mánudagur, mars 28, 2005
national

alle killar och flikkar, dalvík er den eneste kedeligeste sted på påskedag. alle mennesker bliver i huset med sine famlje och spiller bordspill. men suden garten mödest hvad man skal se på. det er så dejlig og jette kjul, alle killer og flikkar..


skrifað af criticts 01:41 criticts

sunnudagur, mars 27, 2005
örvar

orðið á götunni er það að örvar sé 27 ára sóðalegur gaur sem er alltaf að hanga með 18 ára gaurum. þessu hefur ýmist fólk haldið fram, t.d. afgreiðslukonur í lúgu og einhverjar vinkonur magga söngvara. svo þegar örvar reynir að útskýra sitt mál að þá er honum bara sagt að þegja og fólk skrúfar upp rúðuna hjá sér.

öll skírteini sem örvar ber gefa til kynna að hann sé 18 ára en hver veit nema hann hafi bara falsað þau, myndin af "honum" á þeim er ekki vitund lík honum. þannig að maður viet ekki beint hverju maður á að trúa.

en ef svo er að örvar sé átján ára sem að allt bendir til að þá gæti þessi misskilningur stafað af þvæi ógurlega skeggi sem örvar er með framan í sér. en samkvæmt áræðanlegum heimildum að þá ætlar örvar að raka sig í dag svo hann sé ekki misskildur sem 27 ára pervertíski gaurinn sem er alltaf í kringum 18 ára gaura.



skrifað af criticts 14:38 criticts

miðvikudagur, mars 23, 2005
empty

ég er alveg tómur, ég er ekki búinn að finna upp á neinu til að blogga síðustu 4-5 daga. gangi annars bara gettu betur liðinu vel í kvöld


skrifað af criticts 13:33 criticts

föstudagur, mars 18, 2005
listi vikunnar

hvað getur maður sagt um músiktilraunir. ég held að músiktilraunir 2005 hafi hrapað niður um fjörtíu stig hvað varðar gæði á tónlist. hér er rokk í þyngri kanntinum í fyrirrúmi og til dæmis var hljómsveitin elysium ekki svo ósvipuð cradle of filth, ekkert alltof gott. slæmt að bertel komst ekki áfram í úrslitakvöldið, veit ekki hvað hefur klikkað. sú eðalsveit sem það er.

en þó er þetta ekki búið og það gætu alveg komið einhverjar ágætar hljómsveitir, ég held bara áfram að hlusta.

en tilgangurinn með þessu bloggi var þó ekki að tala um músiktilraunir heldur að kynna nýjan lið hérna. er ég kominn með nokkra leið á að gagnrýna kvikmyndir og er ég að spá í að einbeita mér aðalega að tónlistinni þó ég komi kannski með eina og eina kvikmyndagagnrýni þegar mér dettur í hug. en þessi nýjung er vikulegur listi. listi yfir 5 hljómsveitir sem ég hef hlustað mikið á þá vikuna..

verður þetta topp 5 listi þar sem ég skipa hljómsveitum í sæti eftir því hversu góðar þær eru að mínu matiog hversu mikið ég hlustaði á eftirfarandi hljómsveit þá vikuna. sú besta verður í fyrsta sæti og þær sem eru ekki jafn góðar og sú besta koma í sætin fyrir neðan. verður þessi listi alltaf birtur á föstudögum þó ég geti ekki lofað því að hann verði alltaf en ég reyni mitt besta.

listi þessarar viku er eitthvað á þessa leið:

1. massive attack
2. depeche mode
3. quarashi (fyrsti diskur)
4. modest mouse
5. smashing pumpkins (pug)

kannski sjáið þið einhverjar hljómsveitir sem þið kannist ekki við en þá er bara um að gera að reyna að komast í kynni við þau bönd.


skrifað af criticts 20:18 criticts

fimmtudagur, mars 17, 2005
gettu betur

úrslit gettu betur voru ma hagstæð, 25-18 ma í vil. stóð tryggvi páll tryggvason sig eins og hetja og svaraði spurningum eins og honum væri borgað fyrir það. eitthvað var samt fólk að kvarta undan hita.. ég var bara nokkuð ágætur þarna aftast verð ég að segja. það var smá hiti en ekkert sem þurfti að vera að nefna aftur og aftur.

fór á hide and seek sem er bara sæmilegasta mynd. nenni ekki beint að vera að renna í gegnum hana en þetta er hrollvekju/plott mynd sem að er bara hin ágætasta skemmtun. fær hún 7 stjörnur af tíu mögulegum hér á criticts.


skrifað af criticts 00:58 criticts

miðvikudagur, mars 16, 2005
nýtt útlit

í kjölfar hönnunarkeppninnar átti að koma nýtt útlit á criticts.tk og þar sem engin innsend mynd var nothæf að þá tók ég mig bara til og gerði þetta útlit.

þar sem flestir í dag eru með svart útlit, eða mjög dökkleitt, að þá ákvað ég að vera anti-mainstream og vera með hvítt. ég var einn af þessu fólki með svart útlit, en ekki ekki lengur. hvítt á síðunni er basic. ég reyndi meirað segja að koma hvítum inn þegar ég gerði fmkrús síðuna en þeir voru svo mainstream að þeir vildu hafa hana svarta eins og allir aðrir. þar af leiðandi þurfti ég breyta henni og hafa hana svarta. svo ég verð bara með criticts hvíta og er ánægður með þetta.

megið endilega kommenta á nýja úlitið ef þið hafið eitthvað útá það að setja eða ef þið viljið hrósa því.


skrifað af criticts 15:44 criticts

þriðjudagur, mars 15, 2005
hönnunarkeppni

þá er hönnunarkeppninni lokið og lauk henni reyndar 10.mars.
var mikið um að fólk var að senda inn sitt framlag, heilir tveir sendu inn sitt verk. voru það raggi og birkir og voru þetta bæði glæsiverk.

var erfitt að dæma á milli en þar sem verkin voru bæði með ólöglega bakgrunna, birkir með svartann og raggi með marglita, að þá get ég notað hvorugt verkið. samt sem áður verður valinn sigurvegari og hef ég ákveðið að verðlauna þá báða. munu þeir skipta verðlaunaféinu á milli sín þannig að þeir fá hvor um sig 25 kr í verðlaun.

var þetta ströng og skemmtileg keppni og ég vona bara að það verði fleiri þáttakendur næsta 1. mars


skrifað af criticts 20:50 criticts

mánudagur, mars 14, 2005
menningarferð

þá er menningarferð lokið og ætla ég að koma með smá yfirferð á henni.
lagt var af stað frá ma kl eitt að staðartíma og fórum við með abuse.is rútum. í hvert skipti sem að ég hef ferðast með abuse rútum í ma ferðum að þá hafa þær alltaf bilað á leiðinni svo að mér leist ekkert á þetta. greip ég því tækifærið og stofnaði veðbanka áður en við lögðum afstað sem var þess efnis að menn áttu að veðja hvar á leiðinni rútan myndi bila. skemmst að segja frá því að rútuferðin var fín og hún bilaði ekkert svo enginn vann.

svo komum við í ms og fundum okkur herbergi. í herberginu voru gaurarnir í fm krúinu, birkir sem var titlaður róninn vegna þess að hann kom ekki með neitt með sér nema teppi og kodda. svo voru þarna óttar, valgerður, thea, anna, kristrún og ástrós.

svo um kvöldið var valið um að fara í idol "party" eða keilu. vorum búnir að ákveða að fara í þetta idol dæmi en svo fréttum við að þetta væri haldið í bláa salnum í versló og það ætti bara að sitja og horfa á idol, sem hljómaði mjög súrt. þannig að við ákváðum að fara í keilu. var ég á braut með óla, aroni, sigga, birki og báru. við fengum geðveikt crappy braut sem var svo slow að hún minnti á blindan fisk. þannig að keilan var frekar slöpp.

svo eftir keilunni var farið að rúnta með örvari (ö). það var sleipt, við skutluðum ragga, óla og sigga í skottið á honda accord þannig að þeir voru í kremju og svo vorum við að skemmta okkur við að aka yfir hraðahindranir á mikilli ferð og njóta þess að heyra þá öskra. þetta var víst allt mjög kósí hjá þeim þar til hann sigurður rak við. þá var þetta víst ekki jafn kósí. en svo fórum við á laugarveginn og á stað sem hét ariíögri eða eitthvað álíka jafn flott. ég labbaði þrisvar inná þennan stað og þrisvar út þar sem það var eitthvað massa bras á strákunum og er ég nokkuð viss um að þessi dyravörður hafi haldið að ég væri fífl. svo fór ég á nelly´s og sá þar 2 gaura vera með laptop á barnum að horfa á barnum. fór ég í skemmtilega spilakassa þarna en vann ekki neitt og fór því út. svo var aftur farið að rúnta með ö og endaði það ekki vel. lenntum í örlitlu óhappi með honduna sem varð þess varðandi að það þurfti að skrifa skýrslu í klukkutíma og það var frekar dauft. þó heyrðust skemmtilegir frasar á borð við "pabbi hjá hvaða tryggingarfélagi er bíllinn" og margt annað. þetta var bara had to be there moment.

svo á laugardagsmorguninn var farið í sund. þar tókum við okkur til og fórum í körfubolta í laugardagslöginni. það var alveg brillíant, ég og kristrún tókumst mikið á og var rifið, tosað og drekkt. erum við búin að ákveða að útkljá málin með slag eftir skóla einhvern daginn. svo í karlaklefanum var fyrsta undratækið sem við fundum í reykjavík. það var svona græja sem maður skellti sundfötunum sínum í og þrýsti svo loki niður og þá þurkuðust fötin manns á sirka fimm sec. það var var massívt og fær þessi vél bókað 9 stjörnur af tíu mögulegum.

eftir sundið var farið í kringluna. þurftum við að hanga í kringluni í fjóra tíma sem var frekar súrt. menn brugðu á það ráð að taka strætó heim eða bara labba. ég og aron nenntum því þó ekki og fundum hurð sem leiddi inn í kringlubíó og vorum við svo heppnir að það var ákkúrat hlé. var valið þá á milli bangsímon eða coach carter. völdum við þá síðari en það voru nú meiri mistökin. þetta var alveg hreint skelfileg mynd og veit ég ekki hvað samuel j. var að spá. síðari hluti coach carter fær ekki nema 2 stjörnur af 10 mögulegum.

svo komum við í ms og vorum eitthvað að hanga þar og fórum meirað segja í leik þar sem var teiknað skotskífu á töfluna og svo notuðum við juggling boltana sem jómbi keypti sér til að kasta. skemmst að segja að þá vann ég þessa keppni með miklum stæl og var enginn sem átti roð í mig. valgerður lennti í öðru sæti, raggi í 3. sæti og svo var það thea sem lennti í fjórða sæti.

eftir að hafa tekið því rólega í ms í örlitla stund lá leiðn á hróa hött þar sem átti að borða. lenntum við strákarnir á sucky borðum alveg við útganginn þar sem allir löbbuðu inn og út og var það þess valdandi að okkur var ískalt. pizzurnar voru ekkert spes og frostið var óbærilegt svo að hrói hötttur fær núll stjörnur og er þar með það fyrsta sem ég gef ekki neina stjörnu.

svo fór ég með jómba og aroni á múlan rús í fg á meðan restin af krúinu fór til frænku örvars að drekka. átti ég lítið áfengi og var ekki beint í stuði til að drekka svo að ég skellti mér bara í leikhús sem var innifalið í verðinu, annars ekki viss um að ég hefði farið. en þetta var hreint og beint alveg magnað leikrit. massa flott ljósashow og gott hátalakerfi skemmdi ekki fyrir og fær þessi sýning átta stjörnur af tíu mögulegum. væri ekki heimskulegt hjá fólki sem á leið hjá fg að skella sér á þessa sýningu. en í fg sá ég undratæki númer tvö. var ég á klósettinu í mestu makindum og var að leita mér að bréfi til að þvo mér um hendurnar og sé ég þá hvar bréfið var í bláum kassa og ætlaði ég að teygja mér í bréfið, fór þá fyrir einhvern leysigeisla þannig að það kom bréf automatiskt útúr þessu. reif ég svo bréfið út og setti hendina aftur fyrir og þá kom aftur bréf. fannst mér þetta alveg hreint frábært og kláraði ég allt bréfið í tækinu. fann ég svo annað klósett sem var hliðiná og deildi þessari mögnuðu uppgötvun minni með hinu fólkinu sem var þarna. nokkuð viss um að þau voru jafn mikið í skýjunum yfir þessu og ég.

eftir leikhúsið var planið að fara í bíó á hide and seek, en þar sem leikhúsið drógst á langinn að þá misstum við af myndinni og ákveðið var að skella sér bara aftur í keilu í stað þess að fara uppí ms og gera ekki neitt. var miklu skemmtilegra í þetta skipti og var ég bara nokkuð góður. við vorum átta á braut en bara 6 skráðir til leiks. thea og kristrún skiptust á að gera, svo horfði anna á. en hinir spilararnir voru valgerður, jómbi, aron, óttar og ég. voru það ég og aron sem vorum í topp baráttunni en í síðasta rammanum gerði jómbi sér lítið fyrir og náði fellu, fékk aukaskot og náði aftur fellu, fékka annað aukaskot og náði aftur fellu og fékk þar af leiðandi turkey. með því að ná turky komst jómbi í 120 stig og vann leikinn. jæombi turky. svo skelltum ég og heiða okkur í þythokkey og var þetta bara nokkuð jafn leikur framan af þangað til að ég tók algerlega völd í leiknum og vann 9-2. heiða sá sjaldan til sólar í leiknum.

þurftum við að redda okkur úr keilunni og beilaði frímann á að sækja mig og verður hann því eftir þetta kallaður fríman beiler. þannig að ég, aron, óttar og jómbi tókum saman leigubíl og lenntum á einhverjum killer taxi driver. hann sagði aldrei orð, horfði alltaf beint fram fyrir sig og leit út fyrir að hafa drepið svona fimmtán manns. síminn hans hringdi á meðan við vorum í bílnum svo hann svaraði honum og sagði halló, hlustaði í smá stund og lagði svo á. þetta var alveg freaky. hefði ekki komið mér á óvart ef hann hefði verið að plana einhverja hriðjuverkaárás og menn hans hafi verið að staðfesta að þeir væru búnir að koma sprengjunni fyrir. svo komum við í ms og ég ætlaði að borga fyrir okkur en þá virkaði posinn hans ekki og hann fór að aka eitthvað um með mig einan í bílnum til að reyna að ná betra sambandi sagði hann. mér leist nú ekkert á það og eftir nokkrar tilraunir við að láta posann virka fór ég og náði í aron og hann borgaði með peningum. aron, jómbi og óttar voru allir hræddir um líf mitt þegar þeir sáu útum rúðuna hann eitthvað vera að rúnta með mig einan í bílnum. þetta var life or death situation, ekki spurning um það.

eftir keiluna tókum við því rólega í ms þar til fullu gauarnir fóru að tínast inn um gluggann. voru þeir með mikil læti og hótaði siggi að berja fólk í andlitið. það var mjög skemmtilegt. en þetta fór þó mest friðsamlega fram og sofnaði ég stuttu eftir að þeir komu.

svo var vaknað kl 12 og keyrt heim á sunnudeginum og dottaði ég nánast alla leiðina svo það var ágætt. en er ég að spá í að gefa þessari ferð átta stjörnur af 10 mögulegum og segja það bara gott.


skrifað af criticts 19:41 criticts

þriðjudagur, mars 08, 2005
( )

ég trúi ekki hvernig hægt er að gera manni svona lagað.. hvernig fær nokkur manneskja sig til að geta gert svona? þeir byggja mann up af spennu og brjóta mann svo niður, þetta er allt leikur í þeirra augum. þeir sem græða á því að kvelja áhorfendur

ég er semsagt að tala um að þáttur nr. 19 af lost verður ekki sýndur í bandaríkjunum fyrr en 13. apríl og ég vil benda fólki á að það er meira en mánuður! þar til 13. apríl er. þeir sem hafa horft á lost skilja kvöl mína


skrifað af criticts 18:46 criticts

sunnudagur, mars 06, 2005
veikindi

ekkert að frétta. ég er búinn að vera veikur síðan á föstudaginn með góðann 38.5° hita. ég horfði á tvær fanta fínar myndir í gær, white chicks og catch me if you can. white chicks var óskup tilgerðarleg og maður fékk stundum aumingjahroll þegar maður var að horfa á hana en þegar maður er með hita og ekki alveg viss hvað er að gerast að þá truflar það mann ekkert. held að white chicks fái 7 stjörnur af 10 mögulegum.

catch me if you can fór fram úr öllum mínum væntingum. ég var búinn að vera með mikinn móral í garð þessarar myndar þó ég væri ekki búinn að sjá hana, sagði öðrum að hún væri ömuleg og svona. svo fór fólk sem hafði séð myndina að hella sér yfir mig og segja mér að þetta væri frábær mynd og allt þar á milli svo að ég ákvað að taka hana til að afsanna það allt. þetta reyndist bara vera hin besta skemmtun og ótrúlegt hvað einn gaur getur gert. þar sem þetta er sannsöguleg mynd að þá held ég nú að eitthvað hafi verið örlítið ýkt þarna en samt var þetta bara frábær mynd. hún fær án nokkurs vafa 9 stjörnur af tíu og mæli ég vilt og galið með því að þeir sem ekki hafi séð þessa mynd skapi sér tíma til þess að sjá hana.

ljótt er það þegar foreldrar mínir halda 20-30 manna veislu hérna heima. ég faldi mig í einu herbergi með ipod og nintendo en þrátt fyrir að svo einangraður að þá komst ég ekki hjá því að heyra alla frammi vera að tala dönsku eins og einhverjir vitleysingjar, syngja svo danska lagið. hreint helvíti skal ég segja ykkur


skrifað af criticts 20:03 criticts

þriðjudagur, mars 01, 2005
hönnunarkeppni

jæja, þá er komið að árlegu hönnunarkeppninni hér á criticts.tk sem haldin hefur verið 1. mars frá því að elstu menn muna. byrjar keppnin í kvöld og er til 10. mars. fyrir þá sem ekki vita hvað fellst í þessari hönnunarkeppni að þá skal ég útskýra það.

þessi keppni snýst um það að hanna nýtt útlit á criticts.tk. ég er orðinn leiður á þessu svarta útliti og mér vantar eitthvað nýtt og ferskt. þetta fer þannig fram að þið náið í myndina af criticts kallinum og logo-inu, breytið því eins og ykkur finnst flott og haldið að mér líki og sendið mér svo. verður svo texta og linkum breytt í stíl við litina sem notaðir voru í criticts kallinn.

reglur:
1. það verður að notast við criticts kallinn, hann verður semsagt að vera. má alveg breyta honum eitthvað en hann verður þó að þekkjast. logo-inu má alveg breyta.

2. litir sem notaðir eru í bakgrunninn mega ekki vera svo skærir að þeir skeri í augun.

3. myndin verður að vera á .png formi, ekki jpg. myndin sem þið náið í er .png svo þið skuluð bara ekkert vera að breyta því

4. annað er bara allt frjálst, og skilafrestur er til 10. mars

verðlaun eru 50 kr þannig að það er til mikils að vinna. ég hvet því alla sem ekki nenna að læra eða hafa ekkert að gera að taka þátt í þessari keppni. það er svo einfalt að taka þátt, aðeins þarf að ná í myndina og láta svo ýmindunaraflið reika. hægt er að nálgast myndina með því að smella á > mynd

ef einhverjar spurningar eru að þá bara skrifa það í comment eða tala við mig á msn.


skrifað af criticts 19:23 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3