eftir vel heppnaðan feril með the white stripes kemur jack white og þrykkir fram á sjónarsviðið hljómsveitinni raconteurs. þeir eru búnir að gefa út sinn fyrsta disk og lofaði hann svo sannarlega góðu með fyrsta laginu "steady as she goes" en svo þegar lag númer tvö byrjaði var líkt og maður væri barinn í andlitið með grilluðum laxi. bitið og krafturinn hverfur og eftir verður eitthvað medium sull þar sem jack white og brendan benson skiptast á að syngja.þó að diskurinn hafi kannski ekki verið neinn töfragripur að þá er heimasíðan þeirra svo sannarlega eitthvað til að fara í heljarstökk yfir. hún er sett upp eins og þú sért í eldgamalli tölvu back in the days þar sem bara er notast við lyklaborð, engin mús. getið kynnt ykkur lagið "steady as she goes" á þessari síðu.
http://theraconteurs.com
skrifað af criticts 15:36 criticts