
kanada!
ef þú ætlar að spila indie tónlist að þá er það nýjasta sápukúlan að koma frá kanada. metric kemur þaðan og fer bráðlega að sigla hingað til íslands með ferska strauma meðferðis og lætur svo allt flakka á iceland airwaves.
gott dans-indie sem má stíga tryllt spor við hvort sem þú ert á dansgólfi eða í sturtunni. monster hospital er lagið til að byrja á
http://www.myspace.com/metricband
skrifað af criticts
18:32
criticts

tónlistarmenn geta verið töff. gott dæmi um þetta er the polish ambassador, maður með headphone, sólgleraugu, midi hljómborð og í illa groovuðum galla, en framkvæmir bara frekar slæma tónlist.
hann er nokkuð eins og hermigervill, nema aldrei nærri jafn töff né jafn góður tónlistarmaður. ég gæti hugsanlega séð mig fyrir mér að hlusta á the polish ambassador á meðan ég væri að spila nintendo í geimskipinu mínu, annars að öllum líkindum ekki.
en hann er töff upp að vissu marki og það kemur honum ágætlega langt áfram í tónlistarheiminum, eftirtektarvert fólk á það til að komast fyrr í sviðsljósið en þeir sem láta lítið fyrir sér fara
http://www.myspace.com/polishambassador
skrifað af criticts
20:13
criticts

nú þegar ég við það að fara að sofa pæli ég í því hvað fólk hlustar á þegar það er að fara að sigla inn í draumalandið, ef það hlustar þá á einhverja músík við þá athöfn yfir höfuð.
ég held að allir geti sofnað við þá tónlist sem þeim líkar við. sem dæmi metal haus og metallica, köntrí maður og dolly parton, tölvupoppari og kraftverk, dauðarokks dýrkandi og cradle of filth, so on & so on.
massive attack virkar fínt fyrir mig
skrifað af criticts
23:37
criticts

pétur ben, maðurinn sem varð frægur með mugison þegar þeir tveir spiluðu svo unaðslega á gítar í laginu murr murr. nú hefur þessi fyrrum tristian meðlimur og mugison vinur gefið út sína fyrstu sóló plötu sem heitir
wine for my weakness. eins og áður hefur verið sagt spilaði pétur með tristian sem gerði góða hluti á "hljómsveitir líklegar til vinsælda" plötunni
spírur ásamt því að hafa bardúsað í mörgu öðru eins og tónlist fyrir söngleiki,spilað með hljómsveitinni mónakó sem gaf út lagið
ég veit fyrir "nýju" stuðmanna myndinna og gera músíkina fyrir íslensku myndinni children eða börn sem sem á að vera byrjað að sýna í bíóhúsum.
wine for my weakness er topp diskur hjá pétri ben og væri margt annað vitlausarar sem þið gætuð gert við tíman ykkar en að tékka á honum eða myspace síðunni hans.
white tiger er flott lag til að byrja á
http://www.myspace.com/peturben
svo þar sem að hermigervill er að fara að flytja til amsterdam að þá ætla ég að smella inn myspace síðunni hans líka þar sem hlusta má á og niðurhala remix útgáfum sem hann gerði af lögunum
stars með quarashi og
army of them með worm is green. hermigervill alltaf að standa fyrir sínu og leiðinlegt að hann sé ekki að fara að halda tónleika á akureyri á næstunni.
http://myspace.com/hermigervill
skrifað af criticts
23:20
criticts