þriðjudagur, nóvember 29, 2005
sigur rós

nú í gær sá ég sigur rós stíga á svið laugardalshallarinnar. eftir fremur misheppnaða helgi var þetta það eitt af fáu sem gat gert þessa suðurferð þess virði að fara hana. tónleikarnir voru einstakir líkt og hljómsveitin sjálf og gat maður ekki annað en tekið eftir því hvernig þeir höfðu áhrif á fólkið allstaðar í kringum mann, sumir göptu af hrifningu á meðan annað fólk grét, svo sterk áhrif hafði flutingur sigur rósar á það! þeir spiluðu með hjálp lúðrasveitar og hljómsveitarinnar aminu sem hafði hitað upp fyrir af mikilli snilld.
sigur rós notaðist mikið við tjöld, annað tjaldið var bakvið þá og var myndum varpað á það á meðan þeir spiluðu en einnig var tjald sem fór fyrir sviðið. tilgangur þess var að ljósum var varpað á hljómsveitarmeðlimina þannig að skuggarnir af þeim komu risastórir á tjaldið sem var ótrúlega flott og eitthvað sem maður hafði ekki upplifað á tónleikum.
það var greinilegt að allir þeir sem komu að þessum tónleikum, hvort sem það voru hljómsveitameðlimir, ljósamenn eða aðrir, lögðu allt upp úr því að gera tónleika sem besta enda eftir tónleikana var fátt annað hægt að segja en "vá". flottasta tónleikarshow og tónleikar sem maður hefur farið á, þvílík upplifun
skrifað af criticts
00:52
criticts
mánudagur, nóvember 21, 2005
reykjavík og danmörk
ég var á white stripes tónleikum sem voru bara svona helvíti basic. var nokkuð um mistök en samt sem áður voru tónleikarnir mjög góðir.
það er hins vegar eitt tónlistarmyndband sem ég verð að deila með ykkur en það er myndband með danskri 70's hljómsveit sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir en hún er hér að flytja lagið apache. í laginu er flott grúv og sæmilegasta lag í alla staði en það er hversu hallærislegt myndbandið er sem gerir þetta svo gott. myndbandið er 45 mb en þetta myndband er svo sannarlega þeirra megabæta virði.
apache
skrifað af criticts
14:09
criticts
fimmtudagur, nóvember 17, 2005
twink

hljómsveit dagsins er einkar skondin en er það hljómsveitin twink. ég er mikill áhugamaður um hljómborð og finnst gaman að fikta í þannig græjum, á ég eitt lítið hljómborð sem gengur fyrir batteríum og annað blásturshljómborð ásamt því að vera með í láni full size hljómborð. hélt ég að ég ætti ágætt safn hljómborða en það er ekki neitt samanborið við það sem twink á. hljómsveitin á sennilega stærsta safn leikfangahljómborða sem hægt er að finna,
virkilega stórt safn. er notast við þessi hljómborð ásamt öðrum hljóðfærum í lögunum en þar sem þetta eru leikfangahljómborð að þá eiga lögin nokkuð til að hallast út á barnalegu hliðina en þó er hægt að finna hreint út sagt mögnuð lög með þeim. broken record er nýjasti diskur hljómsveitarinnar og hef ég heyrt nokkur lög af honum en ég verð að segja að það sem ég hef heyrt af eldri diskunum er ég að fíla betur.
svo hér má finna hljómsveit sem spilar ljúfar laglínur á leikfangahljómborð í bland við breakbeat sömpl. mætti segja að þetta sé fremur mikil flipp hljómsveit en það er einstakt að einhver taki sig til og semji tónlist á svona hljóðfæri.
asleep in a snake basket - twinkhoppity jones - twinkcatnip - twink
skrifað af criticts
23:47
criticts
miðvikudagur, nóvember 16, 2005
xiu xiu

xiu xiu, ég skal lofa því að lögin sem þessi hljómsveit gerir eru betri en nafnið á henni. hljómsveitin samanstendur af fjórum meðlimum sem spila rafkennda tónlist í bland við háttstemmda synth takta og tilraunakennt rokk. hljómsveitin hefur gefið út fjóra diska en sá diskur sem ég er að einbeita mér að er diskurinn fabulous muscles sem gefinn var út árið 2004. er þessi diskur ótrúlega fjölbreyttur og heldur manni vel við efnið þar sem maður er annað hvort hugtekinn af tónlistinni eða sjokkeraður af framhleypni og tilraunasemi hljómsveitameðlima. þess má geta að þessi diskur var valinn diskur ársins 2004 í þáttunum karate og chronic á meðan þeir voru í fullu fjöri á x-inu. diskurinn er þungur á alla vegu, bæði þungur í hlustun og boðskapur hans er einkar þunglyndislegur þegar spáð er í því enda tel ég ekki að þessi diskur sé fyrir fólk með mjög þröngt tónlistarsvið. þetta er mjög tilraunakenndur diskur eins og ég hef nefnt áður og það er alltaf gaman að hlusta á eitthvað sem maður hefur ekki heyrt áður.
crank heart - xiu xiu
skrifað af criticts
23:27
criticts
þriðjudagur, nóvember 15, 2005
dungen

hver sagði að sænsk tónlist gæti ekki verið góð? að sjálfsögðu er það fyrsta sem manni dettur í hug gaurar í fleignum, naflasíðum bolum með allt gelið í hárinu þegar talað er um sænska tónlist en þó eru nokkrar hljómsveitir sem skera sig úr allri slæmu tónlistarflórunni í svíþjóð. dæmi um fínar hljómsveitir frá svíþjóð eru abba, jebb.. I went there, svo eru það liðsmenn loop troop og svo einnig þessir félagar hér til hliðar, dungen.
dungen spila folk/rokk tónlist í bland við sömplun ásamt því að forsprakki sveitarinnar gustav ejstes er búinn að stúdera hvern og einn tón frá árunum 1965 til '75 og því er tónlistin nokkuð í takt við það. á sínum yngri árum var hann að fikta í hip hop tónlist og komst þá upp á lag með að sampla og má heyra það bregða fyrir í sumum lögum þeirra. hef ég verið að hlusta á disk frá þeim sem ber nafnið ta det lugnt, hljómurinn á þessum disk er ótrúlega flottur og maður festist gjörsamlega í því sem maður er að hlusta á, diskurinn er heilsteyptur og gaman er að hlusta á sænskan söng.
ég er enþá að hlusta á þennan disk og á eftir að leggja loka mat mitt á hann. hann virðist þó verða betri og betri við hverja hlustun. fínn og flottur diskur sem allir ættu að prófa að renna í gegnum.
panda - dungen
skrifað af criticts
19:44
criticts
feilspor
já ég verð að viðurkenna að þessi japan translator var misheppnuð tilraun til að krydda upp á síðuna. var þetta bara til leiðinda og valdandi misskilningi þannig að ég er búinn að taka þetta út.
setti inn criticts wallpapaer, markmiðið er að koma með einn wallpaper á mánuði
skrifað af criticts
19:28
criticts
mánudagur, nóvember 14, 2005
japan
hverjum hefur ekki alltaf langað að vita hvernig nafnið sitt er á japönsku? nú er hægt að finna það út með nýjustu tækni criticts í samstarfi við síðuna japanese-name-translation.com
hægt er að nýta þessa frábæru tækni hér og hana er að finna í dálkunum hér til hægri
skrifað af criticts
21:05
criticts
föstudagur, nóvember 11, 2005
gagnrýni
hver þekki ekki þessa einkaþjálfara, stjórnanda body balance og body combat týpur, geta verið fínustu menn en oft eru þetta cocky leiðindar dólgar. þeir mega vera eins fínir eða eins leiðinlegir og þeir vilja því ekki er ég í þessum tímum hjá þeim, en þó er eitt sem enginn af þeim á að gera.. hver kannast ekki við high-tempo, frisky frisk lögin sem alltaf eru í þessum tímum? nóg með að maður þarf að hlusta á þetta allt saman á meðan maður er í ræktinni því þetta ómar um allt húsið, en þegar þessir náungar fara að syngja með lögunum sínum í hátt stilltu hljóðnemana sína þá er mælirinn nú orðinn talsvert meira en fullur.
svo þess lags menn sem syngja með high-tempo lögunum sínum fá ekki nema 2 af 10 í einkunn á criticts.
ég vil líka endilega benda fólki sem notar internet explorer að fara ekki á criticts.tk heldur fara frekar á http://criticts.blogspot.com þar sem það er kominn einhver über slappur .tk banner þegar maður notar ie. þeir sem nota firefox eða opera þurfa ekkert að spá í þessu
internet explorer fær nú ekki nema einkunnina 3 af tíu þar sem hann er slappasti web browserinn
skrifað af criticts
19:02
criticts
mánudagur, nóvember 07, 2005
mengun?
hver hefði haldið að renault bíll eins og minn mengi mikið? svo sannarlega gaurarnir hjá frumherja því þeir hleyptu bílnum mínum ekki í gegnum skoðun útaf því að hann á víst að menga of mikið. það er ekki eins og ég sé akandi um á amerískum dodge ram/monster truck! frumherji stendur fyrir peningaplokki og aumingjaskap
samkvæmt einhverjum útvarpsþætti á rás 2, þar sem þrjár stelpur voru að tala um jólaskreitingar, er orðið lufs helvíti heitt. ein sagði:"Já svona gervijólatré í potti, það er svo mikið lufs!"
verð að segja að þetta orð á vel um það sem gerðist á skoðunarstöð frumherja í dag, lufs!
skrifað af criticts
23:45
criticts
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
tickle fickle
blogg keðjupóstar virðast tröllríða íslandi þessa dagana, eins aumt og þetta er þá verður maður að svara kalli þjóðarinnar og gera lista yfir það sem maður hatar, heiðu version.. meira en fimm hluti.
ég tel mig hata:
stærðfræði sannanir, stærðfræðipróf, eðlisfræði, slæmt skólaefni, keðju bréf, tilgangslaus keðjubréf, keðjublogg, máttleysi, þreytu, skapstyggð, óheppni, fólk sem talar á við fimm manns, upplýsingaleysi, egg, soðið grænmeti, decutan/roacutan, snjóleysi í fjallinu, pungverki, blink 182, mariahu carey, maður var nefndur, allt í drasli, öfgahnakka, tuð, juð, pirring, slæma sjón og tímaleysi..
hate that shit
skrifað af criticts
18:50
criticts