föstudagur, apríl 28, 2006
ókind

við skulum lesa allar slæmu fréttirnar
af fræga fólkinu í blöðum
við skulum vona að eitthvað pínlegt hendi það
sem verði brátt á allra vörum
því sá sem sér stjörnuhrap má óska sér

við skulum finna okkur kaldan stað
á eyðilögðu og köldu skeri
við skulum skilja allt fræga fólkið eftir þar
og fylgjast síðan með hvað gerist
því sá sem króknar fyrst er verst klædda stjarna ársins

þetta syngja þeir í hljómsveitinni ókind sem nýverið gáfu út plötuna hvar í hvergilandi. verst klædda stjarna ársins er eitt skemmtilegasta og hugljúfasta íslenska lag sem ég hef heyrt í langan tíma og öll platan í heild er ótrúlega góð og vel unnin. hljómsveit þessi lennti í öðru sæti í músíktilraunum árið 2003 og er nokkuð greinilegt að á þessum þremur árum hafa þeir ræktað hæfileika sína því nú koma þeir sem fullmótað og áhugavert band.

platan er róleg og hress til skiptis, textinn er einfaldur en áhrifaríkur þar sem greina má nokkurn súrealisma t.d. eins og í laginu "Illar dylgjur" þá er sungið:"bæjarstarfsmaður, viltu reyta burt líkið úr eyranu á mér. bæjarstarfsmaður, viltu reyta burt arfann úr sjö fréttunum." (félagsfræðibrautarnemar, kallast þetta ekki súrealískt?). platan er stutt, aðeins 30 mín, en engu að síður bæði hjartnæm og gleðileg. það skiptir voða litlu hvaða tónlistarstefnu þú ert að fíla, það ættu allir að geta fundið a.m.k. eitt lag á disknum sem þeim finnst gott.

í gagnrýni sem ég sá um þennan disk þá er hljómsveitinni líkt við botnleðju á sínum fyrri árum, muse, radiohead og mars volta. ég veit ekki alveg hvað er til í þeim bendingum en það er nokkuð ljóst að þessar þrjár síðar nefndu hljómsveitir hafa alalr mjög sérstæðan söngvara og það hefur ókind líka. hljómsveitin er vel spilandi og ef söngvarinn fer í taugarnar á ykkur þá getið þið allavega notið góðs undirspils í öllum lögunum þar sem flottur hljómborðsleikur er mjög einkennandi. þetta er toppgripur og gaman verður að fylgjast með gjörðum þessarar hljómsveitar í framtíðinni, eina rétta í stöðunni að hafa augun opin og reyna að finna út hvar þeir eru að spila á tónleikum.

ókind - verst klædda stjarna ársins
ókind - heimsendi 19
ókind - ó ég (myndband)


skrifað af criticts 14:41 criticts

miðvikudagur, apríl 26, 2006
placebo

það hefur kannski farið fram hjá sumum en öðrum ekki að hljómsveitin placebo gaf út sína fimmtu breiðskífu nýverið. það hefur ekki mikið farið fyrir henni og hafa útvarpsstöðvar sem nást í akureyrarbæ ekki verið iðnar við að spila efni af disknum og ekki er ég með á hreinu hvað reykvískar stöðvar eru að bardúsa.

nýja platan, meds, skilur ekki mikið eftir sig þegar maður hlustar á hana í fyrsta skipti. en eftir nokkrar hlustanir verður hún betri, fleiri lög verða manni kunnug og hlustanlegri í kjölfarið. platan er rólegri en annað sem þeir hafa gefið út og minnir hún margt á plötu þeirra sem heitir black market music. ég verð samt að segja að hún nær engan vegin að fylgja eftir plötunni sleeping with ghosts þó svo að hún eigi alveg sín móment ef svo má að orði komast. bestu lög plötunnar að mínu mati og þau sem ég myndi mest vilja heyra á tónleikum eru sennilega "meds", "post blue", "one of a kind" og "song to say goodbye", allt lög í sprækari kanntinum þó svo að rólegu lögin séu góð suma dagana.

placebo munu svo vera á hróaskeldu núna í sumar en gott merki um hve vinsældir placebo fara dalandi er að á plaggati hátíðinnar sem búið er að hanna þá eru þeir þarna í smáa letrinu en ekki efst á baugi eins og þeir hefðu kannski verið þegar þeir voru hvað vinsælastir. plaggat þetta má finna hér. ég vona bara að þeir taki meira efni af gömlu diskunum en af þeim nýja, þó svo að brian molko söngvari hljómsveitarinnar hafi nýlega sagt í viðtali að hann væri orðinn svo spenntur fyrir að spila ný og fersk lög á tónleikum. hér er fínn listi yfir lög sem þeir mega spila á roskilde-festival:

bulletproof cupid
i know
every you every me
nancy boy
bruise pristine
plasticine
bitter end
soul mates
twenty years
i'll be yours
special needs
english summer rain
without you i'm nothing
this picture
meds
taste in men
song to say goodbye
peeping tom
pure morning
post blue
where is my mind?


skrifað af criticts 22:22 criticts

föstudagur, apríl 21, 2006
músíka

ég og friðgeir nokkur gerðumst svo kræfir að skella okkur á magnaða tónleika fyrir sunnan á vegum skólablaðs menntaskólans á akureyri. þar stigu á stokk ekki færri en 10 hljómsveitir úr öllum áttum tónlistarflórunnar. við mættum þó ekki fyrr en klukkan tíu og misstum þar af leiðandi af fyrstu böndunum en það kom ekki að sök þar sem við komum ákkúrat í tíma til að sjá þá hljómsveit sem við vorum spenntastir fyrir. við komum okkur þægilega fyrir meðal þeirra 60-70 manns sem þá voru á staðnum og fylgdumst með hljómsveitinni ég stilla sér upp á sviðinu. gleðispil, vel spiluð lög og húmor þeirra olli engum vonbrygðum og var sérdeilis skemmtilegt að fylgjast með þeim ég-liðum leika sitt efni.

á eftir þeim kom hver hljómsveitin á fætur annari. jan mayen spiluðu sitt prógramm af mikilli prýði og kyrjuðu hvað nick cave væri mikill haglapungur. því næst kom úlpa með sína sækadelik elektróníku sem fáir virtust meðtaka með góðu móti en ég skemmti mér með eindæmum. þá voru það gleðipoppararnir í jakobínurínu sem hoppuðu og skoppuðu um allt svið með tilheyrandi hljóðum og þá var fólksfjöldinn kominn hátt upp í 400-500 manns þó ég hafi nú ekki talið. öskur og illindi fylgdu hinum leðurklæddu og annars nöktu dr.spock liðum sem virtust ná vel til fólksins með skemmtilegri sviðsframkomu og látalætum. það voru síðan jeff who? menn sem slógu botninn í tónleikanna með vönduðu, diskópoppvænu tónlist sinni.

þetta voru sem sagt hinir glæsilegustu tónleikar, algjörlega 1000 króna virði. hins vegar er framtíð þess enn óráðin hvort meint tónleikagagnrýni muni nokkurtíman birtast í hinu virðulega muninsblaði, aðeins framtíðin getur leitt það í ljós.

úlpa - attempded flight


skrifað af criticts 16:20 criticts

sunnudagur, apríl 16, 2006
ok go

indie indie indie, ég veit að þið fílið það öll þó þið segið annað. ok go er indie hljómsveit sem ég hef tekið upp á að hlusta á nýlega enda voru þeir að gefa út plötu sem ber hið frábæra nafn oh no, sem sagt oh no með ok go. ekki bara er nafn hljómsveitarinnar gott heldur er tónlistin þeirra mjög áhlustanleg.

þessi seinni diskur þeirra er kannski ekkert meistaraverk og það situr kannski ekki margt eftir þegar hlustun á hann er lokið en hann á alveg sína spretti. lagið "invincible" hefur gert allt vitlaust hjá reykvíkingum auk þess sem lögin "do what you want", "it´s a disaster" og "a million ways" skila góðu groovi.

ok go - a million ways

ef þið fílið ekki lagið þá verðið þið engu að síður að tékka á myndbandinu við þetta lag. það fer alveg á topp 3 yfir bestu dansmyndbönd en þar situr around the world með daft punk á toppnum. jafnvel að læra þennan dans og taka hann á góðu kvöldi í sjallanum?

ok go - a million ways (myndband)


skrifað af criticts 17:05 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3