fimmtudagur, apríl 28, 2005
veskismálið
nú er rannsókn veskismálsins komin á fullt. veskið sjálft var fundið við leikskólann pálmholt og vantaði þá allt í það nema ma bókasafnskírteinið mitt sem var nógu góð vísbending fyrir finnandann til að geta hringt í föður minn og látið hann vita af veskinu.
nú barst mér símhringing frá manni að nafni ólafi og segist hann hafa fundið esso safnkortið mitt auk amtbókasafnsskýrteininu mínu og ma nemandaskýlríki liggjandi úti við melateig.
eru þessir staðir nú töluvert langt frá hvor öðrum og eru afbrotamennirnir augljóslega að keyra um allan bæ í þeim tilgangi að losa sig við sönnunargögn og fela slóð sína. kæmi mér ekki á óvart ef ökuskýrteinið mitt, debetkortið og subway miðarnir mínir myndu finnast niðrí innbæ.
en allavega eru víspendingar farnar að koma í ljós og tel ég ekki langt í það að ég nái þeim sem veskinu stal. tel ég það vera góða hugmynd að þegar ég er búinn að handsama óþokkann að þá verði hann glockaður því hann á það svo sannarlega skilið.
skrifað af criticts
18:52
criticts
miðvikudagur, apríl 27, 2005
þjófapakk
auma þjófapakk! eða ég bara svona ótrúlega snjall í að týna veskinu mínu á einhvern undraverðann hátt.
fólk má endilega láta mig vita ef það verður vart við veskið mitt einhverstaðar
skrifað af criticts
23:54
criticts
þriðjudagur, apríl 26, 2005
veitingahúsagagnrýni
þannig var mál með vexti að ég og heiða ákváðum að fara út að borða. var valið erfitt um hvaða stað ætti að fara á þar sem mikið er um gæða veitingahús hér á akureyri. eftir miklar vangaveltur og hugsanir mundum við eftir stað sem ber nafnið götugrillið.
við mættum á grillið klukkan 19:43 þar sem á móti okkur tóku litríkar borðskreytingar og málverk, radiohead og háværir bandaríkjamenn. við kurteisislega spurðum hvort þau væru nokkuð með laust borð handa okkur en við litla kátínu þjónustustúlkunnar sem augljóslega vildi ekki mikið með okkur hafa og tróð hún okkur á tveggja manna borð sem ég er ekki viss um að hefði átt að vera þarna. svo pöntuðum við matinn okkar, ég 140 gramma hamborgara og gos úr vél, heiða kjúklingaborgara og blátopp og saman fengum við okkur nanbrauð með hvítlaukssósu. þjónustustúlkan tjáði mér að ég mætti ná mér í glas og fá mér eins mikið gos og ég get torgað en þegar ég bað um glas eins og allir aðrir á veitingastaðnum voru með, 500 ml, að þá var mér neitað um það og hún lét mig fá lítið, ræfislegt glas eins og er í flestum eldhússkápum landsmanna. þetta þýddi það að ég þurfti að fara sjö ferðir til að svala þorstanum, frábært það.
á meðan við biðum ómuðu hljómsveitir á borð við travis, coldplay og red hot chillipeppers sem gefur þessu veitingahúsi plús í kladdann. en svo kom maturinn..
140 gramma hamborgarinn sjálfur leit ágætlega út en brauðið á honum var frekar aumt, þakti ekki nema 2/3 hamborgarans. það var ekkert með hamborgaranum svo hann stóð einn og einmanna á disknum eins og maur á fótboltavelli. hamborgarinn var góður en alltof lítill svo maður varð varla saddur af honum.
einnig kom hamborgarinn hennar heiðu sem í fjarska leit sæmilega út þar til þjónustustúlkan lagði hann á borðið. í fyrstu dróg heiða þá ályktun að hamborgarinn hafi verið pantaður af mc'donalds og sendur með Fedex á götugrillið. bragðið var ekki eins slæmt og útlit hamborgarans en efnismagnið var harla mikið. toppurinn kostaði 210 krónur ísl, og fyrir þær krónur fékk hún 0,25 ml sódavatn í gleri sem tæplega dugði með matnum.
eftir að við vorum búin að borða kom þjónustustúlkan herfilega og tók diskana okkar og hnífapör og spurði hvort við vildum eftirrétt, minntum við hana þá kurteisislega á nanbrauðið okkar sem við höfðum beðið með eftirvæntingu. hún setti upp undrunarsvip, sagðist hafa steingleymt því og spurði hvort við vildum það ennþá. við játuðum því og eftir stutta stund kom hún með hvítlaukslöðrandi nanbrauð sem við neyddumst til að borða með höndunum þar sem hún hafði hrifsað af okkur hnífapörin. nanbrauðið var semi-gott og ágætis magafyllir.
samtals borguðum við 2500 fyrir máltíðina sem auðveldlega hefði getað nýst í eitthvað skynsamlegra. götugrillið fær átta af tíu fyrir innréttingar og tónlistarval. maturinn fær hinsvegar 6 af tíu þar sem hann var ásættanlegur. þjónustan fær hinsvegar þrjá af tíu fyrir biturleika og almenn leiðindi. veitingahúsið götugrillið fær þvi í allt 6 af tíu mögulegum, allavega fyrir þessa máltíð.
skrifað af criticts
20:37
criticts
mánudagur, apríl 25, 2005
roskilde
audioslave, black sabbath, bloc party, brúðarbandið, duran duran, foo fighters, green day, interpol, the mars volta, mugison, röyksopp, sonic youth og síðast en alls ekki síðst snoop dogg!
þú að ég sé kominn með nokkra leið á audioslave og foo fighters, fíla greenday vart nokkuð og snoop dogg er bara snoop dogg að þá er hitt samt mjög djúsí. einnig er fullt fullt af öðrum minna þekktum hljómsveitum og þar á meðal eru 24 breskar hljómsveitir sem gaman væri að heyra í.
ætlar einhver að koma með mér?
skrifað af criticts
21:22
criticts
sunnudagur, apríl 24, 2005
bloc party
nú síðustu daga hef ég verið mikið í því að hlusta á bresku hljomsveitina bloc party. voru þeir að gefa út sína fyrstu breiðskífu sem ber nafnið silent alarm og verð ég að segja að hún er vel þess virði að hlusta á í nokkur hundruð skipti.

hljómsveitina skipa þeir gordon moakes/bassi og söngur, kele okereke/gítar og söngur, russel lissack/gítar og matt tong/trommur, talið frá vinstri á myndinni hér fyrir ofan. það voru þeir kele og russel sem stofnuðu hljómsveitina en fengu fljótt til liðs við sig bassaleikarann gordon moakes. eftir að hafa prófað marga trommara fundu þeir trommarann matt tong sem svona smell passaði inn í hljómsveitina.
það er ekki bara það að þeir spili góða tónlist heldur hlusta þeir líka á góða tónlist sem verið er að gera í dag, svo dæmi sé tekið hljómsveitin interpol, ásamt því að vera undir áhrifum frábærra listamanna á borð við joy division, radiohead, the smiths, weezer, björk og kraftwerk svo eitthvað sé nefnt.

frumraun þeirra, silent alarm, er á heildina litið mjög góð. ég er ekki farinn að gera upp milli laga, hvað sé beseta lagið en allavega koma lögin helicopter og banquet sterklega til greina. ég ætla að gefa plötunni einkunnina níu af tíu og ættu allir að tékka á plötunni og skoða heimasíðu þeirra, www.blocparty.com sem er í senn vel gerð auk þess að veita góðar upplýsingar um hljómsveitina.
skrifað af criticts
17:44
criticts
laugardagur, apríl 23, 2005
coast to coast
á sama tíma og fólk var að hlusta á robert plant vera að syngja að þá fékk ég að heyra drekann og jón örn syngja total eclipse of the heart með bonnie tyler í kareoke á oddvitanum. eftir þá eftirminnilegu frammistöðu var förinni heitið í sjallann. eins mikið sjallatröll og maður er að þá átti maður ekki erfitt með að blenda inn í hóp fólks á aldrinum 40-56 ára. því í sjallanum var allt fólkið af öldungamótinu í blaki sem haldið var hér á akureyri.
menn voru skrautlegir og "öldungarnir" stigu tryllt dansspor. frekar hefði ég kosið sign
skrifað af criticts
02:02
criticts
föstudagur, apríl 15, 2005
(t-1)(3t+4)(t-8)<0
nú er margt og mikið að gerast í akureyrarbæ. múgur og margmenni flykkjast í þennan 16 þús manna bæ vegna söngkeppni framhaldsskólanna. ætti þetta að verða ágætis skemmtum. ég er svo að fara á rýginn þannig að ég kem kannski með smá gagnrýni á það ásamt því að henda inn einni bíómyndagagnrýni einhvertíman í bráð.
það að birta lista yfir þær fimm hljómsveitir sem ég hef hlustað mest á í hverri viku hefur eitthvað verið að klikka hjá mér. hef ég gleymt að birta þennan lista tvo föstudaga í röð en nú er komið að því að ég birti listann fyrir þessa vikuna.
1. spírur (ýmsir flytjendur)
2. emiliana torrini
3. depeche mode
4. queens of the stoneage
5. röyksopp
eins mismunandi tónlist og hægt er að finna. en svo er 2.h í dk núna að hitta fólk frá finnlandi. ég vona bara að þau skemmti sér vel og slasi sig ekki á þessum blessuðu finnum.
skrifað af criticts
16:58
criticts
sunnudagur, apríl 10, 2005
weekend
þessi helgi var bara nokkuð róleg en umfram allt basic. komst ég í fyrsta skipti í tæri við þætti sem bera nefni the young ones. var ég þó ekki einn að horfa á þessa þætti og er óhætt að segja að þeir vöktu mismunandi viðbrögð áhrfenda. ég verð að segja að ég tók bara nokkuð vel í þessa þætti.
annars er það að frétta að ég var að gera ritgerð um jörund hundadagakonung. er og var þessi maður ofur töffari frá toppi til táar. hann gerði allt, var blaðamaður, siglingarmaður, rithöfundur, leikritahöfundur, njósnari fyrir bresku leyniþjónustuna og hann tók yfir ísland. basicly er hann james bond sem tekur yfir heil lönd. ef til vill skelli ég þessari ritgerð hingað ef eftirspurnin er mikil, svo fólk geti lesið hana og fræðst meira um þennan merka mann.
líka ef fólk er ekki búið að hlusta á diskinn spírur nýlega að þá verður það endilega að fara að gera það. eðaldiskur þar á ferð sem að ég gagnrýni kannski einn góðan veðurdaginn.
skrifað af criticts
22:42
criticts
fimmtudagur, apríl 07, 2005
reykingar
eins ósiðsamlegar og reykingar eru, á þá að banna þær á öllum almenningsstöðum svo sem vinnustöðum og skemmtistöðum? ég er almennt gegn reykingum, þ.e.a.s. mitt markmið er að reykja aldrei á mínu lífsskeiði en þó finnst mér í lagi að fólk reyki, það er þeirra val. er því í lagi að skerða frelsi fólks til þess að reykja þar sem það vinnur eða þar sem það er að skemmta sér?
auðvitað eru til sértilvik eins og að menn sem vinna á bensínstöðvumi megi ekki reykja á meðan þeir eru að dæla bensíni á bíla. en hvað með alla hina vinnustaðina? ég held að það ætti bara að hafa sér svæði, eins og er á mörgum stöðum, þar sem má reykja. hvað finnst ykkur, á að banna reykingar algjörlega á vinnustöðum og skemmtistöðum?
einnig er núna farið að sýna lost á rúv og allir eru farnir að tala um hvað þetta eru frábær þáttur og allt það. það var nú ekki sama hljóðið í fólki þegar ég var að breiða út boðskap þessa þátts í október. þá var bara drullað yfir mig og sagt að þetta væru ömulegir þættir án þess að fólk hafði séð einn þátt. isss..
skrifað af criticts
18:54
criticts
föstudagur, apríl 01, 2005
aprílgabb
sagt var á talstöðinni, og er þetta frá föður mínum sem heyrði þetta en ekki hef ég verið þekktur fyrir að hlusta mikið á talstöðina: "fuglaflensan er komin til íslands. barst hún með þremur egyptum sem voru á leið til landsins. talið er að allir sem voru í flugvélinni gætu verið í smitaðir og eru þeir nú í rannsókn."
þetta finnst mér ósmekklegt aprílgabb og eitthvað sem ekki beint ætti að vera að grínast með. eða hvað finnst ykkur?
skrifað af criticts
20:45
criticts