sunnudagur, júlí 31, 2005
titled

hjálmar, snilld
stimpilgaurinn, ekki jafn mikil snilld..
en ég syng:"varúð það er svo hált" og taki það til sín sem vita. svo næsta læglína:"þetta er allt í góðu, við reddum þessu saman." og svo endurtekur fyrsta laglína sig.

hölt hóra er mesta plöggið, ferskir gaurar


skrifað af criticts 05:52 criticts

fimmtudagur, júlí 28, 2005
orð dagsins

orð dagsins í dag er.. grafa. hver man ekki eftir því að vera á leikskóla og leika sér á mini-gröfu í sandkassanum? í dag var ég að grafa með skóflu og einnig að grafa á gröfu sem er kannski aðeins meira high-tech en þessar sem maður vann á þegar maður var á leikskólanum.

verð ég að segja að gröfu vinna er bara nokkuð geðsleg, en þó veit ég ekki hvernig hún er til langs tíma. ég gef þessari gröfu vinnu hiklaust 7 af 10 mögulegum fyrir ágætis skemmtanagildi.

svo er verslunarmannahelgin að renna í hlað og spyr ég því hvaða hljómsveit, sem er að fara að spila á akureyri, væri fólk mest til í að sjá?

stjórnina
sixties
hvannadalsbræður
hjálma
sent
nýdönsk
stuðmenn og hildi völu
papana
sálin hans jóns míns
thómas thx og exos
ég
appolo
jafnvel einhverja aðra?


skrifað af criticts 19:45 criticts

laugardagur, júlí 23, 2005
talandi um sökk

fólki sem finnst tekken sökka ætti alls ekki að prófa nýju strax búðina hjá ób bensín stöðinni.. sú búð sökkar lang mest af öllu, sú búð er allt sökkið! þar eru slæmir fánar, vitlausir verðmiðar þar sem reynt er að plata fólk og starfsfólkið er með allt gelið í hárinu sem er nóg til þess að enginn ætti að versla þarna.

þessi búð er tóm, slæmt verð auk þess þar sem þetta lýtur út eins og illa innréttur bílskúr. þessi bílskúrsbúð við hlíðarbraut/borgarbraut fær einkunnina núll af tíu og skal ég aldrei aftur stíga fæti inn í þetta hræðilega saurbæli.


skrifað af criticts 00:32 criticts

fimmtudagur, júlí 21, 2005
tekken

nýverið festi ég kaup á nýjasta tekken leiknum sem er númer fimm í röðinni. liggur enginn vafi á því að tekken hafa og verða enn bestu slagsmála, ef ekki bara yfir heild bestu leikir sem komið hafa fyrir play station. er þessi nýji tekken leikur smellinn, flottur og skemmtilegur í alla staði. fylgja honum ýmsir skemmtilegir fídusar svo sem það að maður getur farið í tekken eitt, tekken 2 og tekken 3 allt á þessum disk. er alveg magnað að fara í þessa gömlu leiki og sjá hvað þeir eru orðnir ótrúlega crappy miðað við þá leiki sem verið er að gefa út núna. en markmiðið með þessum pistli er að gera topp topp 6 lista yfir þá tekken leiki sem komið hafa út..

1. tekken þrjú
2. tekken fimm
3. tekken eitt
4. tekken fjögur
5. tekken tvö
6. tekken tag

tekken tag er augljóslega versti leikurinn, algjört flopp þar sem gert var tilraun til að láta mann berjast með tvo kalla í einu. en eins og þið sjáið að þá er tekken 3 efstur á lista enda er það sá leikur sem er langt um bestur og mun hann alltaf vera það.. tekken eitt er samt lang lang erfiðasti leikurinn

vona að þið hafið haft gagn og gaman af þessum tekken pistli en einnig ætla ég að rita hér topp fimm lista yfir þær hljómsveitir sem ég er búinn að vera að hlusta á upp á síðkastið.

1. death from above 1979
2. röyksopp
3. trabant
4. kasabian
5. coldplay

fólk þarf að hlusta á nýju plöturnar frá þessum hljómsveitum ef það er ekki búið að gera það fyrir löngu


skrifað af criticts 22:18 criticts

föstudagur, júlí 15, 2005
hiti

þegar hitinn úti er orðinn 25 gráður og einnig glampa sólskin að þá er gamall citroen ekki bíll sem þú vilt vera í. ég varð einmitt vitni af því í dag að maður á gömlum citroen var að keyra þegar það kviknaði allt í einu í bílnum hans. eftir svona 3 mín var allur bíllinn í ljósum logum og svartur strókur lá úr honum. slökkvuliðið og lögreglan mættu auðvitað á staðinn og sinntu sínum skyldum, þó það virðist sem slökkvuliðsmenn sjái ekkert með þessar grímur sínar.. tóku ekkert eftir því að það var alltaf eldur undir bílnum. á endanum var eldurinn allur slokknaður og þá tók einn slökkvuliðsmaðurinn sig til og öskraði:"ÞAÐ ER BENSÍN LEKI SEM VIÐ ÞURFUM AÐ STÖÐVA! VILJIÐI FÆRA YKKYR FRÁ BÍLNUM!" .. mjög bíómyndalegt allt og er ég nokkuð viss um að þessi tiltekni maður hefur verið að bíða eftir því að geta sagt eitthvað þessu líkt alveg frá því að hann byrjaði að vinna sem slökkvuliðsmaður, hann var allavega mjög spenntur.

maðurinn í bílnum slapp ómeiddur og náði öllu úr bílnum, bíllinn sprakk ekki eins og gerist alltaf í bíómyndunum.. þar þarf ekki meira til en að það kvikni í einu dekki, þá springur bíllinn og allt sem er í 100m radíus við hann. alltaf lærir maður eitthvað nýtt


skrifað af criticts 20:15 criticts

hiti

þegar hitinn úti er orðinn 25 gráður og einnig glampa sólskin að þá er gamall citroen ekki bíll sem þú vilt vera í. ég varð einmitt vitni af því í dag að maður á gömlum citroen var að keyra þegar það kviknaði allt í einu í bílnum hans. eftir svona 3 mín var allur bíllinn í ljósum logum og svartur strókur lá úr honum. slökkvuliðið og lögreglan mættu auðvitað á staðinn og sinntu sínum skyldum, þó það virðist sem slökkvuliðsmenn sjái ekkert með þessar grímur sínar.. tóku ekkert eftir því að það var alltaf eldur undir bílnum. á endanum var eldurinn allur slokknaður og þá tók einn slökkvuliðsmaðurinn sig til og öskraði:"ÞAÐ ER BENSÍN LEKI SEM VIÐ ÞURFUM AÐ STÖÐVA! VILJIÐI FÆRA YKKYR FRÁ BÍLNUM!" .. mjög bíómyndalegt allt og er ég nokkuð viss um að þessi tiltekni maður hefur verið að bíða eftir því að geta sagt eitthvað þessu líkt alveg frá því að hann byrjaði að vinna sem slökkvuliðsmaður, hann var allavega mjög spenntur.

maðurinn í bílnum slapp ómeiddur og náði öllu úr bílnum, hann sprakk ekki eins og gerist alltaf í bíómyndunum.. þar þarf ekki meira til en að það kvikni í einu dekki, þá springur bíllinn og allt sem er í 100m radíus við hann. alltaf lærir maður eitthvað nýtt


skrifað af criticts 20:15 criticts

sunnudagur, júlí 10, 2005
billy´s

það er nokkuð öruggt mál að rauðar bylly´s original pizzur eru það sem halda lífi í fólki sem þarf að sjá um sig sjálft. henntugleikinn og bragðið sem fylgir þeim gerir þær að hinum eina sanna 1944 örbylgjumat.

einnig vil ég benda öllum á hvað coca cola er vonlaust fyrirtæki. fyrir sirka 5-6 mánuðum kom ég heim með phantom yoyo og ætlaði að endurvekja gamla yoyo æðið. vill nú ekki betur til en svo að coca cola hefur stolið hugmynd minni sem ég hef verið að byggja upp þessa síðustu mánuði, byrjaðir með gífurlega auglýsingarherferð hvað yoyo er frábært og hvað allir ættu að safna 20 gulum töppum til að fá eitt stykki yoyo. það er greinilega einhver frá coca cola sem fylgist með manni..


skrifað af criticts 23:41 criticts

fimmtudagur, júlí 07, 2005
bretland

eins og flest allir ættu að vita að þá urðu hræðilegar hriðjuverkaárásir á london nú í morgun, en ég er þó ekki að fara að skrifa skoðanir mínar á þeim þar sem þær eru of pólitískar og sjokkerandi.

hins vegar ætla ég að færa ykkur fréttir af aðal fréttaefni criticts.tk síðustu mánuði en er það fréttin um piano man. fátt er enn vitað um þennan mann en þó telja nú læknar að þeir viti hvaðan maðurinn er. talið er að maðurinn komi frá noregi og fengu þeir það út með því að rétta manninum landakort og hann bennti á osló. einnig er sagt að hann bregðist betur við norskunni en enskunni þó að hann hafi enn ekki sagt orð. gæti það þó bara stafað af því að norskan er svo syngjandi mál og þessi maður er svo tónelskur.

ekki veit ég hvort hægt sé að fullyrða að maðurinn komi frá noregi en miklar rannsóknir standa yfir í sambandi við piano man og verður auðvitað allt sem fréttist birt hér.


skrifað af criticts 19:49 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3