sunnudagur, nóvember 28, 2004
nýtt system

jæja, vegna margra kvartanna sem hafa borist mér í tölvupósti og pósti á bréf formi, skiltum sem eru í tugatali fyrir utan heimili mitt og hótana sem mér hafa borist í síma, að þá hef ég ákveðið að breyta stjörnugjafakerfi mínu. nú verða gefnar stjörnur frá einum og uppí 9 þar sem 9 er best eins og alltaf og einn er lægsta einkunn. mun ég einning verða miskunnarlausari en nokkru sinnum fyrr og þurfa hlutir sko aldeilis að vera í topp standi til að fá níu.

það fyrsta sem ég hef tekið að mér að gegnrýna með mínu nýja kerfi er aksturshæfileikar birkirs k. maðurinn sem mest hefur kvartað undan stjörnugjöfum mínum verður sá fyrsti sem er gagnrýndur með því nýja. tilviljun? veit það ekki. en allavega var ég að keyra með birki ásamt þremur öðrum ungum herramönnum og ákveður sá umtalaði birkir að bregða sér á hinn gífurlega skemmtilega rúnthring akureyrarbæjar. vill svo ekki betur til að hann pikkfestir bílinn á vart hálfsmeters hárri hraðahindrun sem ætti þó að teljast þó nokkuð mikið afrek, en þó ekki nærri jafn mikið afrek og að takast að festa bílinn aftur á sömu hraðahindrun á næsta hring. hægt er að lesa nánar um þetta joy ride á www.nezitic.tk.

ætla ég mér að gerast svo kræfur og gefa aksturshæfileikum hans heilar fjórar stjörnur af níu en er þó nokkuð augljóst að skemmtanagildi þess að vera í bíl með birki þegar hann er að keyra fær alveg heilar átta stjörnur af 9 mögulegum. alltaf lendir maður í ævintýrum með birki í bíl.

aksturshæfileikar: ****
akstursskemmtun: ********



skrifað af criticts 21:49 criticts

fimmtudagur, nóvember 25, 2004
fm-krú

þá er komið að því að skrifa þessa eftirsóttu gagnrýni um hið umtalaða fm-krú. byrjum á aðalatriðunum; samansafn af venjulegum drengjum sem eru engu öðruvísi en meðalmaðurinn en eiga það þó allt sameiginlegt að vilja verða hnakkar, fara saman í ljós og versla sér þröngar gallabuxur. hefur hver meðlimur þessa hóps fengið nafn sem hæfir hnakka og eru tölustafir einkennandi fyrir nöfnin og því hærri sem tölurnar eru því hærra ertu settur í virðingu og völdum.

þessum hóp er stjórnað af manni að nafni ragnar hólm, alias, raggzmastah3000. er hann hæst settur og allir sem á eftir honum koma hafa lægri tölur í sínum nöfnum. er það í verkahring ragnars að finna nöfn á nýja meðlimi, skipuleggja hóptíma í ljós, ráðleggja mönnum um klæðaburð og svo margt margt meira.

krúið sjálft er þó nokkuð ungt að árum en hefur þó alltaf stækkað og stækkað. opinberlegt lag fm-krúsins er lag að nafni dragostea din tei með hljómsveitinni ozone. verð ég að segja að ég er mjög á móti þessu lagi þó að það komi þessari gagnrýni ekkert við, varð bara að koma þessari skoðun minni á framfæri. en já, er það semsagt spiað á þeirra samkomum. má sem dæmi um það að í skálaferð annars x tóku nokkrir meðlimir þessa hóps tóku sig til og héldu einhverja mínútna party á klukkutíma fresti þar sem þetta lag dundi í græjum staðarinns. eftir því sem ég fékk best vitað voru þeir með 5 útgáfur af þessu lagi. ein útgáfa er nógu slæm að mínu mati en allir hafa mismunandi áhuga á tónlist. en hvað gerðist í þessum party-um þeirra veit enginn um nema þá þeir sjálfir. kæri ég mig ekkert um að vita hvað gerðist bakvið hurð þess herbergis í skálanum sem nýtt var fyrir þessi party en af ljótu sýnidæmi sem ég varð fyrir að þá er þetta eitthvað sem ég var nokkuð viss um að ég vildi eiga engann þátt í þessari samkomu. verður nafn þessara party-a ekki nefnt hér þar sem mér finnst þetta mjög ósmekklegt nafn.

af annari starfsemi félagsins er að frétta að þeir séu avált að skipuleggja hópferð í ljós sem einhvernvegin fer alltaf í vaskinn en þó trúa þeir statt og stöðugt að hún eigi eftir að verða að veruleika einn daginn. einnig hafa þeir ákveðið að gera boli merkta fm-krúinu og á honum mun vera lógo krúsins, nafn meðlims og mottó hópsins sem hljómar svo: "beauty is pain" verða þessir bolir gerðir handa hverjum meðlimi en þó geta sennilega áhugasamir, sem ekki eru tilbúnir að binda sig fm-krúinu, fengið gestabol.

talað er um að hin umtala heimasíða þeirra muni koma upp fyrr en fólki grunar en þó er ekki víst hver sér um smíði hennar. hef ég verið bendlaður við það verk en hef ég þó neitað nokkurri aðild að því og mun ég enn gera það sama hversu mikið ragnar tuðar í mér.

í heildina litið er þetta bara ágætt samansafn af manneskjum sem eru að reyna að verða hnakkar og eru á ágætri leið að verða það. er þetta ágætis framtak hjá þeim og sennilega mikil hjálp fyrir þá sem vilja verða hnakkar en þora því ekki vegna fordóma og margra annara hluta. þarna geta þeir leitað í félagsskap hjá mönnum sem eru á saman plani og þeir sjálfir. svo ég hef ákveðið að gefa þessum hóp einar fjórar stjörnur af fjórum mögulegum fyrir gott framtak og að vera ekkert að fela hverjir þeir eru.

fm-krú: ****




skrifað af criticts 01:38 criticts

mánudagur, nóvember 22, 2004
mahir

úff úff, var það hún systir mín sem kom mér í kynni við síðu mahirs. www.ikissyou.org er síðan hans og er hún í heimsmetabók guinnes fyrir það að vera aðsóknarmesta síðan árið 2001. svo ég komi nú með eitt stutt quote af síðunni:

"just before christmas 1999, mahir cagri decided he should have his own website. barely a year later, the friendly turkish teacher and journalist is an internet icon. he's been flown all over the world, made e-mail pen pals like meg ryan and david bowie, starred in a british internet firm's ad campaign, been rated as one of the top 100 celebrities in the world by forbes magazine, and been spoofed on saturday night live. his simple website is even in the 2001 guinness book of world records for the most visits to a personal homepage, with an estimated 12 million hits."

ég verð að segja að ég hló dátt þegar ég fór að skoða þessa síðu og kynna mér hver mahir er. það er nokkuð augljóst að það er aðeins til einn mahir og hann er sko þvílíkt internet celeb. endilega tékkið á síðunni hans með því að smella hér

bara ef ég gæti verið eins og mahir. "ma·hir (maa-heer) : 1. first internet celebrity of the world. 2. king of blogging. " fær hann hiklaust fjórar stjörnur fyrir að vera svona "frábær".

mahir: ****




skrifað af criticts 23:56 criticts

laugardagur, nóvember 20, 2004
nei svo er ekki

hef ég ákveðið að henda út dótakassanum þar sem að hann fékk ekki mjög góður viðtökur plús það að hann passaði engan veginn inná síðuna. var ég að sjá hvernig síðan mín er í 17" skjáumn og hún er ekki alveg eins og ég sé hana heima. dótakassinn sást bara hálfur og eitthvað vesenis þannig að nú er hann farinn.


skrifað af criticts 15:17 criticts

föstudagur, nóvember 19, 2004
nýtt

hef ég ákveðið að setja upp þennan litla dótakassa þar sem þið getið valið um marga marga mismunandi leiki til að spila ef ykkur lystir. verður þessi dótakassi í takmarkaðann tíma þar sem hann passar alls ekki við síðuna (hvað stílinn varðar) en það fer bara allt eftir viðtökunum, sem þessi litli leikjakassi fær, hvað hann veðrur lengi.


skrifað af criticts 18:16 criticts

miðvikudagur, nóvember 17, 2004
of mikið

nú er allt klikkað, var í stæ prófi í gær, er að fara í próf á morgun í ensku, á mánudaginn er próf úr bók í dönnsku sem ég á eftir að lesa plús 15 mín fyrirlestur í lífsleikni um eitthvað sem ég veit ekki hvað á að vera. til að toppa þetta allt er svo líka próf í þýsku á þriðjudaginn. svo á einhver stæ eftir að bætast á þetta og einhver íslenska og eitthvað úr hinum fögunum sem ég man ekki alveg hver eru. en þetta er alveg slatti þannig að það er örlítið mikið að gera í lærdómnum og verður eitthvað minna um að eitthvað sé gagnrýnt.

hefur fólk verið að stöðva mig dags daglega og spurja hvort það fari ekki að koma nýjar gagnrýnir þannig að ég ákvað að koma hér með ástæðu lítilla skrifa. en ég hef sett stefnuna á að gagnrýna einhverja geisladiska og svo var ég að hugsa um að skella mér í bíó einhvertíman á næstunni á mynd að nafni mindhunters. held ég að það verði afbragðsgóð mynd en kemur allt um álit mitt á henni eftir að ég er búinn að sjá hana.

meira var það svo sem ekki. mín bíður mikill lestur og vesenis þannig að það er bara best að ég fari að slútta þessu. over and out


skrifað af criticts 18:25 criticts

sunnudagur, nóvember 14, 2004
rúðuþurkur

komst ég í kynni við einar bestu rúðuþurkur sem til eru. eru þær staðsettar á bílnum hans tryggva og eru þær allsvakalegar svo ekki sé meira sagt. rosaleg vinnsla og óútskýranlegt stílbragð er það sem einkennir þessar rúðuþurkur og er það þess vegna sem ég gef þessum rúðuþurkum topp einkunn, 4 stjörnur af fjórum mögulegum. hvet ég alla sem þekkja til tryggva og hans bíls að skoða þessar rúðuþurkur.

rúðuþurkur á bílnum hans tryggva: ****

svo vil ég líka minna á að það er bingó á skjá einum og er það að byrja í þessum töluðu orðum eða nánar tiltekið kl 20:00 og ættu allir að fylgjast með honum, hvort sem þeir taka þátt eða ekki. það held ég nú


skrifað af criticts 19:44 criticts

sjallinn

auðvitað er það geimstofan sem stendur fyrir tónleikum á akureyri, að þessu sinni var það geimgigg #2 og hljómsveitirnar sem komu fram voru solid i.v, jan mayen og mínus.

fyrsta hljómsveitin til að stíga á stokk var hljómsveitin solid i.v. hafði ég heyrt eitt til tvö lög með þeim sem voru í spilun á x-inu sem voru bara bærileg og bjóst ég við svo sem alveg þokkalegu showi frá þeim. en annað kom á teninginn og reyndist þetta vera hreint út sagt hörmuleg hljómsveit live. allavega minnir mig að lögin þeirra hefðu verið betri í útvarpinu. en þeir spiluðu í dágóðan tíma og sat maður bara og "naut" tónlistarinnar. ég held að ég skelli tveimur stjörnum af fjórum mögulegum á hljómsveitina solid i.v.

næst á svið var það hljómsveitin jan mayen og var það sú hljómsveit sem ég var spenntastur fyrir að sjá. var ég búinn að lesa ýmislegt gott um þessa hljómsveit eftir að þeir gáfu út sína fyrstu ep plötu árið 2003. kom hún út í 200 eintökum og seldist upp strax. svo var ég einnig búinn að kynna mér fyrsta safndisk þeirra sem heitir home of the free indeed og kom út í október á þessu ári og fannst mér hann nokkuð góður þannig að ég var bara mjög spenntur fyrir því að sjá þá performa á sviði. svo maður reif sig uppúr sætinu þegar þeir byrjuðu að spila og dröslaði sér í átt að sviðinu. get ég ekki sagt annað en að ég hafi fengið það sem ég vonaðist eftir sem var skemmtileg sviðsframkoma og góður tónlistarflutningur. voru það sérstaklega lögin nonsence, shut up/down, the new way og the next victim sem sem heilluðu mest en í heild var þetta bara hreint magnað show hjá hljómsveitinni jan mayen. fá þeir hikluast fjórar stjörnur af fjórum fyrir skemmtilega framkomu og góða tónlist.

svo var röðin komin að mínus mönnum. verð ég reyndar að viðurkenna að ég sá ekki alveg allt með þeim, missti þarna aðeins af fyrstu 3-4 lögunum en var mættur til að ná endanum. það sem að ég sá var bara stórgott, létu þeir öllum illum látum á sviðinu eins og þeir gera best og var mikil stemmning meðal áhorfenda. sýndist manni þeir þó vera örlítið fullir og jafnvel á einhverjum vafasömum lyfjum en það eru engar öruggar heimildir fyrir því. þó sá ég reyndar þegar þeir yfirgáfu sviðið og voru á leið upp tröppur baksviðs að þá hafði krummi enga orku í að komast upp tröppurnar og lá þar í miklu svitakófi og svo þegar þeir voru klappaðir upp að þá rétt svo náði hann að drösla sér uppá sviði, með öðrum orðum skreið hann upp á sviðið. getur vel verið að hann hafi bara verið þreyttur en måske voru vafasömu lyfin að segja til sín, þori ekki að fullyrða neitt. en annars voru þeir magnaðir og spiluðu mjög vel og fá fullt hús stjarna, fjórar stjörnur af fjórum mögulegum, fyrir sýna framkomu.

svo þessir tónleikar voru bara mjög góðir þegar á heildina var litið og bíð ég spenntur eftir geimgigg #3

solid i.v: **
jan mayen: ****
mínus: ****




skrifað af criticts 19:20 criticts

miðvikudagur, nóvember 10, 2004
bingó

það hlaut að koma að því einn daginn að ég sæi einn af þessum umræddu bingó þáttum á skjá einum. var þetta reyndar endurtekinn þáttur en held ég að það sé skemmtilegra að sjá þetta live. verð ég að segja að ég bjóst ekki við miklu, hefur villi verið í mörgum sjónvarpsþáttum uppá síðkastið, svo sem at og úti að grilla með kára og villa, og hafa þeir ekki höfðað mikið til mín en verið svo sem alveg lala. þannig að ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast. villi með bingó þátt.. tjahh, hljómaði ekki vel. en annað kom sko á daginn. eru þetta stórskemmtilegir þættir þar sem villi fær loksins sjónvarpsþátt þar sem hann fær útrás fyrir athyglissýki sinni sem er bara magnað.

og ekki eru sko vinningarnir af verri endanum. maður sem fékk 40 kg af hrísgjrónum, garðslöngu, þráðlaust lyklaborð, playmo og margt margt fleira skemmtilegt. svo var annar sem fékk psx2 tölvu ásamt fullt af leikjum og dvd myndum þannig að þetta er ekkert slor. og talandi um slor að þá er möguleiki á því að vinna bíl! og hvílíkir lúxus bílar sem þarna eru, uss suss suss. var reyndar mikið um að þessir bílar voru svona bílar sem erfitt er að selja. ég meina, ekki allir sem eru spenntir fyrir því að kaupa tveggja dyra opel astra sem er dísel bíll. en það er bara allt mjög persónubundið.

þannig að það er nokkuð augljóst að ég bíð spenntur og tilbúinn með bingóspjald þegar næsti þáttur verður, sem er á sunnudaginn held ég.. ekki alveg pottþéttur á því. en ég hvet allavega alla til að fylgjast með og endilega taka þátt, örugglega þrælskemmtilegt.

bingó þátturinn á skjá einum með villa naglbít fær því hiklaust fjórar stjörnur fyrir frumleika og mikið skemmtanagildi.

bingó: ****


skrifað af criticts 23:08 criticts

sunnudagur, nóvember 07, 2004
good news for people who love bad news

þar sem það er sunnudags kvöld og allt mjög rólegt að þá hef ég ákveðið að skrifa bara eins og eina aðra gagnrýni.

good news for people who love bad news er fjórði diskur hljómsveitarinnar modest mouse og
kom hann út núna árið 2004. mörg ykkar sem hlustið mikið á x-ið ættuð að kannast við lögin float on og the ocean breaths salty en ekki mikið meira. en hinsvegar þið sem ekki hlustið á x-ið, ég býst við því að þið hafið aldrei heyrt þessarar hljómsveitar getið.

er þetta frumlegur og skemmtilegur diskur þar sem flest öll lögin tengjast á einn eða annan hátt. er mikið um góð lög en þó leynist þarna eitt 13 sec langt lag sem minnir mig á byrjun í justin timberlake lagi, veit ekki alveg hvað það er að gera þarna á disknum. en framúrskarandi góð lög á þessum disk eru lög á borð við bury me with it, i´ve got it all(most) sem mér finnst eitt besta lagið á disknum, bukowski, the view, satin in a coffin, black cadillacs og the good times are killing me. eru þetta allt afbragðs góð lög en er restin á disknum kannski eitthvað aðeins síðri en eru það bara 2-3 lög sem eru þó alveg mjög hlustanleg.

hef ég verið að hlusta mikið á þennan disk upp á síðkastið, ásamt disknum change með hljómsveitinni dismemberment plan sem ég mun svo gagnrýna hér bráðlega, og hefur hann heillað mig meira og meira með tímanum og semsagt án nokkurs vafa diskur sem fær fjórar stjörnur af fjórum mögulegum. er þetta diskur sem þið ættuð að reyna að redda ykkur, hvernig sem þið farið að því skiptir engu. bara að redda honum.

modest mouse - good news for people who love bad news: ****


skrifað af criticts 23:45 criticts

eurotrip

det er en helt fantaststisk film, svo maður nýti sér nú aðeins tungumála kunnáttu sína.

en eins og ég segi að þá er eurotrip bara nokkuð góð mynd. mikið um grín og sprell og sérstaklega skemmtilegt atriði þar sem fótboltabullur man utd. koma við sögu, með sjálfan vinnie jones í broddi fylkingar. eru leikararnir í myndinni ekki mjög þekktir og aðalega er þetta allt fólk sem hefur leikið aukahlutverk í vinsælum sjónvarpsþáttum eða talað inn á teiknimyndir. einnig sést þarna matt damon taka eitt stutt lag en meira er það nú ekki. svo var það reyndar einn leikari að nafni jacob pitts sem var nokkuð góður, lék aulalega/heimska gaurinn, og ekki ósvipaður leikara nokkrum að nafni david spade. er hann af sjálfsögðu mikill snillingur og hvet ég alla til að sjá eitthvað með honum.

var nokkuð um að fyrirtæki auglýstu eitthvað í myndinni og má taka sem dæmi um það myndavélafyrirtækið leica. var ein af aðalpersónunum alltaf með leica myndavél sem enginn mátti snerta. svo voru þarna pepsi sjálfssalar og einhver svona smá atriði. reyndar spilaði myndavélin svolítið stórt hlutverk í myndinni þannig að það er ekki víst að þetta hafi verið einhver sérstök auglýsing frá leica. en hver veit, langaði bara að benda á þetta. ekki væri ég neitt á móti einni leica vél.

annars var myndin bara nokkuð frumleg og ekki mjög mikið um klisjur sem vanalega eru í svona gaman myndum. þannig að myndin hlýtur bara topp einkunn, 4 stjörnur af fjórum mögulegum og er þetta upplögð mynd fyrir fólk sem er í leit af góðri, ruglaðri gaman mynd.

eurotrip: ****


skrifað af criticts 22:52 criticts

föstudagur, nóvember 05, 2004
það sem koma skal

þar sem ég hef verið ákkúrat andstæðan við það að vera duglegur að skrifa gagnrýnir uppá síðkastið að þá ætla ég að fara að taka mig á, binda 50 kg lóð við löppina á mér og losa þau ekki fyrr en ég er búinn að skrifa sirka 100 gagnrýnir.

einnig er ég búinn að vera að hugsa um að redda mér einhverjum sponser. það hlýtur að vera til hellingur af fólki sem er til í að sponsera mig á einn eða annan hátt. ég er að spá í að leggja kannski leið mína í borgarbíó og bt eða bara jafnvel skrifa þeim e-mail og athuga hvort þeir eru ekki meira en tilbúnir í að sponsera mig. eins og sést er nóg auglýsingapláss á síðunni þannig að hægt ætti að vera að koma einhverjum auglýsingum fyrir. þannig að ekki láta ykkur bregða þó að þið sjáið bt músina í stað criticts kallsins einn góðan veður daginn.

það sem ég hef planað að gagnrýna á næstunni er: diskurinn change með hljómsveitinni dismemberment plan, diskurinn good news for people who love bad news með modest mouse, måske san andreas ef ég kem höndum mínum yfir hann einhverstaðar og svo svo veit maður aldrei nema maður taki sig til og gagnrýni fm-krúið hans ragga. þannig að þetta er allt væntanlegt á næstu dögum.

svo er fyrsta fótbolta æfingin í 2 ár hjá mér á morgun. verður það eitthvað fróðlegt og sennilega gífurlega skemmtilegt. þó líka erfitt þar sem ég var að frétta að míló er þjálfarinn og er hann maður sem lét stráka í 7. flokki taka suicide á æfingum. fékk hann reyndar líka skammir í hattinn frá foreldrum þar sem drengir þeirra voru alveg búnir eftir æfingar og höfðu varla orku til að borða. en ég bíð spenntur, ekki spurning.

so that´s all folks!


skrifað af criticts 23:30 criticts

mánudagur, nóvember 01, 2004
enn breytist allt

eftir 1 dags veru á criticts.tk hvarf nýja útlitið eins og hendi væri veifað og vék það fyrir útliti sem birkirk nokkur kom með hugmynd að og birti á síðunni www.nezitic.tk. leist mér svona ansi vel á þetta útlit á criticts að ég tók það að mér með hjálp annars meðlims nezitic fjölskyldunnar að breita síðunni í annað skiptið á 2 dögum.

er ég bara ágætlega sáttur með þetta útlit og er ég ekki í nokkrum vafa um það að þetta blá útlit muni halda út lengur en í einn dag.


skrifað af criticts 18:29 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3