fimmtudagur, nóvember 15, 2007

bloc party, hljómsveit sem ég dýrkaði á sínum tíma og ber enn mjög mikla virðingu fyrir. þeir hafa hins vegar misst þennan dýrkunarstimpil sem eitt sinn var á þeim. eftir að hin óviðjafnanlega plata silent alarm kom út þá hefur allt verið niður á leið.

á eftir silent alarm kom út meðalmennsku platan weekend in the city sem jújú venst ágætlega en ekkert sem maður nennir að hlusta á dag eftir dag. nú er það nýjasta nýtt, lagið flux. þetta er farið að stefna í smá europop og orðið vel væmið. algjörlega hægt að dansa við í miklu ölæði svo lengi sem maður hlustar ekkert á textann.

ég hef ekkert á móti því að hljómsveitir þróist og spili ekki nákvæmlega sömu tónlist á disk eftir disk en þó er algjörlega óþarfi að skipta úr svörtu yfir í hvítt eða hvernig sem fólk vill orða það. verð að segja að ég vil aftur fá lög í silent alarm stíl.

nýja lagið flux á http://myspace.com/blocparty


skrifað af criticts 23:47 criticts

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

ég gerðist nú svo grófur að kaupa mér geisladisk, sem ég hef ekki gert í langan tíma. var það fyrsti diskur benny crespo's gang sem var að koma út. bjóst ég við miklu af honum þar sem ég hafði mikið hlustað á þrjú lög á myspace-inu þeirra og dýrkaði.

diskurinn stenst allar væntingar og gott betur en það, eins og með flesta diska verður hann betri við hverja hlustun og gæti ég trúað að ég verði búinn að læra alla textana við lögin þeirra fyrir næstu tónleika, ef ekki þá er ég með þá alla í bæklingnum sem fylgdi með. les þá bara þar.

ég segi allavegana að allir ættu að prófa að hlusta á þetta og eigandi græna ætti að fá þau að spila.

http://myspace.com/bennycresposgang


skrifað af criticts 23:16 criticts

fimmtudagur, nóvember 01, 2007

þá er iceland airwaves 2007 búið, fyrsta airwaves hátíðin sem ég fór á. ég sá fullt fullt af hljómsveitum spila, bæði íslenskum og erlendum, litlum og stórum, góðum og lélegum.

er að spá í að telja bara upp það sem stóð upp úr og það sem voru mestu vonbrigðin. til að starta þessu voru krakkarnir í worm is green ótrúlega góð, flott og með klikkað ljósashow. bloodgroup voru hress að vanda og stóðu fyrir sínu. dikta voru þeir sem komu mér mest á óvart, voru með flotta tónleika þar sem söngvarinn fór á kostum og endaði á því að trasha hljómborðinu sínu. mugison var gríðarlega flottur ásamt því að vera gríðarlega drukkinn, var með flotta hljómsveit þar sem m.a. pési ben spilaði á gítar og mun ég tvímannalaust fara á hann aftur á græna hattinum 8. nóv.

mesta svekkjelsið var líklegast að vera veikur síðasta daginn og því ekki geta notið annars fínna bloc party tónleika. hefði viljað vera að rokka í crowdinu en sat í staðin sveittur og illa líðandi á stól upp á svölum. næst mesta svekkjelsið voru ghostdigital og hairdoctor sem mér fannst bara plain lélegt, verð að segja að ég bjóst við meiru.

annars var þetta bara frábær hátíð, sá fullt meira sem ég nenni ekki að skrifa um..


skrifað af criticts 22:48 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3