fimmtudagur, mars 30, 2006
bruise pristine

band of horses framkvæma dapurlega indie-tónlist sem vert er að hlusta á. útpældar melódíur í bland við sjóðheitan, fágaðan og vandaðan söng hafa gert þá jafn fræga og þeir eru nú. tel ég að það líði ekki að löngu þar til músík þeirra fari að óma á öldum ljósvakans hér á íslandi
band of horses - the funeralætla líka að bomba inn hérna lagi með hljómsveitinni danielson sem ég veit voða fátt um annað en að þetta er maður einn sem semur mest megnis af tónlistinni og syngur, fær svo systkini sín með sér í sönginn og eitthvað að hljóðfæraleiknum
danielson - did i step on your trumpetsvo virðist deiglan hér á akureyri ætla að koma sterk inn um páskana, halda tvenna tónleika sem ég tel að eigi eftir að vera magnaðir. miðvikudaginn 12. apríl mun benni hemm hemm ásamt kgb, hljómborðsleikara og hugmyndasnilling ensími halda tónleika en kgb mun koma fram sem bob justman sem er solo verkefni hans. seinna í vikunni laugardaginn 15. apríl munu jeff who? ásamt numer null koma fram á sama stað. tónleikar og tjútt í páskafríinu
skrifað af criticts
00:15
criticts
mánudagur, mars 27, 2006
cocorosie

indie-folk-tronic tvíkeykið cocorosie skipa þær bianca og sierra casady. þær ólust ekki upp saman en voru sameinaðar fyrir nokkrum árum og hófu þá strax að sjóða saman- og skapa tónlist. framandi, seðjandi, heillandi tónlist undir sykursætum söng einkennir tónlist cocorosie og ég er ekki frá því að maður verði bara betri einstaklingur á að hlusta á músík þeirra, allavegana hef ég ekki getað annað en að hlustað daglega á þær eftir að mér var bent á hljómsveitina.
svo fyrir þá sem þekkja til tónlistarinnar, eða verða gripnir ofsahrifningu, að þá munu þær halda tónleika á íslandi í maí á þessu ári. eiga tónleikar þeirra að vera sönn upplifun og svo ég vitni nú af event.is:"Áhorfendur geta aldrei vitað við hverju á að búast en stundum eru hátt í 10 manns með þeim á sviðinu; allt frá fiðluleikurum upp í "human beatbox". Myndvarpar og risatjöld eru notuð til að skapa sjónræna veislu og þar má allt eins sjá gamlar barnateiknimyndir sýndar hægt; áhrifin eru í senn drungaleg og barnslega sakleysisleg."
smelli hér inn laginu noah´s arc, titil laginu af nýjasta disknum þeirra, og myndbandinu við það
cocorosie - noah´s ark
myndbandið
skrifað af criticts
19:48
criticts
föstudagur, mars 17, 2006
donnie d

nú er komin helgi og þá fer fólk að hugsa um teiti og skemmtanir. skemmtanagildi þessara athafna stjórnast eindregið af tónlistarvali skemmtanahaldara og keppast þeir því um að finna eitthvað með nægilega góðu groovi til að halda fólki á staðnum og í besta falli dansandi. þar er ég með lausnina fyrir þig kæri skemmtanahaldari - xploding plastix, norskur hress dúett. lúðrasveitar elektróníka er það sem öllum skemmtunum vantar þessa dagana og þar koma þessir félagar til bjargar
trip-hop og elektróník er það sem gerir góð party, hvenær hættu til dæmis einstaklingar að spila prodigy í símum teitum? einn góðan daginn verður haldið gott prodigy party, e-pillur og glow stick vel þegin
xploding plastix - the famous biting guy
skrifað af criticts
20:18
criticts
miðvikudagur, mars 15, 2006
bullfrog

artic monkeys, bob dylan, clap your hands say yeah, deftones, franz ferdinand, guns n' roses, morrisey, placebo, sigur rós, the streets, tool, roger waters og kanye west.
allt eru þetta staðfestir listamenn á hróaskeldu 2006 og get ég fullvissað mig um að allir ættu að geta fundið sér eitthvað til að hlusta á, ásamt því að það eru mörg önnur smærri bönd sem eru staðfest og gaman væri að heyra í. ekki má líka gleyma því að eru 101 dagur í hátíðina svo það eiga enn eftir að bætast tugir hljómsveita við þennan lista.
ég er búinn að pannta flugmiðann út svo nú er fátt annað hægt að gera en að naga sig í handabökin af spenningi og horfa á dagatalið á fimm mín fresti til að gá hvort þetta sé ekki alveg að fara að byrja. ég hvet líka alla sem hafa einhvern áhuga á að fara að skella sér þar sem þetta á eftir að vera frábær skemmtun, jafnvel ef þið hatið tónlist þá má alltaf skemmta sér með fólki hvaðan af úr heiminum.
ætla að smella hér tvem lögum með hljómsveitinni clap your hands say yeah þar sem hún er nýjust á listanum og var að gefa út sinn fyrsta disk nú ekki fyrir svo löngu. hress, skemmtileg indie tónlist sem vert er að hlusta á hvar sem er. þó ætla ég að segja að ef þið fílið ekki sönginn að þá skuluð þið ekkert vera að eyða of miklu púðri í að hlusta á þetta því hann er nánast það sem gerir plötu hljómsveitarinnar að því sem hún er.
clap your hands say yeah - heavy metalclap your hands say yeah - gimme some salt
skrifað af criticts
20:11
criticts
miðvikudagur, mars 08, 2006
ratatat & plötubúð

elektróník er öllum holl og new york hljómsveitin ratatat lætur gítarspili mæta elektróník og skapar þar með villtan trans, gott groove og skemmtilega danstónlist. þetta er duo sem samanstendur af gítarleikaranum mike stroud og hins vegar tæknihausnum evan mast.
tónlist þeirra svipar til vel þekktu hljómsveitarinnar daft punk og kemur það manni ekki á óvart að finna á allmusic að það er eina hljómsveitin sem þeir telja sig vera undir áhrifum af.
ég segi að við stökkvum úr klassískri party músík næstu helgi yfir í ratatat, smellum þeim í græjurnar og dönsum þar til nóttin hættir að vera ung. að sjálfsögðu meina ég þá fyrir eða eftir ampop, dikta og hermigervils tónleikana
ratatat - seventeen yearsnæsta mál á dagskrá. upp hefur risið sú umræða að stofna eigin plötubúð sem selur aðeins efni eftir góða tónlistarmenn, í stað þess að vinna í búllu sem selur slæma tónlist. tel ég þetta vera hina bestu hugmynd sem ég hef heyrt lengi og væri gott mál að láta hana verða að veruleika. ég fengi þá með mér vel valið lið innkaupastjóra, einn sem myndi kaupa inn góða hip hop tónlist, einn sem sér um góðu djazz tónlistina, einn sem sér um radiohead plötukaup og annan sem sér um the mars volta, o.s.fr.
einstaklingur sem kæmi inn og spyrði um blink 182, fólk sem ég gef mér leyfi fyrir að segja að sé með lélegan tónlistarsmekk, verður vinsamlegast beðið um að ganga út. það er fátt annað ósanngjarnara en að þyggja peninga þeirra í skiptum fyrir lélega tónlist.
svo getið þið lagt ykkar að mörkum við að fjármagna þessa búð, annað hvort með nóg af lottómiðum eða klinki svo ég geti farið að stunda senjor salsa af miklu kappi í kössum bæjarins
skrifað af criticts
22:46
criticts
þriðjudagur, mars 07, 2006
the go! team

segjum sem svo að ég væri að vinna í plötubúð, einstaklingur myndi nálgaðist mig og spurja:"ég er að leita eftir ferskri, frumlegri, gleðiplötu með góðum hljóðfæraleik, töktum og sömplum, ekki myndi skemma fyrir ef meðlimir væru af báðum kynjum og gæti hvert þeirra spilað á mörg hljóðfæri. áttu til eitthvað svoleiðis?"
þessi maður má vera glaður með að ég sé að vinna þarna því ég myndi smella á hann plötunni thunder, lightning, strike með hljómsveitinni the go! team. þessi hljómsveit samanstendur af þremur köllum og þremur konum og býður hún upp á allt ofarnefnt. band þetta gerir mikið upp á spilagleði og hamingju, þessu myndi maður tvímannalaust skella á fóninn á meðan maður keyrir um með brynjuís í hendi og sól á himni.
samblanda af gleðipoppi, góðum töktum og sömplum ásamt hip hop ívafi má finna á þessari plötu, sungin sem ósungin lög, og ráðlegg ég þunglyndu fólki að leggja á hilluna þær hljómsveitir sem syngja um hve erfitt lífið sé og að ekkert verði betra. í stað þess smella the go! team í spilarann og fagna gleðinni.
junior kickstart: hratt, ósungið lag með góðu grúvi, ásláttar-, strengja og blásturshljóðfæri notuð, eitthvað fyrir alla.
the go! team - junior kickstart
skrifað af criticts
18:24
criticts