föstudagur, desember 31, 2004
upplýsingar
bónus í dag, it was a battlefield.. það var svo stappað þarna. kerrurnar kláruðust, fólk barðist um þær sem losnuðu. mamma var svo sniðug að grípa eina sem var úti og þegar við löbbuðum inn að þá reyndi önnur kona að hrifsa kerruna af mömmu en hún móðir mín tók það ekki í mál og sagði sko konunni að þetta væri sín kerra!
ég var auðvitað settur í það að keyra kerruna, jeez, það var búið að fjölga vörutegundunum þarna þannig að það var allt orðið þrengra og með allt þetta fólk þarna að þá varð mikið um umferðarteppur. sá glæsi ökumaður sem ég er að þá tókst mér ávalt að smjúga milli allra og alls. fór leiðir sem fólk hafði ekki einu sinni ýmindað sér að hægt væri að fara.
en já, þetta var klikkun
svo eru bloggarar þessa heims í gríð og erg að setja inn lista á bloggið sitt um ýmislegt.. það sem stóð uppúr á árinu, hvað verður inn og út á næsta ári og áfram mætti telja. hef ég ákveðið birta þannig lista eða hvað ég ætla að gera á nýju ári/hvað verður inn og út.. bara eitthvað sem mér dettur í hug. ætla ég að vera svoltið glamúr á þessu og birta þennan lista á nýju ári.
over and out
skrifað af criticts
03:57
criticts
mánudagur, desember 27, 2004
jólin
þetta voru bara ágæt jól, reyndar engar rjúpur sem var frekar slakkt. við borðuðum léttreyktan hrygg thingy sem við borðum alltaf á áramótunum og er hann alltaf jafn góður. ætli það verði þá ekki bara cheerios um áramótin.
fékk ég svo líka bara nokkuð alminnilegar jólagjafir, gallabuxur að eigin vali, ekki einar heldur tvær náttbuxur, inniskó, 2 boli, eina captain america myndasögubrók sem er by the way flottasta brók sem ég hef augum litið. svo fékk ég sílafóníku, stolltur að segja frá því að ég get spilað byrjunina á laginu kerfisbundin þrá með maus á hana. plús að geta spilað 6 sec útgáfu af jingle bells.
svo fékk ég popppunkt spilið í möndlugjöf, vantar núna bara einhverja verðuga andstæðinga til að spila við. en já, þetta voru semsagt bara mjög gleðileg jól eftir allt saman.
skrifað af criticts
16:16
criticts
föstudagur, desember 24, 2004
myndasíða
fyrst það er komin ný myndavél að þá þarf maður að setja upp myndasíðu, er ég búinn að því og er slóðin
http://thorvaldur.fotopic.net. svo verður þetta sennilega einhvertímann thorvaldursn.tk
verða settar þarna ýmsar myndir og er ég búinn að setja inn myndirnar úr skálaferðinni sem ég ætlaði að vera löngu búinn að setja á netið. þetta er ekki alveg fullkomið en kemur allt með tímanum
that´s all, 24. des kominn svo ég segi bara gleðileg jól!
skrifað af criticts
01:02
criticts
miðvikudagur, desember 22, 2004
sky high
góður leikur, ný myndavél, ferskur subwya.. i´m sky high
skrifað af criticts
23:06
criticts
þriðjudagur, desember 21, 2004
jólainnkaup
jæja, þá eru jólainnkaupin á enda, skrapp með tp og birkik að versla jólagjafir. gekk þetta bara svona ofur vel að við gátum svo skellt okkur heim til mín og spilað nba street vol.2 sem er án efa besti leikur sem til er, allavega eins og stendur.
ég sem ætlaði að læra eitthvað yfir hátíðirnar en þar sem þessi leikur datt uppí hendurnar á mér að þá sé ég ekki mikinn lærdóm fyrir höndum.
jólin eftir 3 daga, get ekki sagt að ég sé í miklu jólaskapi. ætli það sé útaf því að hrönn sé ekki hérna? neh, ég held að það séu frekar rjúpurnar. nei annars er voða slæmt að hrönn sé ekki hérna, sérstaklega þar sem við höldum jólaboðið í ár fyrir fjölskylduna þar sem ættin mætir og snæðir saman. er verið að gera rótkækar breytingar á heimilinu. skápurinn, sem hefur alltaf verið uppvið sjónvarpssófann, hefur nú verið skrúfaður í burt og er hann núna á ganginum. varð að rúma fyrir borðstofuborði sem lelli, bróðir pabba á. svo þetta verður eitthvað massiv massiv.
o well, adios
skrifað af criticts
03:10
criticts
mánudagur, desember 20, 2004
was ist los
komnar eru ýmsar hugmyndirnar um það hvað ég ætla að gera í jólafríinu og eru þær eftir farandi:
læra: eitthvað sem verður að gerast en ég er ekkert alltof spenntur fyrir
perus oriam hljómsveitaræfiningar: þar er góð hugmynd þar sem allt er að gerast þessa dagana hjá perus oriam, komnir með gítar, ein tromma á leiðinni ásamt bongó trommunum tveimur sem ávalt hafa verið til staðar. ég finn á mér að eitthvað stórt eigi eftir að gerast.
lesa íslandsklukkuna: já afhverju ekki, ætla allavega að byrja á henni í kvöld og sjá til hvað gerist eftir það.
horfa á sjónvarp 24/7: svo freistandi
skrifa skáldsögu: kannski maður láti loksins verða af því. ef einhver er með sambönd við bókaútgefendur að þá mega þeir alveg mæla með mér.
meira er ég ekki kominn með en eitthvað verður gert. jú ég ætlaði að reyna að redda mér popppunkts spilinu, reyna að mennta mig aðeins meira í tónlist. svo þeir sem eiga það eða fá það í jólagjöf mega endilega skora á mig.
íslandsklukkan bíður, adios
skrifað af criticts
01:57
criticts
föstudagur, desember 17, 2004
jólafrí
ohh ójá jólafrí, hvað á maður svo að gera í jólafríinu?
skrifað af criticts
21:41
criticts
miðvikudagur, desember 15, 2004
sommerfuglerne
fyrir ykkur sem ekki voruð í G1 í dag að þá eruð þið fólk sem misstuð af frumsýningu myndbandsins við lagið fisken sige eftir sommerfuglerne. hljómsveitina skipa ég, raggi, örvar og danni. var þetta dönskuverkefni til að byrja með en hefur þróast út í allt annað. hér erum við að sjá danskt boy band eins og er heimsfrægð rétt innan seilingar. en já, fyrir ykkur sem misstuð af myndbandinu að þá hef ég ákveðið að setja hérna inn nokkrar skemmtilegar myndir af hljómsveitinni og úr myndbandinu. taka skal fram að þetta var still frame myndband þar sem notast var við 75 stafrænar myndir sem voru skipulega sýndar með myndbandinu.
danni-mole spice, raggi-sporty spice, þorvaldur: groovy spice og örvar-fairy spice
dúmm dúmm dúmm
hey!
jumping around
"sige min fisk hvor for er du ikke her.."
fairy spise að taka nett spor
album cover
augljóst að ég verð næsti íþrótta álfurinn í latabæ
air jordan
verður maður meira sexy við að þvo bíl?
ójá, kannski þarna
kreista svampinn, kreista svampinn. raggi var að fíla þetta meira en við bjuggumst við
besti vinur barnanna
flying on geeses
bara tímaspursmál hvenær sortver, toppmen og sport, intersport og þessar búðir fari að hafa samband við okkur til að auglýsa sport vörur
svo þannig gekk það fyrir sig og eru þessar aðeins brot af þeim 175 myndum sem teknar voru
skrifað af criticts
19:36
criticts
mánudagur, desember 13, 2004
dagurinn í dag
litlu jól í lífsleikni og ég fékk einhvern jólasvein í pakkanum mínum sem ég hélt fyrst að væri máluð gulrót, svo við nánari athugun var þetta eitthvað allt annað en gulrót en jólasveinn átti þetta allvega að vera. á hjálmar án efa einn flottasta plötuspilara sem ég hef á ævi minni séð, svona gamall portable plötuspilari sem ég gæfi allt fyrir að eiga, heyrðist reyndar ekkert alltof hátt í honum en heyrðist þó eitthvað og er það nóg fyrir mig.
nú læri ég fyrir stæ próf en verður það bara þægilegt próf. mér er svona nokkuð slétt sama um það þar sem ég er búinn að fá alveg þokkalegustu einkun úr þessum kaflaprófum og það er eitt próf sem verður fellt niður af þessum 7 sem ég er, eða verð búinn að taka á morgun. svo ég lifi af með að fá eina slæma einkunn sem verður felld niður.
innantóm svör en gaman kl 13:05 á miðvikudaginn, meira hef ég ekki að segja
over and out
skrifað af criticts
21:53
criticts
sunnudagur, desember 12, 2004
dagurinn í gær
kvöldið í gær var frábært. mér var "rænt", rúðan í bílnum hans ragga tók uppá því að fara í köku og hrynja næstum inní hurðina, plús það að tryggvi stór ökumaður með meiru beyglaði númeraplötuna sína með dráttarkúlunni á bílnum hans óðins.
ég gerði allavega mikið af því að hlæja þetta kvöldið.. mikið gaman, mikið fjör
skrifað af criticts
18:43
criticts
laugardagur, desember 11, 2004
yess
long time no bloged. hefur ekki gefist mikill tími til að blogga en hér er ég kominn til að tilkynna fyrir öllum að dönsku lagið er tilbúið og verður myndbandið gert bráðlega. verður þetta svo allt frumsýnt á miðvikudaginn og eftir það verður þetta sennilega komið á popp tívi og allar helstu tónlistarstöðvar í danmörku. svo geri ég það sem ég get til að setja þetta hér á criticts.tk. en meira var það ekki að þessu sinni. over and out
skrifað af criticts
20:39
criticts
mánudagur, desember 06, 2004
jón og hrönn
þar sem ég er stiginn upp úr letikasti mínu við að blogga að þá ákvað ég að drífa líka í því að skella jón og hrönn í diet pepsi, svo að nú geta áhugasamir séð hvernig þeirra sænsku dögum er háttað. svo ég fari nú í saumana á þessari síðu að þá er þetta mjög svo uppbyggileg og fræðandi síða sem fjallar um sænskt mannlíf og glamúrið í kringum það. er þetta án nokkurs vafa ein besta blog.central.is síða sem nokkur tíman hefur verið sett á stofn og óska ég þessari síðu bara alls hins besta. fær hún átta stjörnur af níu mögulegum.
sven-ingvars: ********
skrifað af criticts
19:54
criticts
husavík music festival
var fátt að gerast í akureyrarbæ föstudaginn 3. des og var ég með mjög lítið á prjónunum. barst mér svo sms skeyti sem innihélt þá spurningu hvort ég væri til í að kíjka á tónleika með maus á húsavík. greip ég þetta tækifæri, klæddi mig í menningalegu fötin og lagði af stað til húsavíkur með 5 öðrum drengjum. ferðuðumst við til húsavíkur á svörtum saab og verð ég að segja að það var dálítið þröngt á þingi í aftursætinu þar sem við sátum fjórir. var það sigurður hákon sem ók bílnum, sigurður orri sat framí og í aftursætinu húktu ég, óli, raggi og tryggvi.
ferðin gekk vel fyrir sig og á meðan við vorum að keyra var mér tjáð það að dáðadrengir væru einnig að spila, svo ég varð bara ánægður með það. svo komum við á tónleikarstað eftir að siggi hafði farið á olís stöð til að fá kort af húsavík svo hann gæti ratað í skólann þar sem tónleikarnir voru haldnir. við borguðum okkur inn og sáum að dáðadrengir voru í fullu fjöri er við mættum til leiks. svo tók ég mig til og skoðaði miðan sem ég fékk og sá þar að á undan dáðadrengjum hefði veirð hljómsveitin tony the pony og að einnig ættu sign eftir að spila. gladdi þetta mig mjög þar sem mér finnst sign bara nokkuð góðir og hef ég alveg verið til í að sjá þá á tónleikum.
dáðadrengir voru fínir, tóku tvö jólalög ásamt því að spila sín reglulegu dáðadrengjar lög, bara smá, allar stelpur úr að ofan, jesú er inn í nintendo tölvunni minni og margt fleira. var mikil stemning á meðan þeir spiluðu, þó að fólk hafi kannski ekki beint verið að rífa sig úr fötunum og stígið trillta dansa, en það var fjölmennt.
á eftir dáðadrengjum komu sign. ragnar sólberg með sitt síða hár, í svartri rifinni treyju, sundurklipptum gallabuxum utanyfir svörtu leðurbuxurnar með slatta af augnskugga ásamt restinni af hljómsveitinni sem var ekkert alltof fríð. en þeir meiga þó eiga það að þeir kunna að spila tónlist. var þetta þunglyndis sjálfsvígs rokk af bestu gerð og þandi ragnar sólberg raddböndin af stakri snilld. var augljóst að fólk var vel með á nótunum hverjir þetta væru enda tóku allir tónleikagestirnir vel undir.
það sem á eftir sign kom er ég ekki alveg viss um hvað var. 2 menn, annar í engla búning, hinn í jólasveinabúning, að tala um hvernig okkur líkaði tónleikarnir. svo fóru þeir að tala um box og dansa ansalegann dans á sviðinu syngjandi "dösnum við í kringum..." sem endaði svo með því að þeir þóttust vera að slást með tilgerandi hljóðum. Var þetta án efa dapurlegasta framkoma og tilraun til kímni af einhverju tagi. svo við tölum um húmor að þá var ekki mikið um hann á svæðinu, húsvíkingar að segja leiðigjarnar sögur um allt og ekkert og voru þetta nánast bara leiðindi. ef engin hefði verið tónlistin að þá hefði þetta verið hreint helvíti.
en eftir þessa döpru sviðsframkomu húsvíkinga komu að lokum maus. spiluðu þeir í dágóðan tíma, tóku nokkur ný lög í bland við gamalt og gott sem allir könnuðust við. en á meðan maus voru að spila að þá fækkaði verulega í húsinu og varð mér þá nokkuð ljóst að megnið af fólkinu hefði mætt í þeim tilgangi að sjá sign. allavega voru allir drengirnir með hár niðrá rass í deathmetal bolum horfnir á braut. en ég naut þess að hlusta á maus og voru þeir bara hin fínasta skemmtum auk þess að ég græddi bassanögl, magnað það.
svo í heild var husavík music festival-ið bara nokkuð gott, allavega það sem ég sá og heyrði. alltaf gaman að fara á tónleika og ekki er það verra þegar hljómsveitir sem maður unnir ágætlega eru að spila. á heimleiðinni var það sama uppá teningnum, siggi á 150 km/klst og vissi vart hvenær beygjur komu. en við komumst heim óskaddaðir þannig að ég hef ekki undan neinu að kvarta. ætla ég svo að gefa dáðadrengjum 6 stjörnur af 9 mögulegum, sign 7 stjörnur af 9 mögulegum og einnig maus 7 stjörnur af níu mögulegum. húmor húsvíkinga fær hins vegar aðeins eina stjörnu af 9 mögulegum.
dáðadrengir: ******
sign: *******
maus: *******
húmor húsvíkinga: *
skrifað af criticts
19:29
criticts