miðvikudagur, febrúar 28, 2007

jæja þetta er færsla númer tvö í febrúar mánuði, flott afrek. það gæti vel verið að það verði skrifað eitthvað meira í mars mánuði, ég lofa allavegana einni færslu. ein færsla á mánuði er fínt lágmark

Efnisorð:



skrifað af criticts 17:59 criticts

fimmtudagur, febrúar 01, 2007
The Piper at The Gates of Dawn

Til að standa við fyrri áskoranir ætla ég að hoppa aftur í tímann, nánar tiltekið 40 ár því eins og alþjóð veit býr gleðin í þessu gamla. Árið 1967 var gott ár, menn eins og Jimi Hendrix, Lou Reed og Jim Morrison urðu áberandi í tónlistarlífinu, Cream gáfu út hugsanlega sína bestu plötu, Disraeli Gears, og Jefferson Airplane gaf út sitt meistarastykki, Surrealistic Pillow. Við ætlum þó að einbeita okkur að fjórum skólapiltum í London sem stofnuðu hljómsveit sem átti eftir að slá öll vinsældamet, Pink Floyd. Fyrsta platan, The Piper at The Gates of Dawn, er yfirleitt ekki talin meðal þeirra verka sem hljómsveitin varð síðar fræg fyrir en er þó án efa eitt sérstæðasta tónverk sögunnar. Áður en lagt var í gerð plötunnar hafði hljómsveitin náð ágætu orðspori í London fyrir vasklega sviðsframkoma og gefið út tvö lög sem notið höfðu töluverðra vinsælda, See Emily Play og Arnold Layne sem bæði eru uppsprottin frá forsprakka hlómsveitarinnar, Syd Barret. Það kom því fáum á óvart þegar í ljós kom að lög plötunnar yrðu flest samin af Syd, sem bæði var kúnstugur í textagerð sem og lagasmíði.

Platan opnar með laginu Astronomy Domine, lag sem fylgdi hljómsveitinni æ síðan og opnaði til að mynda safndiskinn Echoes. Lagið hefst á blöndu af skringilegum hljóðum sem áttu sér á þessum tíma enga hliðstæðu og gítarriffi sem erfitt er að gleyma. Hér má einnig strax heyra kúnstir Syds í textagerð, textarnir kunna að vera lítt skiljanlegir en þeir passa vel við melódískar laglínurnar. Astronomy Domine er klárlega hápunktur fyrri hliðar plötunnar en lögin sem á eftir fylgdu eru þó ekki af verri endanum. Lög eins og Matilda Mother og Lucifer Sam eru að mörgu leyti dæmigerð fyrir tónsmíðar Syd Barrets, byggð upp á einföldum melódíum og allt að barnalegum textum sem þó henta svo vel.

Seinni hlutinn hefst á instrumental verkinu, Interstellar Overdrive, sem líkt og Astronomy Domine hefst á gítarriffi sem seint gleymist og þróast svo út í bullandi sækadelíu sem virðist engan endi ætla að taka. Lagið var á þessum tíma stór þáttur á tónleikum hljómsveitarinnar enda einstaklega vel fallið að stórbrotinni sviðsframkomu sveitarinnar. Einnig má greina ýmislegt þarna sem hljómsveitin hélt í eftir að Syd yfirgaf bandið, eða öllu heldur var yfirgefinn. Hin lögin skortir kraftinn sem einkenndi Interstellar en eru engu að síður byggð upp á einföldum laglínum í anda þeirra laga sem höfðu áður náð vinsældum. Sér í lagi má nefna lagið Bike sem er yfirfullt af hljóðeffektum og melódíum sem voru einkennandi fyrir plötuna.

Þrátt fyrir að plötuna vanti heildarmyndina sem síðari verk Pink Floyd voru svo fræg fyrir þá er hér á ferðinni alger gullmoli í sögu prog-rokksins. Framúrstefnuleg tónlistin átti vel við og dreif áfram fleiri listamenn í þessum anda. Þetta er án efa plata sem ég mæli með, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, jafnvel þeir allra útvarpsskemmdustu eiga að finna eitthvað þarna sem þeim líkar við.

Brjálaðir demantar eins og þessi finnast ekki á hverju strái.

Shine on


skrifað af criticts 00:26 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3