föstudagur, september 30, 2005
frost og kuldi

það er sennilega fátt verra en mikill kuldi og jafnvel frost þegar út í það er farið. hér koma nokkrar blákaldar staðreyndir um það hversu bannvænn kuldi getur verið.

1. í fyrsta lagi að þegar maður er kominn út í mikinn kulda og frost að þá getur maður átt hættu á því að verða kalt ef maður er illa klæddur og jafnvel ef frostið er nægilega mikið að þá dugar ekki að vera vel klæddur. eftir mikinn tíma í miklum kulda getur maður átt það til að jafnvel deyja úr kulda.

2. en bein tengsl við kulda eru ekki það eina sem getur dregið mann til dauða. kuldinn og frostið er lumskt og sem dæmi um það má nefna að frost getur fest sig á rúðum bíla og vegunum sem þeir keyra á. hefur þetta afbrigði orðið þó nokkrum að bana í gegnum tíðina .

3. þó er til þriðja afbrigðið sem er mun lumskara en öll hin. þegar maður er búinn að vera mikið úti í miklum kulda, jafn vel að vinna, að þá er fátt annað betra en að komast í sjóð heitt bað. en eftir smá tíma í baðinu þá getur vellíðunar tilfinningin orðið svo mikil að maður lognast útaf. þetta er stórhættulegt þar sem maður getur beinlínis drukknað.

svo ég segi að við eigum að fara varlega og segja nei við kulda og frosti


skrifað af criticts 19:54 criticts

mánudagur, september 26, 2005
klukk

svo virðist sem criticts.tk hafi verið klukkað

criticts.tk er:
1. framúrstefnuleg og líklega ein sinnar tegundar
2. fréttamiðill út í eitt
3. tónlistargagnagrunnur, hvort sem um er að ræða tónlistagagnrýni eða tónlist til niðurhals.
4. hipp og kúl

til að vera anti-mainstream þá ætla ég aðeins að klukka einn til baka og er það góðvinur minn, the gas guy.. ég hef verið að fylgjast með þessum manni í nokkurn tíma og er hann nokkuð áhugaverður.

"the online journal of a man and his daily and weekly struggles with 40oz-guzzling vagrants, gasoline pump drive-offs, cantankerous coworkers, and eighteen-year-old gangsta potheads who don't think i can spot their fake id's. it's a tennessee tragedy, here for your amusement."

þið getið fylgst með gas guy á http://gasguy.blogspot.com/


skrifað af criticts 18:51 criticts

mánudagur, september 19, 2005
vores junger

alltaf er það jafn áhugavert að það kosti 1000 krónur á íslenskar bíómyndir. það var þó svo sem ekkert að því þar sem myndin strákarnir okkkar var alveg þess virði. ég hafði heyrt að þetta væri bara hommaklámmynd en hún var það aldeilis ekki. það var jú eitthvað um nakta karlmenn og ein og ein hommasena en það er ekkert sem fólk þarf að láta fara fyrir brjóstið á sér. myndin var fyndin og söguþráðurinn var nokkuð góður, ásamt því að leikararnir stóðu sig skrambi vel. ég ætla að gefa þessari mynd níu af 10 í einkunn, þannig er það.

ég setti líka 2 ný lög í útvarpsdálkinn, þeir skoða það sem vilja.


skrifað af criticts 00:40 criticts

mánudagur, september 12, 2005
yotech

ég vissi nú alltaf að 10-11 væri lítið annað en okurbúlla, en 159kr fyrir eitt lítið, grænt epli.. það finnst mér nú full gróft. ég er að fara að slá garðinn hjá jóhannesi í bónus núna og ef ég rekst á hann að þá ætla ég að ræða þessi mál við hann, þar sem baugur á nú 10-11, um hve ótrúlega dýr eplin eru í 10-11


skrifað af criticts 11:56 criticts

fimmtudagur, september 08, 2005
útsof

að sofa út: þetta er alls ekki ofmetið hugtak og það að sofa út er bara með því besta í þessum heimi. að þessu komst ég svo sannarlega þegar ég svaf út í morgun því nú er vinnan öll. hlakka ég mjög til að sofa út á morgun og vona ég að það verði jafn ánægjulegt og það var þennan morguninn


skrifað af criticts 14:12 criticts

þriðjudagur, september 06, 2005
bíó

broken flowers, stórfurðuleg epísk mynd sem krefst sennilega þess að maður horfi tvisvar á hana til að ná öllum smá atriðunum. annars fínasta mynd, nokkuð mikið um fade out og fade in, ásamt stuttum "lengingar atriðum". eins og ég sagði, ágætasta skemmtun en ekkert meistaraverk.


skrifað af criticts 00:06 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3