mánudagur, september 17, 2007

hljómsveitin ég er þekkt fyrir skemmtilega texta og góða hljóðfæraspilun og er því ein af þeim hljómsveitum sem airwaves farar verða að sjá. ég minnist þess þegar ég fór á ég tónleika að hafa skemmt mér mjög vel.
þeir spila smellið grínpop og eru sponseraðir af sjálfum eiði guðjónsen og ættu margir að kannast við lagið eiður smári guðjónsen sem var spilað alveg þó nokkurn helling sumarið 2005, ef ekki þá er hægt að heyra lagið á myspace-inu þeirra.
http://www.myspace.com/hljomsveitinegég er ekki frá því að britney sé vinsælli nú en nokkurtíman fyrr af fjölmiðlun því nú er hún sögð ætla að múta k.fed til að fá forræði yfir börnunum þeirra, shit..
svo sá ég eitt það mest twisted sem ég hef séð en það er einhver mad britney spears aðdáandi sem er að segja fjölmiðlum að láta britney vera ásamt því að taka upp sig vera að syngja britney lög. by the way þá er þetta gaur..
chris crocker að grenja og verja britneychris crocker - gimme more
skrifað af criticts
22:01
criticts
fimmtudagur, september 13, 2007

áfram með airwaves en þar er pétur ben að spila. ég var að koma af tónleikum með honum sem voru líklega þeir persónulegustu sem ég hef farið á ef þannig má að orði komast. tónleikarnir voru á hrafnagili í litlu samkomuhúsi þar sem 70-80 manns sátu og hlustuðu á hann syngja lög sín, cover lög, þjóðlög og kvæði í um einn og hálfann tíma.
það sem var skemmtilegra við þessa tónleika en aðra sem ég hef farið á með pétri ben var að þarna spilaði hann á til skiptis á kassagítar og flýgil, ásamt því að nota ýmsa hljóðgervla og tölvuapparat sem hann var að fá sér og prófa í fyrsta skipti.
hann náði vel til áhorfenda sem voru fengnir til að syngja með í ýmsum lögum ásamt því þar sem hann sjálfur brá sér út í sal, stóð á stól og spilaði og söng. virkilega góðir tónleikar og ef fólk hefur ekki séð pétur ben live þá er algjörlega málið að fara á hann á airwaves.
http://myspace.com/peturbenekkert nýtt að frétta af britney...
skrifað af criticts
23:26
criticts
miðvikudagur, september 12, 2007

nú er um mánuður í iceland airwaves og ekki seinna en vænna að að rannsaka það sem er í boði. ég man eftir að hafa farið á tónleika með jan mayen í sjallanum fyrir einhverjum árum, nýverið eftir að þeir gáfu út fyrsta disk sinn. nú hafa þeir gefið út annan disk og hafa verið þó nokkuð í spilun í útvarpinu, einkum lagið joy ride.
ég held að ásamt mörgum öðrum séu jan mayen hljómsveit sem vert er að skoða á airwaves þar sem þeir eru ferskir og nýja efnið þeirra hljómar gríðarlega vel.
http://www.myspace.com/janmayen (skoða joyride og bez)
meira er svo í fréttum af britney spears því hún kom nú fyrst fram í langan tíma og var það á mtv music awards. hún á samt að hafa staðið sig agalega og að hún hafi ekki einu sinni sungið sjálf heldur hafi rödd hennar verið spiluð af segulbandi. hún á að hafa dansað illa og alls ekki verið í sínu besta formi, meira að segja á hún að hafa grátið baksviðs eftir atriðið. comeback-ið eitthvað að fara úr böndunum hjá stelpunni
skrifað af criticts
21:00
criticts
sunnudagur, september 09, 2007

nú er iceland airwaves í október og ekki seinna en vænna að fara að skoða hvaða hljómsveitir eru að fara að spila og á hvað maður á að kíkja á. ég er hér búinn að gera lista yfir þær hljómsveitir sem ég er spenntastur fyrir að sjá en þess má geta að það eru líka hljómsveitir sem eru að fara að spila sem ekki komust á listann en væri gaman að sjá.
Ampop
Benny Crespo's Gang x
Bertel
Bloodgroup
Dikta
Ég x
FM Belfast
GusGus x
Hairdoctor x
Jan Mayen x
Leaves x
Lights on the Highway
Motion Boys x
Mr. Silla & Mongoose
múm
Samúel J. Samúelsson Big Band x
Singapore Sling x
Skátar
Sometime
Soundspell
Sprengjuhöllin
The Musik Zoo
The Telepathetics x
Úlpa
Ultra Mega Technobandið Stefán
Worm is Green x
Wulfgang
XXX Rottweiler
!!! (chk chk chk) x
Bloc Party (UK) x
Boys in a Band (FO)
Chromeo (CA)
Deerhoof (US)
Grizzly Bear (US)
Ms John Soda (DE)
of Montreal (US)
Trentemøller In Concert (DK) x
Mugison
My Summer as a Salvation Soldier
Pétur Ben
Stafrænn Hákon
VilHelm
þær hljómsveitir sem eru x merktar eru eitthvað sem ég verð að sjá og ég verð illa reiður ef eitthvað af því verður á sama tíma. finnst samt súrt að bang gang séu ekki að spila.
http://www.icelandairwaves.is/svo er það að frétta af britney spears að það eru 4 ný lög búin að leka á netið ásamt því að íslensku dagblöðin eru farin að skrifa um endurkomu hennar. það er grein um það í fréttablaðinu í dag fyrir áhugasama.
skrifað af criticts
15:45
criticts
sunnudagur, september 02, 2007

hin umdeilda þokkadís britney spears er greinilega á fullu í að undirbúa comeback eftir allt ruglið sem hún er búin að vera í upp á síðkastið.
komin eru tvö ný lög, cold as fire og gimme more. hér er britney orðin lífsreynd og hörð, farin að blóta og sem dæmi um það eru upphafsorðin í gimme more:"it's britney bitch"
saklausa stelpan hefur svo sannarlega horfið í allri eiturlyfjaneyslunni því kemur hún með tvö gríðarlega harðkjarna danslög sem enginn ætti að láta framhjá sér fara...
britney spears - cold as fire og gimme more"i'm cold as fire baby
hot as ice
if you have ever been to heaven
this is twice as nice!"
skrifað af criticts
00:00
criticts