þriðjudagur, júní 28, 2005
ýdalir
þá eru myndirnar úr ýdölum loksins komnar og verð ég að segja að þessar 10-11 myndavélar virkuðu þó ég hefði búist við stóru 10-11 lógói á öllum myndunum. var ég svo snjall að taka ekki nema kannski svona 4 myndir með flassi og eru það örugglega einu myndirnar sem eitthvað sést á þó að greina megi sumt á flasslausu myndunum..




skrifað af criticts
21:02
criticts
ýdalir
þá eru myndirnar úr ýdölum loksins komnar og verð ég að segja að þessar 10-11 myndavélar virkuðu þó ég hefði búist við stóru 10-11 lógói á öllum myndunum. var ég svo snjall að taka ekki nema kannski svona 4 myndir með flassi og eru það örugglega einu myndirnar sem eitthvað sést á þó að greina megi sumt á flasslausu myndunum..
skrifað af criticts
19:23
criticts
mánudagur, júní 27, 2005
rauðar leðurbuxur!
skrifað af criticts
22:48
criticts
laugardagur, júní 25, 2005
golf
nú hafa margir spurt mig hvort ég, þorvaldur, sé góður í golfi og miðað við daginn í dag að þá held ég að ég sé bara semi-góður. brautin var mér greinilega óhagstæð þar sem ég hafði aldrei spilað á henni áður og vissi þar af leiðandi ekki alltaf hvert ég var að skjóta. "bomberinn" var augljóslega ekki að skila sínu eins og sást af teighöggum mínum á fyrstu holunni. ég spilaði afburðar best í moldinni en þó var ég án nokkurs vafa maðurinn sem kunni að halda sig inn á fairway.
eftir 9 holur stóð tryggvi uppi sem sigurvegari, benni í öðru og ég í þriðja en mjótt var á munum. ég hlýt að vinna næst þar sem ég þekki nú brautina eins og hún væri garðurinn minn
skrifað af criticts
19:04
criticts
miðvikudagur, júní 22, 2005
nýjar plötur
nú upp á síðkastið hefur verið að koma út mikið af nýjum plötum frá hinum og þessum hljómsveitum og ef fólk er í einhverjum vandræðum um hvað það á að hlusta á að þá ætla ég að benda ykkur á nokkrar plötur sem criticts.tk mælir sterklega með.
daft punk - human after all
death from above 1979 - you're a woman, i'm a machine
kasabian - kasabian
helgi valur - demise of faith
bloc party - silent alarm
coldplay - x&y
gorillaz - demon days
emiliana torrini - fishermans woman
elliot smith - from a basement on the hill
eru þetta allt úrvals plötur sem vert er að kíkja á. ég sem dæmi var ekki að ná upp í hvað fólki fannst nýji coldplay diskurinn góður en eftir að hafa hlustað nokkrum sinnum á hann að þá er hann orðinn skrambi góður. eru sumar af þessum plötum þannig að þær verða betri og betri eftir því sem maður hlustar oftar á þær.
einnig er vitað að depeche mode og radiohead eru að vinna að gerð nýrra platna og verður spennandi að fyrlgjast með því. búið er að negla niður dagsetningar á útgáfutónleikum depeche mode víðs vegar um heiminn svo ef einhver er til í að koma með mér til london að sjá depeche mode á wembley þann 3. apríl 2006 að þá hefur sá hinn sami bara samband.
einnig ef þið vitið um einhverjar góðar plötur sem komu nýlega út að þá bara endilega láta vita, það hefur aldrei drepið neinn
skrifað af criticts
22:21
criticts
plebba dominos
aldrei hefur mér liðið jafn asnalega þegar ég stóð inn á dominos og er beðinn um að hringja og pannta pizzu hjá þeim. að vera inn á dominos og þurfa að hringja til þeirra til að pannta pizzu
plebba dominos
skrifað af criticts
00:27
criticts
mánudagur, júní 20, 2005
helgin
örvar kom, sá og var fullastur síðustu helgi hér á akureyri. var margt um manninn og held ég að flestir hafi bara skemmt sér bærilega.



skrifað af criticts
19:38
criticts
laugardagur, júní 18, 2005
örvar
svo kom örvar til akureyrar, það var frábært
skrifað af criticts
15:29
criticts
blistex
í gær var sautjándi júní og var þá mikið um pomp og prakt í bænum. var ekki mikið þar sem vakti athygli mína en þó var ein hlómsveit sem ég var spenntur fyrir að sjá og var það stórhlómsveitin moop. var mér tjáð að þeir ættu að spila kl 11 um kvöldið en svo breyttist það eitthvað þannig að þeir spiluðu mun mikið fyrr sem varð til þess að ég misst af þeim.
annað var bara ágætt fyrir utan tvo hræðilega stráka í nætursölunni. bið ég til guðs að ég sjái þá ekki aftur.
eins og allir vita að þá er allt sem er breskt best. fótbolti, bíómyndir, tónlist og svo mætti lengi telja. sem dæmi um hvað bresk tónlist er mögnuð að þá má nefna hljómsveitirnar
bloc party, og þær nýjustu,
kasabian og
death from above 1979. eru þetta allt bönd sem eiga eftir að skjótast upp á stjörnuhimininn innan skamms, enginn vafi um það. eru allar þessar hljómsveitir nýbúnar að gefa út frumraunir sínar og það sem ég hef heyrt er allt eðal efni.
einnig ætti fólk að hlusta eins og það getur á þættina popppland sem eru frá 12:30 til 4 alla virka daga á rás 2. eru það þeir snorri sturluson og freyr bjarnason sem leiða þann þátt af stakri snilld, spila góða, nýja og framsækna tónlist í bland við gamla smelli sem enginn hefur gleymt. voru það einmitt þeir sem vöktu áhuga minn á hljómsveitinni kasabian. ég veit að nafnið poppland er kannski ekki svo aðlaðandi en þetta er alls enginn popp þáttur að mínu mati, þarna eru ekki spiluð lög með írafár og ber út allann þáttinn heldur er mikið um góða tónlist, létt spjall, tónlistargetraunir og almenna skemmtun.
nýja batman myndin er bara nokkuð mögnuð fyrir utan batman bílinn, hann er enginn eðall. ég er ekki að digga hlussu hömmer með allri brynvörninni og 50" dekkjum. það eina sem má setja útá þessa svo annars góðu mynd er bíllinn og það að batman þemað var aldrei spilað í mydinni. christian bale er magnaður batman, katie holmes er ekkert spes en val kilmer verður ávalt besti batmaninn og batman forever (mynd nr. 3) lang besta myndin.
ekkert nýtt að frétta af piano man en þar sem ég er í beinum tengslum við fréttastofu bbc að þá kemur allt á criticts um leið og fréttirnar berast.
skrifað af criticts
13:29
criticts
mánudagur, júní 13, 2005
allt
prófin búin og gengu bara vel, vinnan byrjuð og allt á miljón
fór á ýdali sem var bara hin ágætasta skemmtun, fólk var að slasa sig í frisbee fáandi skurða og læti. lagt var af stað með 3 einnota myndavélar og tel ég þær allar vera fullar, veit allavega að mín er það. svo að það sést kannski eitthvað af þeim myndum hér eða á myndasíðunni, það veltur bara allt á útkomu myndanna.
ekki fyrir svo löngu horfði ég og heiða á mynd sem ber nafnið killer klowns from outer space. er þessi mynd frá árinu 1988 og skartar hún frægum leikurum á borð við grant cramer og suzanne snyder.. það kom mér þó reyndar nokkuð á óvart að christopher titus lék í myndinni, tók ekkert eftir því þegar ég horfði á hana.

svo við snúum okkur nú að því um hvað þessi mynd er að þá fjallar hún um creepy/klikkaða trúða sem koma úr geimnum og byrja að drepa fólk af ástæðulausu. þeir nota frumleg trúðavopn á borð við kandíflos, poppbyssur, sýrutertur og skuggamyndir til að verða fólkinu að bana. snýst myndin svo bara basicly um það að þessir trúðar eru að myrða alla í þessum bæ á meðan sérvalinn flokkur fólks sem rekst á þá fyrst reynir að komast að því hvernig megi útrýma þessum trúðum.

það má þó segja að það sem einkenndi þessa mynd var hræðileg frammistaða leikaranna fyrir utan þá sem léku trúðana, þeir stóðu sig frábærlega, má segja að þessi mynd hafi verið svo léleg að hún varð fyndin. það var þó eitt sem stóð mjög mikið upp úr og var það tónlistin í myndinni. hún var tær snilld og verða eiginlega allir að heyra theme lagið í myndinni. því hef ég sett það á netið svo þið getið sótt það
"hér". annars var þetta mjög góð skemmtun og hvet ég eindregið alla til að fara og ná sér í eintak af myndinni killer klowns from outer space og horfa á hana. ætla ég að gefa henni 7 stjörnur af tíu mögugulegum.
skrifað af criticts
19:21
criticts
sunnudagur, júní 05, 2005
finnur bragð af tónlist
"svissnesk tónlistarkona sér liti þegar hún heyrir tónlist og finnur einnig bragð af henni, að sögn vísindamanna við zurich-háskóla.
konan, sem er 27 ára, hefur svokallað fylgiskyn sem lýsir sér í því að tónlist kallar á viðbrögð annarra skynfæra en eyrans. vakti þetta forvitni vísindamannanna og þeir fengu hana til að taka þátt í rannsókn sem stóð í eitt ár.
tónlistarkonan, sem var ekki nafngreind, sér liti þegar hún heyrir ákveðna tóna. Hún sér til að mynda fjólublátt þegar hún heyrir f en c fær hana til að sjá rautt.
hún finnur einnig bragð af tónlistinni, eftir því hvernig tónbilið er. lítil tvíund fær hana til að finna súrt bragð, stór tvíund beiskt, lítil þríund saltbragð og stór þríund sætt."
en hvað þetta er eitthvað bjánalegt.
íslenski landsleikurinn var afskaplega súr svo segja mætti að hann hafi verið lítil tvíund. íslensdingar hefðu átt að gera mun betur og það að eiður hafi átt stjörnuleik er ég ekki sammála. hann fékk þó nokkur færi sem hann hefði átt að nýta betur og hefði hann getað tryggt góða stöðu íslendinga í leiknum hefði hann gert það. að mínu mati var það grétar rafn sem var maður leiksins, ekkert af því að velja mann sem fór útaf mann leiksins því að hann var tvímannalaust að spila lang best.
2 próf eftir og er það ágætt, eftir það er vinna sem verður fróðleg og ég held að þetta sumar yfir heild verði bara nokkuð fróðlegt.
skrifað af criticts
16:30
criticts
laugardagur, júní 04, 2005
hapland
þá er það nýr leikur. kallast hann hapland og er keppnin einföld. sá sem er fyrstur að leysa hapland og taka screenshot af the end stöfunum sem koma í endann að hann vinnur einn af hinum eftirsóttu fimmtíu köllum.
þið farið á
http://www.foon.co.uk/farcade/hapland/ og þar er leikurinn.
ég var nokkurn tíma að leysa þetta en það verður skemmtilegt að sjá hversu fljót þið verðið með hann. svo þetta er bara keppni í hver er snjallastur og fljótastur.
mæli með því að þið lesið leiðbeningarnar um leikinn, hvað markmið ykkar er og allt það. ég tek það líka fram að sá sem reynir að svindla einhvern veginn er ekkert nema plebbi.
skrifað af criticts
13:22
criticts
föstudagur, júní 03, 2005
úrslit + nýr leikur
þá er það komið á hreint, allir þeir sem voru hæstir í striker of the month svindluðu sem verður að teljast frekar plebbalegt. það skiptir þó ekki öllu núna en var það hann óli sem stóð uppi með hæsta heiðarlega skorið og vann sér því inn hinn eftirsóknarverða fimmtíukall. er sá orðrómur á kreiki að hann sé búinn að ramma fimmtíukallinn inn og hengur hann nú inn í herbergi hjá honum. var þetta ágæt keppni og vil ég þakka öllum fyrir þáttökuna.
þetta svindl rugl hjá vissum aðilum kemur þó ekki í veg fyrir það að það verður haldin ný keppni í nýjum leik. verður tilkynnt innan skamms hvaða leikur það verður og skal ég lofa ykkur að þetta verður leikur sem erfiðara verður að svindla í
skrifað af criticts
22:47
criticts