sunnudagur, október 31, 2004
nóvember

þá er komið nýtt look á síðuna eins og einhver hefur kannski tekið eftir en verður þetta sennilega útlit síðunnar út nóvember mánðuð nema eitthvað setji strik í reikninginn.

þar sem nóvember er mánuður þegar dimmir fljótt úti að þá fannst mér alveg tilvalið að hafa lit síðunnar svartan og vildi ég líka breyta logo-inu eitthvað en það gæti verið að það verði öðruvísi. fer bara allt eftir því hvernig nýja útlitinu verður tekið.


skrifað af criticts 20:34 criticts

laugardagur, október 30, 2004
sjallinn

eins og vitað var að þá tók ég mig til og skellti mér í sjallan í gær. með þeirri för minni freistaði ég þess að fara á afburðar tónleika með ensími og brain police.

mér til undrunar voru það meðlimir ensími sem stigu fyrstir á svið en var ég búinn að búast við brain police fyrst. þetta er kannski skiljanlegt þar sem vinsældir ensími hafa dalað með árunum en brain police njóta mikilla vinsælda nú á dögum.

um ensími er það að segja að þeir spiluðu ágætlega og soundaði þetta allt mjög vel, en.. verð ég að segja að þeir hafi verið með óveju lélegt val á lögum sem þeir spiluðu. mátti jújú alveg heyra þekkt lög en þó var mikið um lög í þyngri kanntinum sem ekki höfðu heyrst áður og minntu þessi lög mig mikið á vampírur, veit ekki afhverju en þetta voru bara eitthvað vampíruleg lög. að mínu mati er það allt í lagi þegar hljómsveit tekur kannski eitt nýtt lag á tónleikum en þetta var fullmikið. tónleikar eru að mínu mati til að spila lög af útkomnum plötum frá hljómsveitinni þannig að fólk sé með á nótunum hvað er í gangi. þarna tókst það alls ekki, fólk virtist gáttað og myndaðist aldrei nein sérstök stemmning. þannig að á heildina litið var hljómsveitin góð og skilaði lögunum vel frá sér en aftur á móti var lagaval lélegt og vegna þess hef ég ákveðið að gefa ensími 3 stjörnur af 4 mögulegum. ég bjóst við svo miklu meiru af þeim.

svo voru það meðlimir hljómsveitarinnar brain police sem mættu á sviðið. varð það strax augljóst að meirihluti mannfjöldans sem saman var kominn í sjallan var þarna mættur til að hlusta á brain police því um leið og þeir mættu á svið að þá fylltist gólfið. ég er ekki mikill brain police aðdáandi sjálfur en þeim tókst að skemmta flestu hinu fólkinu mjög vel og skapa mikla stemmningu. þeir spiluðu vel og þó sérstaklega gítarleikarinn og trommarinn sem fóru á kostum. að mínu mati fá þeir 3 stjörnur af fjórum, en er ég nokkuð viss um að margir séu mér ósammála um það. þannig er það nú bara.

einnig brutust nú reyndar út slagsmál í enda tónleikanna þar sem kom til kýlinga og sparka í kvið og andlit, en það var svo stoppað af. þó fóru menn út sjálfviljugir og héldu, eftir því sem best er vitað, slagsmálunum áfram utandyra. ekki er vitað hvernig þau enduðu.

ensími: ***
brain police: ***




skrifað af criticts 17:50 criticts

föstudagur, október 29, 2004
heimskringla

þetta var nú aldeilis skrítinn skóladagur, búinn kl hálf 12. ég hélt að það kallaðist að vera á félagsfræðibraut. jæja, þetta er þá sennilega nærst því sem ég kemst að vita hvernig er að vera á félagsfræðibraut. þannig að þetta var mjög fróðleg upplifun og ekki svo slæm heldur. gæti alveg vanist svona stuttum skóladögum. þannig að ég hef ákveðið að gefa félagsfræðibrautinni alveg heilar 2 stjörnur af fjórum mögulegum.

félagsfræðibraut: **


skrifað af criticts 13:51 criticts

fimmtudagur, október 28, 2004
shit luck

nú hef ég ekki bloggað í góða 8 daga og er það bara ágætt held ég.
fer að byrja aftur að gagnrýna bráðelega, er búinn að sjá, heyra og upplifa ýmsa hluti á þessum 8 dögum sem hægt er að gagnrýna. einnig hafa borist inn nokkrar tilbeiðnir um gagnrýni á hlutum og verður reynt að redda því eftir bestu getu.

en á morgun verður skellt sér í fínu fötin og farið á tónleika með ensími og brain police. þar sem ensími er ein sú allra besta hljómsveit sem ég veit um að þá er ég nokkuð viss um að ég eigi eftir að skemmta mér vel á þessum tónleikum og án efa gagnrýna þá. en ég bara hvet alla til að skella sér á þessa tónleika í sjallanum á morgun, föstudaginn 29. okt og eru miðar seldir í forsölu í gamestofunni, þar sem að holan var eitt sinn, á 1500 kr en miðaverð er 1800 kall við inngang. einnig má þess geta að stjórn ma var svo elskuleg og reddaði nemendum miðanum á 1000 krónur, sem er ekki neitt fyrir svona eðal tónleika.

svo má einnig geta þess að ég var í skálaferð með 2.x dagana 27. og 28. okt. var sú ferð mjög fróðleg, skemmtileg en líka dapur. það var allt frábært og yndislegt, ánægjan skein úr andlitum allra og menn sprautuðu rjómum upp í eyrun á einstaklingi sem vitað var að tæki því ekki vel. frábær skemmtun. svo var hæfileikakeppni sem by the way mitt lið, sítrónurnar, unnum með miklum tilþrifum. en seinni daginn skall á hörmung. var ég búinn að vera að ljósmyna á fullu, kominn með um 160 myndir úr öllum áttum og var að taka fleiri. en svo rak ég myndavélina upp í ljós, sem voru alltof lágt niðri, með þeim afleiðingum að myndavélinn féll úr greipunm mínum og beint á gólfið. skekktist linsan ágætlega mikið og er myndavél nú ónothæf og á sennilega ekki eftir að vera hægt að laga hana. ég og myndavélin áttum þó góðar stundir saman og mun ég minnast þeirra alla mína ævi. meigi hún hvíla í friði. en skálaferðin sjálf var frábær og fær hún hiklaust 4 stjörnur af fjórum mögulegum. fær matarnefnd og skemmtunar nefnd mikið hrós fyrir framlag sitt í ferðinni. má kannski búast við myndum hér á síðunni eða einhverstaðar annarstaðar.

skálaferð: ****


skrifað af criticts 17:41 criticts

miðvikudagur, október 20, 2004
hate list

hef ég tekið upp á því að hafa hér örlítinn hate list þar sem ég get sett þá hluti sem eiga svo sannarlega heima þar.

fyrst af öllu til að fara á þennan lista er þetta ömurlega maíahí maíaha lag með ozone sem heitir víst dragostea din tei. þetta lag er það versta sem hefur komið í þennan heim og hafa fréttir borist af því að fleiri hafa látið lífið aðeins við það að hlusta á þetta lag en í báðum heimstyrjöldunum til samans. er því ekki skrítið að allstaðar í heiminum er verið að banna þetta lag og sagt að það sé hættulegra en byssur og malaría.

þó að lagið eitt og sér sé hörmung að þá er myndbandið ennþá verra. þrír kallar upp á flugvél að syngja maíahí maíaha, hreint út sagt deadly..

því legg ég til að íslendingar fari eftir fordæmi margra annara þjóða og banni þetta lag hér á landi.


skrifað af criticts 17:23 criticts

mánudagur, október 18, 2004
snjór

þar sem snjór er umtalaður á öllum bloggum að þá hef ég ákveðið að láta ekki mitt eftir liggja og vera svolítið mainstream þar sem ég er það aldrei.

snjór er fínn, en hann á heima í fjallinu og ekki í bænum. snjór í bænum er slæmt mál sem leiðir það af sér að ég get ekki keyrt minn græna renault mégan þar sem hann er aðeins framhjóladrifinn og á naglalausum snjódekkjum og á því lítið í svellin sem nú einkenna vegi akureyrar bæjar.

þannig að ég legg að til að fólk akureyrar bæjar taki höndum saman og taki sér skóflu í hönd. er plan mitt það að hver manneskja sem komin er yfir vissan aldur, sem enn er ekki ákveðinn, taki sig til og moki alveg slatta og svo koma stórar gröfur, litlir bob cat-ar og allskyns flutningabílar og flytja snóinn upp í fjall. þá verður enn þá meiri snjór upp í fjalli en er núna og þar af leiðandi miklu skemmtilegra fyrir alla sem eru á snjóbrettum, skíðum eða einhverskonar skíða iðkunar apparötum.

er einmitt mjög farið að hlakka til að komast á snjóbretti, svo við skulum drífa í þessu!


skrifað af criticts 19:01 criticts

laugardagur, október 16, 2004
græni hatturinn

ég tók mig til og skellti mér á græna hattinn þar sem ómaði tónlist frá hljómsveitunum lada sport, tony the pony, kingstone og bob. hef ég ákveðið að fjalla hér stutt um þessa tónleika.

# það er nokkuð ljóst að maður þarf ekki flotta hárgreiðslu til að spila sérstaka og nýjungagjarna tónlist. þetta sannaði hljómsveitin bob svo sannarlega. meðlimir bob eru frá reykjavík og komu hingað norður til þess að kynna akureyringum og öðrum sem staddir voru á græna hattinum sína óvenjulegu tónlist. tónlist þeirra var eitthvað á þá leið að þetta var mjög svipað því þegar maður er að leika sér í tónlistar forritinu acid og setur alla taktana saman, sem verður því valdandi að mikil óhljóð heyrast. gott dæmi um frumleika hljómsveitarinnar er að annar gítarleikarinn spilaði á gítarinn sinn með fiðluboga en hafa þó aðrar erlendar hljómsveitir gert þetta líka, t.d. led zeppelin. en þetta var fróðlegt og spes.

# hljómsveitin kingstone stóð fyrir sínu eins og búast mátti við og naut ég þess að hlusta á þá. ég verð samt að segja að hljóðkerfið var ekki upp á marga fiska og heyrðist söngurinn afar illa. jón gísli fór á hamförum á trommunum, andri barði bassastrengina og þandi raddböndin með glæsibrag og viktor sló gítarstrengina og söng af stakri snilld. varð viktor og hljómsveitin þó fyrir því óhappi að það fór öryggi í gítar magnaranum þannig að það varð smá töf á fluttningi þeirra. það voru þó þeir andri og jón gísli sem skemmtu fólki á meðan með tónlist sem þeir sömdu á staðnum eftir því sem ég best veit, smá flipp.

# hlustaði ég ekki mikið á tony the pony þar sem ég var úti að fá mér ferskt loft en það sem ég heyrði var bara nokkuð gott. samt sum lög nokkuð svipuð en ég þarf bara að hlusta eitthvað aðeins meira á þá. þetta er örugglega hljómsveit sem venst vel með tímanum.
# svo var það hljómsveitin lada sport sem endaði þetta allt. Einkennir hana ekki bara flott nafn og frábær hljóðfæraleikur heldur eru meðlimir hennar all svakalegir. það var skemmtilegt að horfa á þá og hlusta og er ég ekki frá því að það hafi verið lada sport og kingstone sem stóðu upp úr á þessum tónleikum.

Margt var um fólk á græna hattinum þegar fyrsta hljómsveitin steig á svið en eftir að kingstone voru búnir að spila fór fólkið hægt og bítandi að tínast út í hópum og misstu þar með af eðal tónlist frá hljómsveitinni lada sport. en þetta var bara hin ágætasta skemmtun og gæti vel verið að maður láti sjá sig á öðrum tónleikum þessara hljómsveita þegar þeir verða einhvern daginn

bob: **
kingstone: ***
tony the pony: **
lada sport: ***




skrifað af criticts 20:18 criticts

miðvikudagur, október 13, 2004
bömmer

því miður verð ég hér með að tilkynna að nýjungin sem átti að koma á þessa síðu mun ekki koma eftir allt. Vegna ýmsa lögsókna og fjársekta sem þessi nýjung gæti borið með sér hef ég neyðst til þess að hæta við hana.

ég verð bara að koma með eitthvað annað í staðinn. eitthvað nýtt mun koma.


skrifað af criticts 19:15 criticts

mánudagur, október 11, 2004
hvort

perus oriam
eða
prior heath?


skrifað af criticts 13:11 criticts

fimmtudagur, október 07, 2004
nýtt á criticts.tk

hér er á ferð nýjung sem verður vonbráðar kynnt enn betur hér á criticts.tk og mun hún gjörbreyta öllu í heimi nýjunga og bætinga í sambandi við þennan vef og bara allt annað sem til er. er þetta svo frábær breyting að þið fáið að vita betur um hana þegar hún kemur á síðuna.

ég veit að þið bíðið spennt


skrifað af criticts 21:44 criticts

sunnudagur, október 03, 2004
collateral

hér er á ferðinni mynd sem fjallar um leigumorðingja sem ekur á milli fórnalamba sinna í leigubíl sem keyrður er af manni að nafni max (jamie foxx) og verður max að reyna allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að vincent (tom cruise) nái að drepa þá sem hann ætlar sér og einnig að koma sjálfum sér í gegnum alla þessa martröð á lífi.

þetta er myndin í hnotskurn og verð ég að segja að hún er bara nokkuð góð. jamie foxx er alveg þolanlegur og þrátt fyrir að ég sé ekki mikill fan að þá er hann bara bærilegur í þessu hlutverki. svo er það náttúrulega tom cruise sem fer á kostum sem hinn ofursvali leigumorðingi vincent sem er svona know-it-all gaur sem gerir myndina mjög skemmtilega. hann hefur verið að vinna sem sjálfstæður leigumorðingi í 6 ár og lætur aldrei koma sér á óvart, hefur semsagt alltaf lausn á öllu og lætur engan bilbug á sér finna. jamie foxx leikur mann sem hefur verið að keyra leigubíl í 12 ár og segir alltaf að það sé bara tímabundið þangað til að hann geti byrjað með sitt eigið fyrirtæki. þetta er basicly svona gaur sem þykist vita allt um allt, voða veraldarvanur maður en veit ekkert hvað hann á að gera við sjálfan sig.

myndatakan í myndinni er mjög góð og frumleg og virðist sem sumar senur séu bara teknar upp með venjulegri handcameru sem gerir þær mikið raunverulegri og flottari.

annars er söguþráðurinn í myndinni fínn en mér leist mjög illa á endinn. endirinn var alls ekki góður of hefði verið hægt að enda myndina miklu betur. ætla ég ekki að fara að upplýsa það hvernig hún endar þar sem sennilega einhverjir sem lesa þetta eiga eftir að sjá myndina og vil ég ekki skemma fyrir þeim.

en eins og ég segi að þá er þetta bara nokkuð góð mynd á heildina litið og hef ég ákveðið að gefa henni 3 stjörnur af 4 mögulegum og er það aðalega endirinn sem dregur þessa mynd niður.

collateral: ***


skrifað af criticts 21:44 criticts

laugardagur, október 02, 2004
nezitic.tk

þá er komið að því. það sem tveir menn hafa verið að bíða eftir.. hin eina og sanna umfjöllum um heimasíðuna nezitic.tk. ég hef tekið mér minn tíma og skoðað síðuna og túlkað hana út frá uppbyggingu hennar, bloggfærslum og mörgum öðrum smáatriðum. þannig að hér er afraksturinn.

# það fyrsta sem blasir við manni þegar farið er á nezitic.tk er mjög svo svartleit síða. segir það margt og getur þýtt ýmsa hluti svo sem svartsýni, bjartsýni, ögrun eða þunglyndi.

# mynd síðunnar, lemmonhead, er mjög symbolísk fyrir þessa síðu og finnst mér hún vera táknræn fyrir villimanninn í stjórnendum vefsins, sem er jú þó nokkur.

# tenglar vefsins eru framúrskarandi og skera sig augljóslega úr hvað varðar gæði á síðunni. þessi ljósi litur kallar fram það besta í stjórnendum vefsins. og er þó sérstaklega skemmtilegt að sjá hvað það eru líka frábærir tenglar yfir einstaklinga og síður. fá þeir nezitic menn sko plús í stílabókina fyrir það.

#teljarinn er lala og það sama má segja um komment kerfið en finnst mér samt komment kerfið vera byggt af frekar ótraustu fyrirtæki og verða ekki nefnd nein nöfn. þetta er svipað og að treysta epli fyrir öllum peningunum sínum.

# bloggfærslur þeirra hafa sínar góðu og slæmu hliðar og sína góðu og slæmu daga, bara svona eins og gengur og gerist. hafa þó bloggfærslur síðustu misseri verið frekar stöðugar og hefur maður alveg getað reitt sig á að það sé komin ný færsla á hverjum degi. þó hefur annar stjörnandinn verið að brasa mikið í sinni eigin myndasíðu og hefur þar af leiðandi skrifað eitthvað minna inn á nezitic.tk.

# uppbygging síðunnar er með besta móti og hafa stjórnendur vefsins augljóslega lagt mikið á sig við að gera þennan vef að því sem hann er í dag.

þannig að þegar þessir punktar hafa verið teknir saman og vandlega hugsaðir í gegn hef ég komist að þeirri niðurstöðu að nezitic.tk fær fjórar stjörnur af fjórum mögulegum og er þar með ágæt síða og mæli ég eindregið með því að fólk kíkki á þessa fjögrastjörnu síðu.

nezitic.tk: ****




skrifað af criticts 02:43 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3