miðvikudagur, ágúst 31, 2005
tónleikarölt

hér sit ég með ískur í eyrunum og ætla að rita niður sem og eina tónleikagagnrýni.

staður: oddvitinn
hljómsveitir: amor e morte, tony the pony og kingstone
dagsetning: skringileg

það tók mann ekki langan tíma að sjá hvers lags hljómsveit amor e morte var, en hún saman stóð af 5 meðlimum sem voru augljóslega að keppast um að vera með sem síðasta hárið. þeir hófu leikinn og einkenndist þessi sveit af afburðar góðum hljóðfæraleikurum en eins og stundum vill til með þessar dauðarokks hljómsveitir að þá var söngurinn ekki upp á marga fiska. þeir tóku nokkur frumsamin lög sem minnti mig á allar aðrar dauðarokks hljómsveitir sem ég hef heyrt í. ekki er ég viss um að þeir hafi höfðað alltof vel til mannfjöldans en það var áhugavert að fylgjast með þeim og voru þeir bærilegir. þó er ég með eina hugmynd að dauðarokkshljómsveit: menn sem spila dauðarokk, klæddir í skyrtur, vesti og annan snyrtilegann klæðnað. allir með stutt hár, helst stífgelað. þetta væri hljómsveit sem myndi skera sig eftirmennilega úr hinum dauðarokkshljómsveitunum þar sem mðelimirnir eru allir klæddir í slayer, metallica eða megadeath boli og með hár svo sítt að það gerir þeim erfitt fyrir að ganga klakklaust.

næstir á svið voru kingstone menn en þá hljómsveit skipa nú 4 menn í stað þriggja. voru þeir allir málaðir eins og einhvers konar beinagrindur í framan sem var mjög spes ásamt því að tala ensku út alla tónleikanna, þó var það ekki að skila sér neitt alltof vel. viltur gítar- og trommuleikur einkenndu spil hljómsveitarinnar og eins og venja er að þá sleit viktor gítarstreng. því var reddað með að hann spilaði restina af sessioninu á heavy metal gítar sem var nokkuð skondið. var þetta þétt og gott spil sem höfðaði vel til fólksins.

síðastir á svið voru tony the pony sem tóku alla sína rokk.is slagara í miklu tjútti. það sem einkenndi þessa fjögra manna sveit voru brúnir leðurjakkar ásamt svipuðu gítarspili í öllum lögunum. tók salurinn að tæmast þegar þeir hófu spil sitt, var það nokkuð augljóst að mannskapurinn var orðinn þreyttur. ég hlustaði á nokkra vel valda rokk.is hittara, tók mit hafurtask og kom mér svo út þar sem þetta var ekkert of spennandi hljóðfæraleikur.

tónleikarnir í heild voru sæmilegir, ágætasta þriðjudagsskemmtun. er ég að spá í að gefa þessu svona 6-7 stjörnur af tíu.. ekki meira né minna en það. góða nótt


skrifað af criticts 00:17 criticts

mánudagur, ágúst 29, 2005
loksins loksin

það var kominn tími til að einhverjar góðar auglýsingar litu dagsins ljós. er ég auðvitað að tala um auglýsingaherferð enska boltans þar sem, að öllum líkindum, breti er fenginn til að leika mann sem er yfir sig hrifinn af enska boltanum og sýnir ástríðu sína fyrir leiknum með ýmsu móti. eru þetta top auglýsingar sem fá einkunnina níu af 10 hér á criticts.tk


skrifað af criticts 19:41 criticts

sunnudagur, ágúst 28, 2005
afmæli criticts.tk

þá er sá dagur runninn upp að criticts.tk sé orðið eins árs. var haldið upp á það með miklu húllum hæ í gær þar sem kíkt var á oddvitann, glamor, karó og eitthvað í bæinn. var okkur gefinn afsláttur á oddvitanum af fyrsta umganginum af bjór og vil ég meina að það hafi verið vegna eins árs afmælis criticts.

annars var þetta ágætis kvöld, nokkrir fm-krú meðlimir í tómu tjóni.. sullandi bjór og meira til, en það verður vonandi allt staðið yfir þegar skólinn byrjar. veðrið var ágætt en heldur til kalt en ég held að allir hafi annars skemmt sér ótrúlega vel í þessari hliðarveislu criticts.tk


skrifað af criticts 19:21 criticts

þriðjudagur, ágúst 23, 2005
piano man upplýstur

að sjálfsögðu er criticts.tk að taka á ferskustu fréttunum og eins og hér hefur mikið verið rætt er piano man að láta af sér kveða.



"piano man" heitir réttu nafni andreas grassl og er tvítugur þjóðverji frá bænum prosdorf. eftir fjögra mánaða dvöl á spítala, án þess að segja orð hefur hann loksins rifið þögnina og sagt frá uppruna sínum. lögfræðingur grassl hefur gefið það út að grassl sé ekki alveg heill á geði og hafi það verið þess valdandi að hann mælti ekki orð frá munni.

nú er grassl kominn aftur til þýskalands eftir að það hafði verið fundið upp á foreldrum hans. þar með líkur sögunni af piano man og má með sanni segja að hann hafi verið gott frétta efni hér á criticts.tk þar sem þið gátuð lesið allt það helsta sem var að gerast í hans málum. hvort maður heyrir eitthvað meira af grassl getur aðeins tíminn leitt í ljós.. kannski hann gefi út geisladisk?


skrifað af criticts 23:48 criticts

föstudagur, ágúst 19, 2005
sirkus er sorp

ég hef tekið eftir því á síðustu dögum að sirkus er ekkert annað en sorp.. þessi stöð er re-run af gömlun stöð2 þáttum og þeir þættir sem ekki hafa verið á stöð tvö eru ekki upp á marga fiska. þar má nefna þætti á borð við joan of arcadia, rescue me og tru calling sem allt eru hroðalegir þættir. jafnvel heimasíða stöðvarinnar er hræðileg, http://sirkus.tv

ég hef líka tekið eftir því að stöðin er víst klikkuð sbr. auglýsingarnar í útvarpinu:"kl 8 taka bjánarnir í seinfeld við og kl hálf níu eru það klikkuðu vinirnir í friends. gummi mætir svo með alla vitleysingana sína í kvöldþáttinn kl 10"

eini bjarti punkturinn á þessari stöð er american dad. ég er þó búinn að sjá alla þá þætti svo ég fer ekki að taka upp á því að horfa á þá á sirkus. í stað þess að horfa á þessa ómögulegu stöð ætti fólk frekar að fara út á video leigu og taka myndina city of god. það er með betri myndum sem ég hef séð í langan tíma og er þetta ekki mynd byggð eftir sömu leiðinlegu bíómyndaformúlunni og er í hollywood enda er þessi mynd ekki bandarísk. kvikmyndataka og klipping í myndinni er framúrskarandi auk þess að söguþráður myndarinnar sé hreint út sagt magnaður. fær city of god hiklaust tíu stjörnur af 10 og ættu allir sem eru komnir með leið á þessari bandarísku þvælu að tékka á henni.

city of god:**********


skrifað af criticts 00:00 criticts

miðvikudagur, ágúst 17, 2005
sonic youth

"þegar þessu hefðbundna tónleikaprógrammi var lokið, tók við korters fyrsta flokks tilraunastarfsemi hjá trommaranum steve shelley, bassaleikaranum kim gordon, og gítarleikurunum lee ranaldo, thurston moore, og jim o’rourke. jim spilaði reyndar með snúrur, effekta og kontakt-míkrófón sem hann hafði uppí sér, og engdist fram og aftur í óstýrilátum kippum og fettum. kim notaðist við hitateppi úr áli sem hún vafði um hljóðnema og lét braka og bresta í öllu. thurston og lee notuðu báðir gítarhávaða og væl og óhljóð úr mögnurum. trommarinn steve gerði svo útslagið með því að henda öllu tilfallandi í trommusettið sitt, og endaði á því að vera að henda skónnum sínum til að heyra hvernig það hljómaði. Þarna voru ansi margir viðstaddra farnir að halda fyrir eyrun, en þeim sem var sama röltu skömmu síðar út í nóttina með drunur fyrir eyrunum í boði sonic youth."

það hefðir aldeilis verið fróðlegt að fara á þessa tónleika og er ég alveg til í að skella mér á tónleikana á morgun.. fæ bara flugvél sem kemst suður og aftur til baka um kvöldið


skrifað af criticts 12:35 criticts

mánudagur, ágúst 15, 2005
holocoulust

síðustu helgi var farið í útilegu sem var fín, ekkert meira og ekkert minna en það.. siggi sofandi strikes again þar sem hann ýtti á vitlaust þrep á bobcatinum sem varð til þess að hann sturtaði fullri skóflu af salla inn í bobcatinn og tók það hálftíma að hreinsa.

svo eru sonic youth að fara að spila á nasa á morgun og á miðvikudaginn og væri ég mikið meira en til í að fara á aðra hvora tónleikana.
meira var það bara ekki.. gúrkutíð á criticts.tk


skrifað af criticts 23:32 criticts

þriðjudagur, ágúst 09, 2005
bumm

margar hef ég heyrt afburðar góðar afsakanir til að sleppa við vinnu, t.d. að vera með meltingatruflanir og geta þar af leiðandi ekki talað etc. en í dag heyrði ég þó þær allra bestu..

"veistu mig dreymdi svo hræðilega martröð að ég get ekki mætt í vinnuna."
auk þess að einn daginn hringdi stjáni í þennan sama mann og spurði hann hvernig gengi að saga í hellur og maðurinn svaraði:"fínt bara, ég er samt eiginlega ekki í vinnunni en mig dreymdi að ég hefði mætt í vinnuna og væri að vinna."

maðurinn er siggi sofandi og má segja að hann beri nafn með réttu


skrifað af criticts 22:29 criticts

mánudagur, ágúst 08, 2005
út að borða

götu grillið (tilraun 2) það sama var panntað og í fyrraskiptið, 140 gr hamborgari, og samanburður er eitthvað á þessa leið:

ástæða þess að ég fór aftur á götugrillið var vegna brauðkaupsafmælis foreldra minna, sem splæstu þar af leiðandi og ekki hægt að hafna því. í fyrri ferð minni nú á þessu ári var hamborgarinn stór, en brauðið svo lítið að það þakti ekki allan hamborgarann. lítið var um franskar og var þetta allt mjög einmannalegt á disknum. að þessu sinni var hins vegar hamborgainn stór, tvöfaldur sem ég tók ekki eftir í fyrri ferð minni, auk þess sem brauðið náði yfir allan hamborgarann. Sósan var mikil og góð og frönskurnar þöktu allan diskinn svo varla sást nein staðar á botn disksins. fantað þarna er unaðslegt, ekki eins og crappy fantað í búðunum, þetta var meira litalaust og svipað því sem var í svíþjóð.

maturinn að þessu sinni var því mun mikið betri en í fyrra skiptið og bætir götu grillið fjöður í hatt sinn fyrir þessa frammistöðu. ég held að málið með fyrri ferðina hafi verið að þjónustúlkan sem var þá var á túr, vel skapstygg og líkaði það ekkert við það að við værum að fara að fá okkur að borða þarna. henni tókst að klúðra öllu sem hægt var að klúðra í sambandi við matinn auk þess þar sem hún kom með matinn á vitlausum tíma. í kvöld sá ég þessa þjónustustúlku ekki og vona ég bara að það hafi verið búið að reka hana..


skrifað af criticts 21:00 criticts

sunnudagur, ágúst 07, 2005
you´re on canded camera

nú þegar ég renn í gegnum símann minn að þá sé ég að ég á nokkuð gott safn af myndum þar sem viðkunnanlegir einstaklingar eru dauðir/"sofnaðir" eftir hressilegt öl þamb. það er nokkuð ljóst að þegar ég kemst í bluetooth og eftir að safnið hefur aðeins stækkað að þá verða þessar myndir birtar hér á criticts.tk

svo varið ykkur, sérstaklega þið sem eruð að fara í útilegu næstu helgi.. þar verð ég með símann minn tilbúinn í að mynda "sofandi" fólk..


skrifað af criticts 19:20 criticts

föstudagur, ágúst 05, 2005
3.t einhver?

þá er það official, ég er í 3.t

t fyrir thorvald? maður spyr sig hvort það hafi verið pælingin þegar þau settu mig í þennan bekk. nú hef ég fengið staðfest að t er frönskubekkur.. húha!


skrifað af criticts 19:52 criticts

miðvikudagur, ágúst 03, 2005
diskar júlí mánaðar

þar sem ágúst mánuður er hafinn er réttast að segja stuttlega frá plötum júlí mánaðar.
þar eru íslensku plöturnar plata ársins með hljómsveitinni ég, love you like you elskar mig með hljómsveitinni hölt hóra og hljóðlega af stað með hljómsveitinni hjálmum. fór ég á tvenna tónleika með hjálmum síðustu helgi og voru þeir báðir sönn skemmtun. fékk ég í hendurnar plötu frá hölt hóru sem er bara afbragðs góð, sex laga plata og síðast en alls ekki síst plata ársins með hljómsveitinni ég. það er plata sem allir ættu að verða sér út um því þetta er stórskemmtileg plata í alla staði og allir ættu að finna eitthvað á henni við sitt hæfi.

ekki er aðeins hægt að nefna íslenskar plötur því einnig er ég búinn að hlusta á ýmislegt erlent í þessum mánuði. þar ber helst að nefna eels, primal scream og sonic youth. nýja plata eels, blinking lights and other revelations, er flott plata með flottum hljómborðsleik auk strengja hljóðfæra á við kontrabassa og fiðlur. primal scream, gömul og reynd bresk hljómsveit sem ég tók upp á því að hlusta aðeins á og má segja að það sem ég er búinn að heyra er nokkuð gott. þó er það sem primal scream gaf út fyrir 1991 ekki nein eðal tónlist en þó áhlustanleg. að lokum sonic youth, nýji diskurinn sonic nurse er flottur og væri ég alveg til í að fara á tónleikana með þeim sem haldnir verða í reykjavík um miðjan ágúst.

fyrir þá sem eru latir og nenna ekki að verða sér út um heila diska að þá skal ég taka eitt skemmtilegt lag af hverjum diski og skrifa nafn þess hér.

hjálmar - borgin
hölt hóra - party through the night
ég - eiður smári
eels - trouble with dreams
primal scream - kill all hippies
sonic youth - stones

allar plöturnar sem nefndar voru hér fá gæðastimpil criticts..


skrifað af criticts 20:39 criticts

þriðjudagur, ágúst 02, 2005
hvað má og hvað má ekki?

skemmtilegt væri nú að komast í bók lögreglunnar um hvað má og hvað má ekki. nú um versló var vinnufélagi minn tekinn af lögreglunni fyrir að láta sig fljóta niður eyjafarðaránna á stórri vindsæng með 4 stykki af bjór meðferðis. er ég nokkuð viss um að þeir hafi ekki verið að taka hann fyrir ofhraðann akstur þó maður viti aldrei hvurs lags hraða maður nær á vindsæng. eitthvað fannst þeim athugarvert við ferðir hans á ánni og var hann tekinn og keyrður heim.

eins og ég sagði hér fyrr væri gaman að fá að sjá hvað má og hvað má ekki samkvæmt lögreglunni, t.d. má ég ríða á hest innanbæjar eins og tíðkaðist fyrr á dögum? mætti ég fara á svifdreka fram af hæstu byggingum akureyrar?


skrifað af criticts 21:25 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3