nýjasta afurð gamalreyndu jaxlanna í chemical brothers kom út í fyrra og eins og nokkrar aðrar 2007 plötur er ég bara að hlusta á þær fyrst núna. ég var búinn að lesa misjafna dóma um þessa plötu, sumir segja að hún sé góð á meðan aðrir segja að hún sé sorp. eins og t.d. rjominn.is sem gefur henni einn í einkunn af fimm mögulegum og segir að þetta sé argasta skran. eftir að hafa hlustað á plötuna sjálfur nokkrum sinnum verð ég bara að segja að ég verð að vera þeim ósammála.
þetta er fínasta e-pillu dansplata með auðmeltanlegum slögurum inn á milli. lög sem hafa verið að meika það eru lög á borð við do it again og the salmon dance (skemmtilegt lag um fiskadans og fróðleik um laxa).
svo var verið að tilkynna það í dag að chemical brothers verði að spila á hróaskeldu árið 2008. þannig að næsti hrói er strax orðinn spennandi. en ég segi að þetta sé góð plata, veit ekki við hverju fólk sem drullar yfir hana hafi verið að búast við þegar þessi plata kom út, ekki endalaust hægt að gera smelli eins og "block rockin beats" og "hey boy/girl" http://www.myspace.com/thechemicalbrothers
ian "apamaður" brown, fyrverandi söngvari stone roses, sendi út á árinu sem var að líða nýjan disk. ef fólk er spennt fyrir stone roses eða því sem ian brown hefur gefið út áður, að þá ætti það ekki að vera ósatt með þennan disk.
það sem er nýtt við þennan disk miðað við hina sóló diska ian's er að nú virðist hann vera kominn með svaka strengjahljómsveit með sér án þess þó að losa sig við elektrónísku hlið sína sem hann hefur verið þekktur fyrir eftir að hann hætti í stone roses.
veit ekki alveg hvað hann er að spá á þessu myspace-i sínu þar sem hann er með japanska útgáfu af sister rose, einu besta lagi plötunnar. greinilega á að leggja undir sig asíu markaðinn.
ég verð bara að gera breytingu á árslistanum mínum fyrir árið 2007 og setja in rainbows með radiohead á hann. ég var ekkert búinn að hlusta á hann og nú árið 2008 ákvað ég að gera það og hann er bara svona stórgóður.
radiohead tekur því fjórða sætið af the rapture sem þar með detta niður í fimmta sæti og bloodgroup fara niður í það sjötta.
dansmyndbönd eru náttúrulega bestu myndbönd í heimi. hljómsveitir eins og ok go hafa masterað að gera góð dansmyndbönd þar sem venjulegir menn læra einhverja töff dansa og framkvæma þá að stakri snilld.
yelle er enn eina franska elektróníku hljómsveitin og virðist sem frakkar geti ekki annað en dælt út slíkum hljómsveitum í tonnatali. þau gáfu út disk á árinu 2007 en ég ætla ekkert að tala um hann heldur myndband við eitt lag af honum, þ.e. myndband við remix útgáfu af þessu lagi. þetta er dansmyndband og mjög skemmtilegt í þokkabót. nú ætla ég bara að læra þennan dans, blasta hann á kaffi ak og vera hetjan á dansgólfinu.
árið 2007 var rosalega rólegt hvað varðar tónleika erlendra stórhljómsveita hér á landi. þetta var eiginlega ár risaeðlanna, gamlir rokkhundar voru hvað mest sýnilegir. til dæmis komu hljómsveitirnar deep purple, toto, skidrow og jethro tull, ekki yngstu mennirnir en þeir eiga að hafa rokkað spik feitt.
hljómsveitir aðeins nær nútímanum voru air, the rapture, incubus og chris cornell. ég sá ekkert af þessu. verð ég að segja að árið á undan var mun betra hvað svona einstaka tónleika varðar. það voru þó margir góðir tónleikar með íslenskum hljómsveitum og báðar tónlistarhátíðirnar, hróaskelda og airwaves, sem ég fór á stóðu fyrir sínu.
það verður samt að segjast að 2007 hafi verið ár plötusnúðanna. erlendir plötusnúðar voru fluttir inn í stórum stíl, menn eins og dirty south, tiesto, dj megamix og hvað þeir heita nú allir ásamt því að innlendir plötusnúðar hafi farið mikinn. allir skemmtistaðir og útvarpsstöðvar á kvöldin ómuðu af dj leibba, ghost og brunheim, flex ásamt exos og plugged. þetta var basicly út um allt.
þannig að fyrir 2008 segi ég fleiri tónleika og minna af þessum skífuþeyturum,