mánudagur, janúar 31, 2005
heima

þá er ég kominn heim frá svíþjóð og var þetta bara frábær 6 daga dvöl. gerðist margt og mikið, ég keypti slatta af dóti, hjólaði og labbaði meira en ég gerði allt síðasta ár, spilaði popppunkts spilið, ég og jón fórum að papparazziast - takandi myndir af svíum við misgóðar undirtektir. kannski að ég birti eitthvað af þessum myndum hérna eða á myndasíðunni.

svo er skólinn að byrja aftur og leggst það bara ágætlega í mig.

allt í mjög svo góðu standi


skrifað af criticts 19:22 criticts

fimmtudagur, janúar 27, 2005
phantom



jebb, þetta er phantom. hvort sem þið trúið því eða ekki


skrifað af criticts 01:54 criticts

miðvikudagur, janúar 26, 2005
svíþjóð

ekkert nema gamalt fólk á glænýjum bmw í malmö

einnig hef ég fjárfest í jójó og skal það aftur komast í tísku, vantar aftur að það komi jójó æði



skrifað af criticts 21:47 criticts

sunnudagur, janúar 23, 2005
bleikt hjól

dagurinn var tekinn snemma og vaknaði ég kl hálf fimm um nóttin. leiðin lá beinustu leið útí keflavík. þar mætti ég í flugstöðina einum og hálfum tíma fyrir flug, tékkaði mig inn sem tók kannski svona 2 mín þar sem var lítið um fólk. þar næst rölti ég í gegnum tollinn og sáu þeir ekkert athugavert við það að ég væri að ferðast með 3 flöskur af vaniludropum, enda voru þeir hálf sofandi. svo var ég bara eitthvað að brasa í fríhöfninni, sá ekkert skemmtilegt.

svo tók við flugið sem var bærilegt. get ég ekki kvartað undan ókyrrð en óþægindum get ég sko kvartað yfir. ég sat í sæti 11a sem var einmitt fyrir framan neyðarútgang. hafði það í för með sér að ég gat ekki hallað sætinu mínu aftur en það gat sko aldeilis gaurinn fyrir framan mig og það nýtti hann til fulls. svo ákvað ég að sofna, lagðist framan á dótið sem maður setur matarbakkann sinn á og drykkjaráhöld. svo þegar ég var við það að sofna að þá fékk ég svaka dúndur í hausinn, og svo aftur og aftur.. þannig að ég reisti mig upp og sá þar að í sætið var kominn svona 4 ára krakki að horfa á múlan í fartölvu og var ekki á því að vera rólegur. svo þannig að ég vakti það sem eftir var flugsins, ágætt flug svo sem.

svo fórum ég, jón og hrönn að rölta í danmörku, löbbuðum strikið, fengum okkur kfc sem var í fyrsta skipti sem ég fékk svoleiðis. það var samt allt lokað á strikinu og einhver kona kom og stalkaði okkur, bauð okkur að koma í barrak stresstest sem við afþökkuðum kurteisislega en þá fór hún að segja að við hefðum ekkert betra að gera og fór að elta okkur en hætti loksins eftir svona 50 metra. svo fórum við að skoða ny havn og tók ég ágætlega mikið af myndum sem ég set á thorvaldursn.tk. einnig koma myndir af vaxmyndastyttu safninu sem við fórum á, það var basic. systir mín setti viðvörunarkerfið í gang þegar hún ætlaði að láta mig taka mynd af sér með ensku konungsfjölskyldunni, þá hlupum við og það hætti eftir smá stund.

svo tókum við lest til malmö, og þegar þangað var komið að þá tók systir mín leigubíl með þungu töskuna mína heim til þeirra á meðan ég og jón þurftum að hjóla á hjólunum þeirra heim. svo ég var á hrannar hjóli sem er gamalt bleikt hjól með fótbremsu, nokkuð nett og ég og jón hjóluðum í gegnum miðbæ malmö og meira til á þessum fögru hjólum. og þarna er bannað að hjóla á gangstéttinni svo við þurftum að hjóla með bílunum, stoppa á rauðu ljósi og eitthvað svona madness. en það var stuð og við komumst heim fyrir rest. svo eftir einn þátt af lost að þá var gripið til popppunkt spilsins sem ég hafði keypt fyrir þau og þar vann ég, mikil keppni milli mín og jón tólistarnörds. var þett æsispennandi keppni allt frá byrjun til enda og var ég og jón báðir á síðasta reitnum sem var bjölluspurning, þar var ég fljótari á bjölluna og vann spilið.

svo er það bara bærinn á morgun og eitthvað stuð. perus oriam leiðangur með meiru. svo ég mun blogga það sem gerist hér í svíþjóð og má nú með sanni segja að criticts.tk sé orðið 1/42 sænskt blogg. takk fyrir takk


skrifað af criticts 22:19 criticts

laugardagur, janúar 22, 2005
svíþjóð

jæja, þá er ég bara flúinn til svíþjóðar.

adios


skrifað af criticts 13:55 criticts

miðvikudagur, janúar 19, 2005
over me

þá er aðeins eitt próf eftir, sagan. 8 próf búin og get ég ekki sagt að þau hafi verið mjög seðjandi. hefur bara gengið alveg bærilega í þeim svo ég er bara bjartsýnn á framhaldið.

þá styttist óðfluga í för mína til svíþjóðar. er búið að vera að ákveða hvað gera skal útí svíþjóð og eru komnar ýmsar hugmyndir sem að hljóma skemmtilega. er ég með ýmislegt á prjónunum sem ég þarf að sinna útí svíþjóð, kaupa ýmislegt perus oriam tengt, eitthvað fyrir mig og svo náttúrulega bara getting back to my roots. good old sweden. þetta verður án efa skemmtileg för og verður sennilega allt frábært nema eitt, sænska tónlistin.. alveg spurning hversu mikið maður á eftir að þola af henni. sem betur fer ætla ég að taka ipodinn minn með svo ég þurfi ekki að hlusta mikið á sænskt útvarp.

þættirnir lost.. ég verð að segja að þetta eru þrusu fínir þættir, allavega hef ég ekki getað hætt að horfa á þá. ég held að ég sé núna að upplifa það skeið þar sem ég er að vinna upp allt tapað sjónvarpsgláp á síðasta ári. árið 2004 var mjög dauft hvað varðar þann tíma sem ég eyddi fyrir framan sjónvarpsskjáinn, slæmt mál. svo núna er ég að taka mér tíma í að vinna það allt upp. og ef fólk er að leita sér að einhverjum þáttum til að horfa á að þá mæli ég eindregið með lost, plugged þættir.

svo vil ég bara óska tryggva og félögum hans í gettu betur liði ma til hamingju með það að vera komnir í átta liða úrslit í keppninni, yeb


skrifað af criticts 23:05 criticts

laugardagur, janúar 15, 2005
nýtt á criticts

jæja, nú er komið að því að krydda aðeins uppá síðuna.

það sem nú er nýtt á criticts er útvarpið. reyndar hefur það alltaf verið þarna en það hefur aldrei gert neitt nema verið þarna. nú þar sem ákveðið var að leggja niður xið977, skonrokk og radioreykjavík, að þá hef ég ákveðið að koma upp þeirri þjónustu að fólk, lesendur criticts geta náð í lög úr þessum útvarps lið til að hlusta á.

þetta útvarp er staðsett hérna til hægri og það eina sem þið þurfið að gera er að smella á lagið og þá á niðurhalið að hefjast.

verða þarna lög sem að mér líkar við og hef mikið dálæti af. fyrsta lagið sem hægt verður að ná í er lagið christmas day með bob justman.

og bara, go nuts


skrifað af criticts 21:00 criticts

fimmtudagur, janúar 13, 2005
almennt

þá er þessari fyrstu prófaviku að ljúka, eitt lífsleiknipróf eftir og þá er henni lokið. þannig að nú þarf ég að fara að læra um fóstureyðingar og svona ef ég ætla að ná þessu prófi.

var í dönsku í gær sem að gekk bara nokkuð vel, lokapróf sem gildir alveg heil 20% á lokaeinkunn. svo var enskan í dag og hún var bara bærileg. get ekki sagt að ég hafi þurft að brjóta mikið heilann í þessu prófi en svo veit maður aldrei nema maður hafi misskilið eitthvað.

ég er að spá í að fara í fjallið í dag þar sem það er mjög svo freistandi. er nefnilega alveg viss um að allur snjórinn á eftir að vera bráðnaður þegar ég kem aftur heim frá svíþjóð. svo ég er að spá í að kíkka eitthvað aðeins í dag.

jáá, sjóræningi sem er að þykjast lifa á steinöld, páfagaukurinn hans er framtíðarsinni og kemur með vélmenni og eitthvað.. plús það að þetta er leikið.. án efa með því verra sem ég hef á ævi minni séð.


skrifað af criticts 13:13 criticts

þriðjudagur, janúar 11, 2005
prófin

prófin byrjuð og ég búinn að slátra tveimur prófum, stæ og dönsku munnlegu. stærðfræðin gekk ekki jafn vel og ég hafði vonað en kannksi maður skríði yfir þetta með fimm. ánægður ef ég næ. svo var það dönsku munnlega sem var bara bærilegt. ég bablaði eitthvað óskiljanlegt sem var samanbland af dönsku og íslensku með dönsk-sænskum hreim, held að ragnheiður og selma hafi verið mjög heillaðar af þessum nýjungakennda hreim mínum.

svo er það komið á hreint að ég er á leiðinni til svíþjóðar beint eftir prófin. búinn að pannta flug og allt. það verður groovy, ætla að kaupa mér slatta af einhverju dótaríi og gera einhverja skemmtilega hluti. það verður sennilega eitthvað bloggað frá svíþjóð þar sem ég verð með tölvuaðgang. svo criticts verði 1/40 sænsk síða, verður ekki betra en það.

aðeins 7 próf eftir, easy peasy.. ég er ekkert að stressa mig neitt of mikið á þessum prófum sem er kannski ekki svo sniðugt. alltaf gott að hafa smá stress svo maður læri nú vel fyrir þetta allt saman.

meira var það nú ekki, so over and out


skrifað af criticts 20:50 criticts

föstudagur, janúar 07, 2005
voll

hvað er í gangi þessa dagana vildi ég fá að vita. í dag snéri ég heim eftir dag mikillar geðveiki og lærdóms.. settist niður, fékk mér kex og ákvað að fara í gta: san andreas, þar sem ég er ekki kominn shit áfram í honum. þrýsti ég á takkann sem ræsir sjónvarpstækið, kemur þá ekki eitthvað helvítis óhljóð og var ég viss um að sjónvarpið ætlaði að springa framan í mig. engin var myndin og er ég nokkuð viss um að það sé ónothæft. góð ending sjónvarp. 20-30 ára gamalt, á hápunkti ferils síns og þá tekur það uppá því að drepast. liggur við að maður hafi samband við framleiðandann.

svo þetta þýðir að það verður eitthvað lítið sjónvarp í prófatíðinni sem er svo sem ágætt, en á hinn boginn þarf ég þá að fara í sjónvarpsleiðangur eftir prófin og versla mér nýtt sjónvarpstæki.

prófinn innan fárra daga, stærðfræðipróf fyrst, maður verður að fara að læra svo maður dúxi þetta nú. er búið að vera veðmál í gangi milli mín og annars einstaklings um það hvor fær hærri loka einkunn í stæ. og við erum að tala um enga smá peninga sem eru í veði, 50 krónur, og ætla ég mér ekki að tapa því.

tæknilega séð var síðasti skóladagurinn á þessari önn í dag. ég þarf aldrei aftur að mæta í dönsku, thank you bobby! nema ég falli með stæl og þurfi að taka hana aftur, en ég læt það ekkert gerast.

ég er orðinn hooked á þessum joey þáttum sem er virkilega slæmt, þar sem þetta eru engir hágæða þættir.. sjálfstætt framhald af friends, joey flytur til los angeles til að reyna fyrir sér þar sem leikari, býr með syni systur sinnar og er hún sjál alltaf í heimsókn. þetta er nánast alveg eins og friends nema bara joey húnor, ekkert svona mix match á húmor eins og var í friends þar sem voru fleiri karakterar.

jeb, that´s about it


skrifað af criticts 18:54 criticts

fimmtudagur, janúar 06, 2005
( )

never have i ever felt,
like you hurt me today
never have i ever seen,
anyone treeding one so bad
I feel like nothing,
nothing´s ever gona work out.

svo söng bob nokkur justman, betur þekktur sem kgb eða kristinn gunnar björnsson. spilar hann á hljómborð í hljómsveitinni ensími og er án nokkurs vafa sá sem ég er mest hrifinn af í því bandi. var hann að gefa út lagið christmas day undir nafninu bob justman, þar sem hann spilar á gítar og syngur. er þetta lag að finna á disknum frjáls palestina sem er samstarfsverkefni ýmissa íslenskra listamann til hjálpar börnum í flóttamannabúðum í palestinu. er þetta snilldar diskur og má á honum finna nöfn á borð við quarashi, ensími, leaves, worm is green, bob justman, gus gus, mugison og fleiri. gefa þessir listamenn alla sína vinnu og er þetta mjög gott framtak að þeirra hálfu og öllum þeim sem að disknum komu. fannst mér ég endilega þurfa að láta ykkur vita af þessu og fær þetta 9 stjörnur af tíu mögulegum, hefði fengið 10 stjörnur hefði ekki verið lag með ghost digital á disknum.

skólinn byrjaður á ný eftir jólafrí og styttist í prófin..
kominn nýr þjálfari hjá mér í fótboltanum sem ég veit ekki alveg hvað heitir, kemur í ljós eftir æfinguna í kvöld.
er planið að fara til svíþjóðar í viku fríinu eftir prófin.
það vitlausasta sem ég heyrði í dag var þegar drengur í bekknum mínum hélt að þátturinn miami uncovered héti hollywood undiscovered, plús það að hann hamraði á þessu nafni í 5 mín yfir allan bekkinn í ensku í dag.. sigh.



skrifað af criticts 17:53 criticts

sunnudagur, janúar 02, 2005
2005

þar sem ég hef oft verið sagður vera skyggn að þá ætla ég að skyggjast inn í framtíðina og sjá hvernig árið 2005 mun vera. verður það eitthvað á þessa leið:

mikið verðum um dramatík á þingi árið 2005, mikil umfjöllun verður um kárahnjúka og mikið verður keypt og selt á íslenska- jafnt sem erlenda markaðnum. íslenskt íþróttafólk erlendis verður mikið í sviðsljósinu og ef mér skillst rétt að þá verður hörð keppni í enska boltanum það sem eftir er af tímabilinu. verður mikið um það að hljómsveitir verða að gefa út nýtt efni árið 2005 og munu einhverjar nýjar hljómsveitir koma upp á yfirborðið. verður mikið um það að bíómyndir komi út árið 2005 með mörgum frægum- auk nýrra leikara sem eiga eftir að gera það gott.


svona hljómaði framtíðarspáin fyrir árið 2005 og næst á dagskrá eru það hlutir sem verða inn og út árið 2005:

úti:

henson föt, að klæðast henson merktum fötum

gítarparty, þar sem fólk mætir með gítar og syngur sömu leiðinlegu lögin s.s. sólstrandagæinn

ben affleck, myndir með ben affleck verða og hafa alltaf verið úti

nokia símar, verða mjög útanlega árið 2005

popptíví tónlistarmyndbönd, verða úti þar sem rúv tekur yfir tónlistamyndbanda bransann

geisladiskar, fara tónlistarmenn að gefa allt sitt efni út á vinyl

greifinn, allir fara skyndilega að pannta pizzur hjá pizza 67

gta san andreas, hætta allir að spila hann og fara að spila hinn classic gta eitt

grænn litur, verður úti og má búast við að blár verði litur ársins 2005


inni:

läkerol, sænska nammið läkerol verður inn árið 2005

gamlir símar, bæði stórir hlunkalegir gsm símar auk heimasíma í eldri kanntinum

körfuboltamyndir, eins og jón nokkur sagði að þá munu körfuboltamyndir koma sterkar inn árið 2005

axlabönd og smekkbuxur, munu tröllríða íslandi árið 2005

slaufur, hættir fólk að ganga með bindi og grípur frekar til gömlu góðu slaufunnar, þó verða þær ekki rauðar á litinn

nintendo, gamla nintendo tölvan mun aftur koma til með að verða vinsælasta leikjatölvan

gömlu turtles þættirnir, rúv fer að sýna þá og munu þeir njóta mikilla vinsælda

perus oriam, verður þessari hljómsveit valin efnilegasta hljómsveit landsins árið 2005


svo ég tel það ráðlegt að þið reynið að lifa eftir þessu árið 2005 og þá ættuð þið að vera í nokkuð góðum málum.

ætla ég ekki að strengja nein áramótaheit en þó er ég með eitt markmið fyrir árið 2005 og er það að redda mér nintendo tölvu + nintendo byssu og duck hunter, auk allra hinna snilldar leikjanna. þannig að ef þið eigið nintendo eða þekkið einhvern sem á nintendo og er reiðubúinn að láta hana af hendi, að þá endilega látið mig vita

svo ég óska bara flestum gleðilegs tvöþúsund og fimm





skrifað af criticts 20:07 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3