sunnudagur, febrúar 27, 2005
funky basement

í gær var mikið gert, byrjaði á því að fara á oddvitann þar sem coral, kingstone, hölt hóra plús einhver önnur hljómsveit, sem ég man ekki hvað heitir, voru að spila. byrjaði þetta á því að dyraverðirnir á staðnum voru með bögg og hleypti ekki inn helmingnum af því fólki sem ætlaði sér inn. þeir voru jafnvel svo heimskir að hleypa ekki bjarna inn á sínu eigin skílríki og þó er hann orðinn átján. það var nú meiri vitleysan.
en hljómsveitirnar voru góðar og fólk var bara almennt ánægt held ég. fá coral og kingstone til samans 8 stjörnur af tíu mögulegum. heyrði voða lítið í hórunni þar sem ég fór í ketilhúsið.

í ketilhúsinu var hljðómsveitin mr. browns funky basement með sína fyrstu tónleika. byrjuðu þeir á intro lagi sem var einhverskonar spænskt lag, nokkuð töff. svo tóku þeir covera lag sem var einnig nokkuð gott. þar á eftir kom annað spænskt lag þar sem óli söng á spænsku og leysti hann það bara ágætlega, siggi hákon tók massa gítarsóló og þetta hafðist bara allt vel. svo ef ég man rétt kom ghostbusters sem að var náttúrulega tímamótasnilld. þar trommaði guðni án þess að sýna nokkur svipbrigði, óli söng eins og hann ætti lífið að launa, siggi orri strauk gítarinn og siggi hákon barði bassann. þetta lag kom fólki vel í gírinn og mátti sjá jón örn og einhvern annan gaur, sem ég veit ekkert hver er, taka nokkur vel valin "spor" fyrir framan sviðið. næsta lag var park by my apartment sem að er brillíant lag. getur fólk náð í það með því að smella: hér
en eftir þetta góða lag enduðu þeir þetta með ekki nógu góðu lagi. þeir tóku lagið rangur maður sem að var óskup dapurt eitthvað. það var alveg vel spilað og sungið en þetta er bara svo þreytt lag. þegar maður heyrði það að þá fannst manni maður vera kominn í lélegt ytri-víkur party..

svo fyrir utan þetta eina lag að þá stóð hljómsveitin sig með stakri prýði og hef ég ákveðið að gefa þeim einnig átta stjörnur af 10 mögulegum fyrir þessa mjög svo góðu tónleika. er ég ekki frá því að þeir eigi eftir að bæta sig eftir því sem þeir spila meira, annað væri skrítið.


skrifað af criticts 20:07 criticts

laugardagur, febrúar 26, 2005
barátta

í gær fór ég í ketilhúsið að sjá hljómsveitina mr. browns funky basement spila. var ég mættur eitthvað um tuttugu mínútur yfir yfir tólf en þeir áttu ekki að spila fyrr en klukkan eitt eftir því sem ég best vissi. en þegar ég kom var hljómsveitin douglas wilson að byrja að spila. voru þeir alveg allt í lagi, gítarleikarinn var reyndar eins og hann væri á einhverju en það var bara skondið að fylgjast með því. svo á eftir þeim áttu mr. browns að vera en það var einhver misskilningur og á svið steig hljómsveitin infinity. hún var skipuð góðum söngvara, litlum, hoppandi gítarleikara, bassaleikara sem var álíka jafn gáfaður og sveppur og svo sá ég trommarann ekkert. en þegar þeir voru búnir að þá ætluðu sko mr. browns að spila en nei, þeir fengu ekki að nota sinn eiginn magnara og siggi vildi ekki spila á þennan magnara sem var fyrir af því honum fannst hann svo lélegur. þar með brutust út smáveigis deilur sem enduðu með því að þeir spiluðu bara ekkert.. svo það var frekar slakkt.

en nú þarf að grípa til aðgerða. þannig vill til að ekkert er um góðar teiknimyndir í dag, þ.e.a.s. barnaefni á stöð 2 og rás eitt. þar eru eintómar sýrðar teiknimyndir sem engin glóra er í. af því tilefni ætlar criticts.tk að senda formlegt bréf til stöðvar tvö og biðja þá um að vinsamlegast byrja aftur að sýna skot á mark, teiknimynd sem er full af fróðleik og skemmtun. tel ég það vera þáttur sem krakkar nú til dags hafi gott af því að horfa á


skrifað af criticts 17:47 criticts

föstudagur, febrúar 25, 2005
gett þú betur

þar sem lögreglan og alþingismenn eru fastagestir á þessari síðu að þá má vænta þess að ég hafi fengið óblíðar viðtökur við síðasta bloggi mínu. hafa mér borist 5 hótunarbréf og 2 kærur lögreglu sem segir að ég hafi brotið gegn ritfrelsi og birt ósannar heimildir sem voru bæði í senn ærumeiðandi og persónuárásir. úúú

gettu bettur lið ma stóð sig nú aldeilis vel síðasta miðvikudag og lagði lið me af velli með sláandi sex stiga mun, 24-18. samkvæmt einkaviðtali við einn meðlimur gettu betur liðs ma er þeim nokkuð sama hverja þeir fá í undan úrslitum af því að þeir geti unnið alla. ætlar enginn að efast um þessi orð enda miðað við hin 2 liðin sem eru komin áfram að þá ættu þeir að eiga nokkuð greiða leið í úrslitin. þó gæti lið borgarholtsskóla sett strik í reinkninginn þar sem þeir eru með nokkuð öflugt lið en þeir hafa þó verið þekktir fyrir að brotna niður undan mikillu pressu og stressi svo að þeir teljast ekki vera mikil hindrun í vegi ma á leið til sigurs.

hér með er það staðfest að föll í stærðfræði og fyrsti kafli í stæ 403 sökkar! voru það nemendur 2.x sem þreyttu próf úr þessum kafla í dag ásmt öðrum náttúrufræði bekkjum. er búst við slæmri einkunn þar sem eftir prófið missti fólk út úr sér orð á borð við: "djöfullsins rugl!", "mætti ekki hafa prófið aðeins erfiðara?" og ekki má gleyma "latína er skiljanlegri en þetta dulmál."
Verður því fróðlegt að fylgjast með drögum þessa máls og hvernig útkoma 2.x var svo.

það og svo miklu miklu meira hér á criticts.tk


skrifað af criticts 19:55 criticts

mánudagur, febrúar 21, 2005
fasteignir

þar sem criticts.tk er fréttamiðill með meiru að þá tel ég það skildu mína að ræða aðeins um fasteignarheiminn og hvað er að gerast þar. eftir því sem ég hef best heyrt og orðið á götunni er að glæpaklíka í reykjavík er að kaupa hús á reykjavíkursvæðinu beint af verktökum og selja þau svo aftur með 20-30% álaggningu.

held ég að þetta séu fyrstu merki um tilvist íslensku mafíunar. heimildamenn mínir segja að þetta sé aðeins byrjunin en áður fyrr braskaði mafían aðeins með minni hluti t.d. mjólk. nú eru þeir hins vegar að færa sig yfir í stærri hluti svo sem fasteignir. sagt er að mafían sé valdamikil inná alþingi og að um 57% alþingismanna séu í tengslum við íslensku mafíuna og um það bil 40% valdamestu manna íslands eru tengdir henni á einn og annan hátt. hvaða menn þetta eru og hver er yfir mafíunni veit enginn en þó eru til ýmsar getgátur um það.

það sem ég hef oft sagt er að ísland er með spilltustu löndum í heimi. þessu er bara öllu mjög vel leynt og eru blaðamenn þessa lands ekki að standa sig sem skildi, hver veit nema þá að þeir séu að þiggja mútur frá glæpamönnum landsins. fréttamenn fjalla um rótæk spillingarmál en ávalt þegar verið er að nálgast hið sanna hættir þetta að vera fréttnæmt. þetta tel ég allt mjög grunsamlegt.

ætti því fólk eindregið að vera með opin augun gagnhvart ólögmætri álagningu hluta til dæmis í kjörbúðum, tölvumarkaðnum og dótabúðum. eitthvað verður að gerast í þessu landi spillinga

vil ég þó taka það fram að þetta eru mest allt getgátur sem gætu verið sannar og eins ekki


skrifað af criticts 19:09 criticts

sunnudagur, febrúar 20, 2005
gáfumenni

"Rúmeninn Vasile Barbulescu endaði á sjúkrahúsi eftir að hann batt snæri um tippið á sér til þess að þurfa ekki að fara á klósettið.

Rúmenskir fjölmiðlar greina frá því að Barbulescu eigi nú fyrir höndum margra mánaða flóknar skurðaðgerðir til þess að bæta tjónið.

Hann kveðst hafa bundið um sig til að þurfa ekki að fara á klósettið fyrr en hann kæmi heim til sín."


gott dæmi um það hvað fólk getur verið snjallt


skrifað af criticts 18:15 criticts

trend að vera með þokuljós

ég er ekki frá því að ég hafi lært ýmislegt og fengið staðfestingu á hlutum í gær.

hafði ég alltaf vitað að sumir hefðu fremri þokuljósin kveikt innanbæjar, bara uppá kúlið. en þegar maður fór að spá í þessu að þá var kannski fjórði, fimmti hver bíll með þessi ljós kveikt. það er því mun meira um þetta en hinn almenni maður hélt og frá mínum sjónarhóli er þetta bara nánast asnaskapur að vera að keyra með þetta innanbæjar. nafnið segir sig sjálft, þokuljós en ekki rúntljós.. ljós sem nota á í þoku en ekki þegar maður er að rúnta á laugardagskvöldum.

einnig veit ég núna for sure að bmw eru helvíti sterkir bílar. eftir þennan harkalega árekstur sem var í gær á glerárgötunni þar sem bmw bifreið klippti niður ljósastaur og beyglaði annann um góðar 45 gráður, gjörsamlega rústaðist og var bara ótrúlegt að ekki hafi þurft að klipa farþegana útúr bílnum. en já það er einmitt þess vegna að ég veit núna að bmw eru sterkir bílar þar sem að hvorugur þeirra tveggja farþega sem voru í bílnum slösuðust. miðað við hvernig bíllinn var finnst manni bara heppni að þeir skyldu vera á lífi.

ekki kaupa bónus ísblóm, þau eru fake. það er kaffibragð af súkkulaðinu og lítil sulta í miðjunni


skrifað af criticts 15:56 criticts

laugardagur, febrúar 19, 2005
miðgarður

nú kemur hér smá færsla um það sem gerðist í gærkvöldi.

byrjaði kvöldið nú bara þannig að ég var heima horfandi á idol. var það bara sæmilegasta skemmtun og var það hún ylfa sem að datt út og fannst mér alveg kominn tími til. að mínu mati er hún hildur vala sigurstranglegust þar sem hún syngur mjög vel og að hún var að fá alveg meira en helming atkvæða í vali rásar 2 á kynþokkafyllstu konu landsins. svo að hún höfðar augljóslega til karlþjóðarinnar jafnt og þeim sem finnst hún syngja vel.

svo fór ég út að keyra og eittthvað um ellefu leitið barst mér símtal um það hvort ég væri eitthvað í stuði til að fara á ball í miðgarði. eftir miklar pælingar og vangaveltur sló ég loks til. var þá förinni heitið með sigga, sigga orra, óla og aroni. var sigurður hákon ökumaðurinn og ætla ég ekkert að fara að uppljóstra hraðanum sem hann var að aka á þar sem að lögreglan er tíður lesandi þessarar síðu. svo komum við í hlíðarbæ. eftir um það bil 20 mín settist einhver gaur á mig þegar ég sat á stól, ég lyfti honum mjög kurteisilega af mér og á borð hliðiná stólnum sem ég sat á en þá fauk sko aldeilis í félagann.. hann hótaði öllu illu og að sagði að ef ég ætlaði að koma í skagafjörð og vera með eitthvað svona rugl að þá yrði ég barinn, skemmtilegt það. svo á sama tíma og gaurinn var að hella sér yfir mig að þá var bankað í gluggann bakvið mig og þar var einhver gaur sem var að gretta og geifla sig eins og einhver kjáni. kom sá drengur svo inn og fór að róa gaurinn niður, svo fór hann að spjalla við mig og svona, en það endaði ekki vel því svo var sá gaur alltaf að klípa í mig á 40 mín fresti. ekki skemmtilegt.
svo ákvað ég að fara út að pissa, þá komu einhverjir þrír gaurar og spurðu hvort ég vildi vera barinn, svaraði ég því neitandiog þá röltu þeir í burtu.
svo spjallaði ég við fullt af fólki sem ég þekkti ekki neitt, fólk var að taka mig fyrir sem einhvern vin davíðs sem að ég þekki ekki neitt og þetta var allt mjög sýrt.

endaði svo með því að ég fékk far með önnu, önnu, theu og kristrúnu heim til akureyrar, reynslunni ríkari um að miðgarður er ekki bjartasti staðurinn fyrir mig til að vera á.


skrifað af criticts 19:35 criticts

miðvikudagur, febrúar 16, 2005
criticts í lægð

jæja, ég er lítið búinn að nenna að skrifa en ég skrifa nú til að láta fólk vita af hljómsveitinni sommerfuglerne. þó ég sé nokkuð viss um að allir þeir sem lesi það sem stendur á síðunni af og til viti af sommerfuglerne að þá er réttast að benda á það að við settum lag á rokk.is sem að við erum að reyna að koma á topp 10 listann. svo hér er slóðin: slóð . og hvet ég fólk eindregið til að ná í lagið og láta aðra vita af því.

tökum höndum saman og fáum danskt 80s lag á topp 10 listann á rokk.is

en svo fer ég að koma með einhverjar gagnrýnir bráðlega. ætla að gagnrýna nýtt lag með hljómsveitinni mr. brown´s funky basement sen hetir park by my apartment. svo bíðið spennt og rétt stillt á tíðni criticts.tk

svo var ég að fatta eitt. þegar ég í sakleysi mínu setti óvart á 104.1 að þá er þar komin talstöð, svipuð og útvarp saga var. eru þetta örugglega ekki nýjar fréttir þar sem sagði mér að þetta v´ri búið að vera í dálítinn tíma. datt bara í hug að deila þessu með þeim sem ekki vissu.

meira er það ekki núna. verð aktívari í bloggfærslum núna næstu daga


skrifað af criticts 22:34 criticts

mánudagur, febrúar 07, 2005
bolludagur

þó að bolludagurinn sé nú að verða búinn að þá eru bollurnar sko ekki búnar og er til stafli af berlínarbollum sem bíða handa ykkur. er það möst að fá sér berlínabollur, hvað þá þær sem eru í hrísalundi.

ég og raggi fórum í dag í hrísalund og fengum okkur bollur. hann fékk sér vatnsdeigs bollu sem var víst bara ágæt en ég fékk mér 2 berlínarbollur og má segja að þær hafi verið með sultu. sultan sem var í þeim var svo góð að orð fá því ekki lýst. svo var líka svo mikil sulta inn í, algjörlega guðdómlegt.

getið þið farið í hrísalund og verslað ykkur hnossgæti í bollu formi fyrir aðeins 84 kr . án nokkurs vafa níu stjörnu bollur

berlínarbollur: *********


skrifað af criticts 21:08 criticts

sunnudagur, febrúar 06, 2005
helgin

sprite zero? jahh nú veit ég ekki, endar ekkert alltof vel. búinn að horfa á rounders og edward scissorhands sem eru báðar fanta fínar myndir og þar sem ég hef ekki gagnrýnt lengi að þá hef ég ákveðið að gefa þessum myndum stjörnur. fær rounders átta stjörnur af 10 á meðan edward scissorhands fær 8+ af tíu. myndir sem að væri ekki vitlaust að horfa á.

edward scissorhands: ********+
rounders: ********


skrifað af criticts 16:55 criticts

föstudagur, febrúar 04, 2005
daily dares

ég er ekki frá því að ég geti skammast mín eitthvað meira. ég var að lesa yfir gamla irc logga, hvernig ég skrifaði og talaði á þessum tíma var algjör hryllingur. ég er ekki enþá að trúa því að þetta hafi verið ég.. að ég hafi getað látið þessa hluti útúr mér og skrifað svona gelgjulega, í hlýlegu skopi. það má segja að ragnar nokkur hólm sé bara kettlingur í gelgju skriftum miðað við hvernig ég var. svo nú er bara planið að fara að henda út öllu þessu gamla drasli áður en þetta kemst í rangar hendur.

það má segja að hljómsveitin perus oriam sé að gera það gott þessa dagana. hefur hljóðfærakunnátta meðlima sveitarinnar aukist um helming og verður sennilega ekki langt í það að þeir fari að varpa fram frumsömdu lagi þar sem nóg er um efni til að yrkja um.

vill einnig benda fólki á að rauð bindi og svitabönd verða inni alveg til næsta fimmtudags, svo þið ættuð að nýta ykkur það frábæra tækifæri. og svo hvet ég endilega alla til að verða sér útum þau lög sem ég hef stillt upp í útvarpsliðnum. eru þau núna á íslensku dóti þannig að þið eruð ekki að eyða erlendu niðurhali við að ná í þau. les savy fav massa hljómsveit sem jón vilberg sagði mér frá.

já og svo setti jón alveg slatta af myndum sem ég og hann tókum á meðan æég var í malmö. getið skoðað þær hér


skrifað af criticts 19:11 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3