heldur áfram
í dag hélt gerð síðunnar áfram og er þetta allt að mjakast í rétta átt. með sérfræðiaðstoð friðriks braga reddaðist smávægilegur galli í síðunn og á hann hrós skilið fyrir að geta lagað það.
annars er logoið að mestu tilbúið en maður veit aldrei hvað mér dettur í hug að gera.
en eftir mikla útreikninga hef ég komist að þeirri niðurstöðu að umþaðbil 86% af síðunni er búið og mun ég vinna að restinni innan skamms.
skrifað af criticts
23:24
criticts
garfield the movie
myndin sem slík er ekkert spes. þetta er ekki útpæld mynd með mikið af plottum og flóknum söguþræði. þetta er svona mynd sem er skrifuð beint eftir ákveðni formúlu sem lýsir sér þanngi að lífið er gott, svo kemur viss hindrun og þá verður allt vonlaust. þar af leiðandi gerist eitthvað afdrifaríkt sem hefur mikil áhrif á myndina en þó að allt sé að klúðrast að þá endar myndin samt sem áður vel og allt verður frábært.
í stuttu máli er garfield the movie þannig. fín mynd til að horfa á ef maður hefur ekkert að gera en þetta er engin mynd til að fara á í bíó. í stað þess að eyða 800 kalli í bíóhúsið ætti fólk miklu frekar að bíða þess að myndin komi út á spólu, borga 500 krónur fyrir hana og gera eitthvað uppbyggjandi við 300 kallinn sem það sparar sér.
mér líkaði þó ágætlega það hvernig myndin var gerð. john var samt ekki næstum nógu aulalegur eins og hann er í myndasögunum. en annars er þetta ágætlega byggt upp frá myndasögunni. garfield er feitur og kaldhæðinn. odie er heimskur og talar ekki, enda hefði það skemmt myndina hefði hann talað. og svo er það dýralæknirinn sem er leikinn af jennifer love hewitt, er gert voða mikið úr henni sem ætti ekki að vera en þannig er það. annars eru nokkrir aðrir auka karakterar sem voru í myndinni sem ekki verða nefndir hér.
garfield the movie: **
2 stjörnur fyrir að drepa tímann hjá mér í klukkutíma og ellefu mínútur
skrifað af criticts
22:15
criticts
til að byrja með
hvernig byrjar maður.
byrjum á því að útskýra criticts. criticts samanstendur af critic og ts sett saman en í sitthvoru lagi er critic gagnrýnandi, eins auðvelt og það er að skilja fyrir fólk sem kann undirstöðu atriði í ensku, og ts mun vera upphafsstafir mínir nema hvað að ég er þorvaldur snæbjörnsson og þ er ekki leyft á hinum erlenda vef.
hvað geririr criticts fyrir þig? óskup lítið reyndar. næstum ekkert. hér mun ég skrifa það sem mér finnst um hluti svo sem bíómyndir, geisladiska og margt margt fleira. einnig mun ég birta ýmsa hluti um mig og líf mitt. þannig að niðurstaðan er sú að criticts er gagnrýni slash mitt líf.
en eins og glöggur maður sér að þá hef ég ekki skrifað einn stóran staf hér og verður það ekki gert. og ef svo gerist biðst ég innilegrar afsökunar á því.
skrifað af criticts
21:27
criticts