fimmtudagur, desember 28, 2006

jæja, ég er að spá í skella inn hvað var mesta klúðrið í tónlist árið 2006 og hvað kom mest á óvart árið 2006.

það sem mér fannst alveg vonlaust tónlistarlega séð árið 2006 er nýja plata bloc party. það er oft erfitt að fylgja eftir góðri fyrstu plötu en þessi seinni plata þeirra var alveg glötuð, ekki í námunda jafn góð og þeirra fyrsta. ég ætla rétt svo að vona að þriðja plata þeirra verði áhlustanlegri.

það sem kom hvað mest á óvart árið 2006 voru hljómsveitirnar deftones og pendulum. ég bjóst ekki við að þetta væri eitthvað sem myndi heilla mig en annað kom á daginn. ég hef ekki verið mikill deftones fan en nýjasta platan þeirra er bara fremur góð og kom skemmtilega á óvart. pendulum var eitthvað alveg nýtt fyrir mér en þetta kom mjög skemmtilega á óvart og var nóg hlustað á diskinn þeirra hold your colour árið 2006.

meira ætla ég nú ekki að skrifa núna en bráðlega kem ég með topp 5 lista yfir bæði mest hlustuðustu lögin og bestu diskana árið 2006


skrifað af criticts 15:26 criticts

laugardagur, desember 09, 2006

sérlega góðir tónleikar sem fóru fram í kvos menntaskólans á akureyri í gærkvöldi þar sem saman komu fræ og lay low. hún lovísa/lay low byrjaði þetta þar sem hún kom fram ein með kassagítarinn sinn. hún sigldi í gegnum prógrammið sitt með einföldu gítarspili og frábærum söng sem skilaði sér vel, hún hélt rólegri og þægilegri stemmning allan tímann. fyrir minn smekk er lay low mun betri læv en af geisladisk.

svo tóku fræ við, skipuð palla og danna úr maus, óþekktum bassaleikara, mr. silla og heimi úr skyttunum. þau voru með heldur meiri party stemmingu þar sem rappað og sungið var við popptónlist af miklu kappi. mér fannst silla standa sig frábærlega, ásamt allri hljómsveitinni, en hún stal senunni með skemmtilegri sviðsframkomu og frábærum söng. ég veit ekki hvað það er en mér finnst eins og palli sé að reyna að halda í æskuna því hann er þarna að umgangast mun yngri krakka og hann klæðir sig svipað og þau, fannst hann passa frekar kjánalega inn þarna. en hann kemur með gott gítarspil sem er það sem skiptir máli, ekki aldurinn.

topp tónnleikar sem voru gott framtak


skrifað af criticts 12:51 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3