criticts hefur fengið til liðs við sig nýjan liðsmann, hann daníel starrason, en hann mun sjá um skrif með mér hér á síðuna. hugmyndin er sú að ég skrifi þá um nýtt efni og hann um eldra efni til að hafa fjölbreyttni í þessu. ég býð þig bara velkominn daníel
skrifað af criticts
14:52
criticts
engin gagnrýni núna, langaði bara að benda á síðuna hans guðna
http://gudninn.blogdrive.com/þar sem mér hlotnaðist sá heiður að vera í nýjustu myndasögunni hans
skrifað af criticts
20:49
criticts

nú er komið að henda inn þessum topp fimm lista en ég er að spá í að gera þetta þannig að það er listi yfir fimm bestu plötur ársins 2006, topp 10 listi yfir 10 bestu lög ársins 2006 og svo listi yfir fimm hljómsveitir sem ég hlustaði mest á '06. eftir mikla tölfræðilega útreikninga og almennar pælingar að þá er þetta útkoman:
byrjum á fimm bestu plötum ársins 2006:
1. hvar í hvergilandi - ókind
2. wolfmother - wolfmother
3. the garden - zero 7
4. wine for my weakness - pétur ben
5. and the glass handed kites - mew
plötur sem voru nálægt því að komast á listann eru: classics -ratatat, whatever people say I am, that's what i'm not - arctic monkeys, writer's block - peter, bjorn & john, ambulance - the telepathetics og dreams - the whitest boy alive.
næst ætla ég að taka fyrir topp 10 lög ársins:
1. in white rooms - booka shade
2. special - mew
3. boys from school - hot chip
4. dimension - wolfmother
5. ó, ég - ókind
6. above you - the whitest boy alive
7. young folks - peter, bjorn & john
8. this fine social scene -zero 7
9. a million ways - ok go
10. show me - the telepathetics
það getur vel verið að þið séuð ósammála mér með þessa lista en þið verðið þá bara að koma skoðunum ykkar á framfæri í gegnum komment kerfið á síðunni, komment sem fela í sér orðin basshunter, justin timberlake og boten anna eyðast sjálfkrafa.
svo ætla ég að koma með lista yfir hljómsveitir sem ég hlustaði mest á '06 en það þurfa ekki endilega að vera hljómsveitir sem gáfu út disk á árinu. en hann er eitthvað á þessa leið.
1. massive attack (gott að sofna við og hlusta á við dagleg störf)
2. ókind (flott íslensk tónlist)
3. pendulum (kom sterk inn í lok árs, party party)
4. mínus (come back ársins, gott að setja á mínus ef maður er syfjaður við lærdóm, eins og hressandi spark í punginn til að vekja mann)
5. elektróníka og britpop/indie tónlist situr svo í fimmta sæti.
þannig var nú það. ætla líka að veita hljómsveitunum cansei de ser sexy (CSS) og amon tobin verðlaun fyrir bestu hljómsveitir í desember mánuði.
takk fyrir mig og gleðilegt nýtt tónlistarár
skrifað af criticts
23:44
criticts