rífa mig frá ssx þannig að ég get farið að halda áfram með gagnrýni mína um nezitic.tk og má búast við henni einhvertíman í september mánuði.
annars fær rúv aðeins 1 stjörnu fyrir afleiddar sunnudags bíómyndir sem eru alls ekki í tengslum við umheiminn né einhverju sem talist getur með viti. og fær sjónvarpsdagskrá á sunnudögum í heild sinni aðeins 2 stjörnur þar sem það er ekki mikið sem hægt er að horfa á sér til skemmtunnar. eina sem eitthvað vit er í er james bond.
sunnudags bíómyndir rúv: *
sjónvarpsdagskrá á sunnudögum í heild sinni: **
skrifað af criticts
23:02
criticts
föstudagur, september 10, 2004
ssx3
nú hafa bloggfærslur aðeins tafið og munu sennilega gera það áfram þar sem ég var núna að fá í henurnar play station 2 tölvu ásamt ssx3 þannig að ég hef ekki alveg beint tíma. en þetta kemur allt bráðlega.
skrifað af criticts
16:18
criticts
fimmtudagur, september 09, 2004
along came polly
enn ein myndin sem bætist við í safnið þar sem ben stiller leikur mjög aulalegann karakter sem er mistækur og hálf glataður á alla vegu. má nefna myndir eins og duplex, there´s something about mary og starsky and hutch. nema hvað að hann var svalur í starsky and hutch, jakkinn gerði mikið fyrir hann. svo er líka þarna hún jennifer aniston og er hún bara ágæt. hún er í svona svipuðum karakter og þegar hún er að leika rachell í friends og finnst mér hún aldrei ná því úr sér í þeim myndum sem ég hef með henni.
en þessi mynd er mjög svipuðum öllum svona mynum sem ben stiller leikur í og eru þetta fínar myndir til að drepa tíamann með. ekki myndi mér detta í hug að sjá þessa mynd í annað skiptið en hún er bara bærileg. criticts gefur myndinni tvær stjörnur af fjórum mögulegum.
along came polly: **
skrifað af criticts
01:26
criticts
miðvikudagur, september 08, 2004
allt í steik
eins og allir vita sem eru tíðir gestir á þessari ágætu síðu að þá fór hún alveg í steik. en örvæntið ekki því eins og glöggir menn sjá að þá er hún komin aftur í lag. þetta kostaði mig ekkert af blóði, eitthvað af svita og slatta af appelsínu safa. en þetta er komið í lag og það er það sem skiptir öllu máli
skrifað af criticts
20:00
criticts
þriðjudagur, september 07, 2004
shade
snjöll, sling og afdrifarík.
þrjú orð sem ég myndi nota til að lýsa þessari mynd. afar góð mynd til að legja sér þegar ekkert er að gera, alls ekki mynd sem þörf er á að fara í bíó. en þar sem það er hvort eð er ekki hægt lengur þar sem myndin kom út árið 2003 að þá þurfið þið ekki að hafa áhyggjur af því.
hér er á ferð mynd sem skartar góðum hóp leikara, svo dæmi séu nefnd: silvester stalone. hér er rambo sjálfur á ferð í mynd um fjárhættuspil, svikar og lygar. ekki er ég mikill aðdáandi silvesters en þar sem hann fer þarna með svona meðal hlutverk að þá er hann bara mjög þolanlegur. í þessari mynd fer leikari að nafnistuart townsend á kostum að mínu mati. mæli eindregið með því að þið kíkið á þessa mynd. þrjár stjörnnur af fjórum.
Shade: ***
skrifað af criticts
23:51
criticts
sunnudagur, september 05, 2004
shaun of the dead
þessi mynd er top! mjög langt síðan ég hef hleigið svona svakalega í bíó. ég segi það enn að breskar myndir eru lang bestar. það var ekkert sem betur mætti fara í þessari mynd og sá sem leikur shaun, sem er aðal persóna myndarinnar, fer gjörsamlega á kostum ásamt vini sínum ed. þessi mynd fær tvímannalaust fjórar stjörnur af fjórum mögulegum og ætla ég ekki að segja neitt meira um myndina, þið verðið bara að sjá hana. þetta er fyrsta myndin sem ég skrái sem msm. msm þýðir semsagt must see movie. og msm myndir eru myndir sem þið verðið bara að sjá.
shaun of the dead: **** | msm
skrifað af criticts
01:01
criticts
laugardagur, september 04, 2004
geðveiki
það var engin smá keyrsla í dag. allt á fullu, verið að reyna að klára allt við háskólann. þanngi að í dag tók ég mér hellur í hönd og hamaðist eins og geðsjúklingur eins og restinn af garðverks mannskapnum. eftir mikið ströggl kláraðist verkið kl 5 að staðartíma þannig að ég mæli eindregið með að þið takið smá rúnt uppí háskóla og tékkið á þessu.
annars mun ég fara og sjá shaun of the dead í kvöld. fékk sú mynd 7.8/10 hjá imdb.com þannig að það lofar bara góðu en annars má búast við gagnrýni minni á morgun.
skrifað af criticts
18:48
criticts
föstudagur, september 03, 2004
álit ykkar
eins og þið vitið að þá skiptir álit ykkar mig bæði miklu og engu máli þannig að ég hef, eftir miklar rökræður við sjálfan mig, ákveðið að gera lítinn álits dálk þar sem þið getið komið skoðunum ykkar á framfæri.
so go nutz
skrifað af criticts
20:31
criticts
fimmtudagur, september 02, 2004
snatch
að hverju er maður orðinn? ég er alveg hættur að gera greinamun á dögum. stafar líklega af þessari 6 daga vinnuviku minni en t.d. er fimmtudagur í dag en mér líður eins og það sé þriðjudagur. þetta verður að fara lagast áður en skólinn byrjar.
talandi um skólann að þá var ég að skoða bekkinn minn og stundatöflu. lýst bara ágætlega á þetta. fæinir kennarar og ágætis krakkar. reyndar frekar skíttnir fimtudagar en það er bara eitthvað sem ég verð að yfirstíga. ég er semgsagt í öðrum X með nokkrum skemmtilegum krökkum og öðrum ekki. svo er einhver slatti sem ég þekki ekkert til.
svo er núna konungur svíðþjóðar að koma til íslands og þar á meðal til akureyrar og ætlar hann að skoða háskólann þar sem ég er búinn að vera að vinna hörðum höndum við að helluleggja og gera fínt þarna síðustu vikur og núna er hann að koma um helgina og þá þarft þetta allt að vera tilbúið og voða fínt. þannig að það er smá stress í gangi hjá fyrirtækinu um að ná að klára þetta. en þetta verður bara að reddast eins og allt annað. eins og það megi ekki vanta nokkrar hellur þó einhver kongur sé að koma, hann er ekkert það merkilegur.
skrifað af criticts
13:14
criticts