föstudagur, október 28, 2005
warning label

vaúðamiðar eru ávalt góðar ritningar. nú stendur einmitt á dópinu mínu að ég eigi að forðast þungun, auk þess sem það á að geyma það þar sem börn ná ekki til né sjái. það hlýtur að vera brútal ef eitthvað barn sér þessar pakkningar, must burn their eyes!

fyrir þá sem ekki sáu hljómsveitina ampop í kastljósinu nú í kvöld ættu að tékka á því [ http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270009 ]
gaman að því að fylgjast með trommaranum þegar hann fær að spreyta sig


skrifað af criticts 19:48 criticts

þriðjudagur, október 25, 2005
nýtt álit

eftir síðasta tölvulistayfirdrulls/ipodauglýsingar póst minn að þá hefur álit mitt á tölvulistanum breyst. ég hringdi í þá og fékk þær upplýsingar að mín biði ný hýsing og nýr harður diskur. var ég bara mjög sáttur með það og renndi niður eftir í hálkunni. þegar hann rétti mér harða diskinn í hýsingunni að þá kom hann með magnaðar fréttir, sem voru eitthvað á þessa leið:"okkur tókst að bjarga öllu af gamla disknum og setja á nýja."

með þessum orðum tókst þeim að toppa allt sem gott var, ekki skemmdi fyrir að þegar ég kvaddi að þá sagði afgreiðslumaðurinn rokk on! mjög áhugavert bless.

summary: tölvulistinn er fínn en fm 2006 er enþá fínni


skrifað af criticts 17:59 criticts

sunnudagur, október 16, 2005
ipod

nú í gær gerðist það að utan á liggjandi harði diskurinn minn hrundi og þar með hvarf allt sem var á honum. þeð eina svekkjandi við þetta var að nánast öll tónlistin mín var á harðadiskinum og leiðinlegt að missa það allt. en þá kemur ipod til bjargar!

svo skemmtilega vildi til að ég var með nánast alla tónlistna, það er alla tónlistina sem ég hlusta mest á, inn á ipodinum og frændi minn sendi mér forrit til að taka lög af ipodinum inn á tölvuna.

svo ipod má nota til að: hlusta á dags daglega, hlusta á í bílnum og til að bjarga tónlist. svo ipod fær hæstu einkunn, tíu af 10 fyrir frábært notagildi

já og ekki kaupa harða diska frá tölvulistanum.. þeir hrynja bara


skrifað af criticts 16:21 criticts

fimmtudagur, október 13, 2005
góð fréttamennska

"ashley cole bakvörður arsenal verður frá keppni í allt að átta vikur eftir að hafa brákast á fæti á æfingu með landsliðinu í síðust viku. þetta staðfesti arsene wenger stjóri arsenal á vefsíðu félagsins í kvöld en wenger hefur undirgengist uppskurð á hægri fæti vegna þessa og snýr aftur í jólamánuðinum." tekið af fotbolti.net

ég veit ekki hvaða gagn það á að gera ashley cole, að arsene wenger fari í uppskurð á hægri fæti hans vegna.. þeir eru undarlegir þessir arsenal menn


skrifað af criticts 21:39 criticts

þriðjudagur, október 11, 2005
wolrd wide news

að sjálfsögðu er criticts fréttavaktin með puttann á púlsinum hvað varðar fréttir í heimsmálum. það sem helst er í fréttum þennan þriðjudag er að:

írönskum fótboltamönnum hefur verið bannað að hafa "nútímalegar og framandi" hárgreiðslur þar sem þeir eru sagðir hafa slæm áhfrif á landa sína með þess konar útliti.

bresk dagblöð ganga berserksgangi þessa dagana og eru farin að láta fylgja fríar dvd myndir með blöðunum sínum. byrjaði þetta fyrst með því að það kom dvd mynd aðeins með sunnudagsblaðinu en þróun mála hefur orðið til þess að nú fylgir dvd mynd daglega hjá sumum blöðum, hvort sem um er að ræða teiknimyndir, bíómyndir eða breska þætti. þætti mér gaman ef íslensk dagblöð tækju upp á þessu.

og af íslandi er það að frétta að nú geta akureyringar fengið um 60 sjónvarpsrásir í gegnum kerfi símans. á fólk að geta panntað sér bíómyndir og allskyns þægindi í gegnum þessa þjónustu og á þetta að auðvelda öllum akureyringum sjónvarpsáhorf til munar. hvernig væri þá að leggja kapal í öll hús á akureyri, svo allir geti fengið þetta, áður en þið farið að auglýsa einhverja svona þjónustu?! þoli ekki símann

þar með lýkur fréttum frá fréttastofu criticts.. allt um allt og alla


skrifað af criticts 18:10 criticts

sunnudagur, október 09, 2005
hermigervill?

hermigervill.. ungur, íslenskur listamaður sem var að gefa út sína aðra plötu. á þessi merki maður um 3500 vinyl plötur sem útaf fyrir sig hlýtur að teljast sem mikið afrek. hef ég verið að hlusta mikið á báða diska hans og er þetta nánast það eina sem ég er búinn að hlusta á síðustu eina og hálfa vikuna. þeir sem eru spenntir fyrir að heyra eitthvað með honum, þá getið þið náð í fyrsta diskinn hans, lausnina, [hér]

annað í fréttum er að nezitic menn hafa slegið upp í nýja heimasíðu með .com endingu sem að er flott mál. http://nezitic.com er það þá núna.

sjallinn, páll óskar, edrú, dansa, edrú, sjallinn.. eins undarlega og það gæti hljómað að þá var það bara góð skemmtun


skrifað af criticts 23:39 criticts

föstudagur, október 07, 2005
qix

vegna tíðra ofsókna smáís þá hef ég ákveðið að breyta aðeins til. í stað þess að þið getið náð í lög í "útvarps" kassanum að þá getið þið aðeins séð hvaða diska ég er að hlusta á at the moment. vona að þessar breytingar verði engum til mikilla trafala.


skrifað af criticts 13:52 criticts

miðvikudagur, október 05, 2005
rafmagn?

nú var nokkuð um rafmagnsleysi í reykjavík en þó mætti segja að það hafi hagnast okkur akureyringum. eftir að rafmagnið fór af hluta reykjavíkurborgar í dag þá hrundi niður afruglurakerfi 365 ljósvakamiðla, stöð2 og sýn hafa þar með verið óruglaðar í dag. þannig að mín vegna má reykjavík vera rafmagnslaus af og til.

öfugmælavísur:

í eld er best að ausa snjó,
eykst hans log við þetta;
gott er að hafa gler í skó,
þá gengið er í kletta.

gott er að láta salt í sár
og seila fisk með grjóti,
best er að róa einni ár
í ofsaveðri á móti.


skrifað af criticts 21:27 criticts

mánudagur, október 03, 2005
klapp

það kannast allir við klapp. það hafa allir einhvertíman klappað og þá sennilega á viðeigandi tíma. í lagi er að klappa þegar fótboltalið skorar mark, einhver er að gifta sig eða einhver útskrifast úr skóla. þetta eru allt viðeigandi tímar til þess að klappa ásamt mörgum öðrum.

en nú vil ég benda á þá tíma þar sem fólk þarf ekki að klappa á. það er t.d. þegar flugvél lendir að bíómynd í bíóhúsi klárast. verð ég að segja að þegar ég lendi í því þannig pakka að þá fæ ég alltaf aumingjahroll.

vildi ég bara benda á þetta svo einhverjir brenni sig ekki á þessu. hugsið áður en þið klappið


skrifað af criticts 00:47 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3