þriðjudagur, maí 31, 2005
striker of the month

eins og flestir ættu að vita að þá er í dag síðasti dagurinn í striker of the month keppninni. lengi vel var ragnar hólm efstur en það breyttist þegar óli náði 155 þús stigum. sendi hann víst ragnari screen shotið, en eftir að ragnar skoðaði það að þá hefur hann ásakað óla um að hafa gert þetta í paint. verður dæmt í þessu máli en þó ekki um það hvor lendi í fyrsta sæti, nei nei því drekinn kom aldeilis sterkur inn og náði 158 þús stigum núna í dag og er þar með efstur.

enn er þó tími til að ná meti drekans en einnig verður fróðlegt að fylgjast með framvindu "paint málsins" ógurleg. hafa verið skipaðir þrír dómarar í því máli og verður sennilega dæmt í þessu máli innan skamms


skrifað af criticts 16:11 criticts

mánudagur, maí 30, 2005
tilkynning

ég vil bara benda fólki á að það er einn dagur eftir af striker of the month keppninni og eins og er mun það vera hann ragnar hólm sem vermir fyrsta sætið. hann náði 143.000 stigum og ef enginn bætir það að þá verður hinn eftirsótti 50 kall hans eign.

ég vil einnig benda fólki á að doritos cool american + mariachi cheese salsasósa/ídýfa er banvæn blanda. er þetta svo gott að fólk hefur í raun látist vegna bragðsins.

prófin eru á fullu í menntaskólanum á akureyri og eru flestir með hugan við þau, síðasti þátturinn af lost er kominn og farinn, las vegas eru topp þættir, american dad eru topp þættir og ég hvet íslendinga til að gera svif (frisbí) að þjóðaríþrótt sinni.

þetta var frétta pistill criticts.tk þennan næst síðasta dag maí mánaðar


skrifað af criticts 17:15 criticts

sunnudagur, maí 29, 2005
piano man (nýtt)

það muna líklegast allir eftir sláandi fréttinni um piano man sem fannst rennandi blautur á stað einum á bretlandi. hefur hann ekki mælt orð frá því að hann fannst og var svo búið að uppgötva að hann var listagóður að spila á píanó. ef fólk man ekki eftir þessari frétt að þá er hún hér aðeins neðar.



það nýjasta af piano man er að hann er núna kominn með píanó inn í herbergið sitt á sjúkrahúsinu. hefur hann enn ekki sagt orð en hann er farinn að semja tónlist á fullu. ekki er enn vitað hver maðurinn er svo ef þið hafið eihverjar upplýsingar um manninn að látið þá endilega eitthvað fólk í bretlandi vita eða þá bara mig og ég get komið því áleiðis.


skrifað af criticts 17:28 criticts

miðvikudagur, maí 25, 2005
sumarsól

í dag er búið að vera frábært veður, sól og allt það besta. er ég búinn að vera að deyja úr hita í dag þannig að á milli þess sem ég lærði fyrir ensku próf að þá fór ég að setja myndirnar síðan úr útivistardótinu á netið. má finna þessar myndir á thorvalds*myndir.

annars eru prófin að nálgast og spennan í striker of the month keppninni hefur aldrei verið meiri. ragnar hólm ragnarsson hefur algjörlega sleppt því að læra fyrir prófin þar sem hann ætlar sér að vinna þessa keppni. orðið á götunni er að hann hafi náð 143 þús stigum. ef svo er að þá setur það hann beint á toppinn.

annars vildi ég bara benda fólki á myndir af fólki að labba á thorvalds*myndir

adios


skrifað af criticts 22:15 criticts

sunnudagur, maí 22, 2005
striker of the month

nú er að fara í gang striker of the month keppni á criticts.tk þar sem keppt er upp á stórkostleg verðlaun, 50kr. það eina sem þið þurfið að gera er að fara á

http://www.playforyourclub.com/play20.php

og ná eins miklum stigum og þið getið. sá sem nær flestum stigum vinnur keppnina. þið skirfið bara í comment hve miklum stigum þið náið og svo að enginn sé að ljúga til um hvað þeir náðu miklu að þá verða þeir að taka screen shot af metinu sínu því til sönnunar.

keppnin stendur til 31. maí og hvet ég alla til að taka þátt þar sem það eru vegleg verðlaun í boði


skrifað af criticts 12:52 criticts

fimmtudagur, maí 19, 2005
mugison

í gær skellti ég mér með heiðu á græna hattinn þar sem við fórum að sjá mugison. hann bryjaði á lagi þar sem hann fiktaði í tölvudótinu sem hann var með, sumt í því var fínt en annað minnti á acid foundry stórslys. eftir það sagði hann fróðlega kúkasögu um það hvernig hann skeit á sig eitt skiptið á tónleikum þar sem hann var veikur. síðan spilaði hann ýmis lög með mikilli snilld og í lagin 2 birds notaði hann skjávarpa til að varpa mynd af konunni sinni á gítarinn sinn þar sem hún gat ekki sungið með honum, það var nokkuð flott.

einnig í einu laginu tók hann upp hljóð frá áhorfendum og notaði þau í laginu see y sem að ég var mikið búinn að vona að hann myndi taka en það er af disknum lonely mountain.
svo voru ýmsar skemmtilegar uppákomur og voru þetta mjög skemmtilegir tónleikar, get mælt með því við alla að kíkja á tónleika með mugison.

svo ég víki nú að öðru máli að þá datt ég aftur inn á leik sem ég hafði spilað mikið á fyrsta ári í ma. er þetta auðvitað leikurinn striker of the month sem finna mér á slóðinni http://www.playforyourclub.com/play20.php og hvet ég alla til að prófa þennan leik þar sem þetta er eðal leikur.


skrifað af criticts 23:31 criticts

miðvikudagur, maí 18, 2005
gargandi snilld

það vildi svo skemmtilega til að hún heiða mín splæsti á mig tveimur frímiðum á hvaða mynd sem er í borgarbíó fyrir 17.maí. vildi svo til að hún gat ekki komist með í bíó þannig að ég og ragnar hólm ragnarsson lögðum undir okkur betri fótinn og fórum á myndina gargandi snilld.

mynd þessi fjallar um íslenska tónlnist fyrr og nú og má með sanni segja að þeir sem að þessari mynd stóðu stóðu sig feikilega vel. myndin gargandi snilld kemur inn á allt gott sem verið er að gera í íslenskri tónlist í dag ásamt myndum af íslensku landslagi þar sem framsetning þess er stórkostleg. það frábæra var að mér líkaði vel við nánast allar hljómsveitirnar sem í myndinni voru, má kannski segja að ég sé ekki beint að digga ghostdigital en það var fróðlegt að sjá hana. í myndinni komu fram listamenn á borð við björk, sigur rós, steindór andersen, bang gang, mugison, mínus, slow blow, múm, quarashi, trabant, apparat organquartet, nilfisk og margir aðrir. mikið var sýnt með björk ásamt viðtölum við hana sem að er kannski skiljanlegt þar sem hún er vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn. einnig sannaði barði í bang gang endanlega að hann er ofur svalur náungi þar sem hann sagði í viðtali að íslenskir tónlistarmenn væru ekkert lélegir en íslensk tónlist væri ömurleg. rök hans fyrir því voru að það væri svo lítið fjármagn til eyðslu í íslenska tónlist og að það þyrfti að gera hana í svo miklum æsingi sem er að miklu leiti rétt.



þetta var ótrúleg upplifun að fylgjast með tónlistarfólkinu og fá að sjá tónlistina frá þeirra sjónarhóli. mæli ég eindregið með því að allir sem hafa unun á tónlist að fara og kíkja á þessa mynd, hver veit nema þeir gætu heyrt og séð eitthvað nýtt sem þeim gæti líkað. er viturlegt að fara á myndina í bíó þar sem maður fær þá tónlistina beint í æð úr hátalarakerfi bíósalsins en einnig er það þó vel þess virði að leigja hana á video þegar hún kemur og ætla ég það að gera.

ég gef þessari mynd hiklaust 10 af tíu mögulegum og er þetta að ég tel það fyrsta sem fær topp einkunn á criticts.tk ,eftir að ný einkunnagjöf var tekin upp, enda á hún það svo sannarlega skilið.

gargandi snilld: **********


skrifað af criticts 00:38 criticts

mánudagur, maí 16, 2005
piano man

í bretlandi er nú einn maður umtalaður þar sem saga hans er mjög undarleg. þessi maður fannst í kent á bretlandi, hundblautur og illa haldinn. var hann klæddur fötum sem búið var að rífa alla miða af, svo ekki veit maður hvort fötin eru frá dressman eða joe´s. ekki að það skipti öllu máli heldur telst það óskup undarlegt að búið sé að rífa alla miðana af.

maður þessi hefur ekki mælt eitt orð frá því að hann fannst 7. april, en þegar honum var rétt blað og blýantur í von um að hann myndi skrifa nafn sitt teiknaði hann í stað mjög nákvæma mynd af flygli, hér fyrir neðan. fór starfsfólk sjúkrahússins sem hann dvelur á með hann í kapellu sjúkrahússins þar sem var píanó. hresstist maðurinn allur við þegar hann sá píanóið, settist við það og byrjaði að spila af mikilli list og er hann sagður með hæfileika á heimsmælikvarða.



það ótrúlega er að enginn veit hver maðurinn er og hefur ekkert gengið við að finna út hvað hann heitir, hvaðan hann kemur eða hvað gerðist fyrir hann.



maðurinn hefur því fengið nafnið piano man eða píanó maðurinn. verð ég að segja að þetta er ekki ólíkt því sem gerst hefur í ýmsum bíómyndum og þáttum, ætli við séum hér að horfa uppá einhvern sem er ekki frá jörðinni? það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls og getið þið treyst á það að þetta verði allt hér á criticts.tk


skrifað af criticts 19:44 criticts

fimmtudagur, maí 12, 2005
trey parker

maður sem mikið hrós á skilið er maður að nafni trey parker. hann hefur gert svo margt til að gera heiminn að betri stað og þá sérstaklega gert líf mtt minna leiðigjarnt. trey parker ásamt félaga sínum matt stone eru mennirnir sem hafa fært okkur níu seríur af south park en ásamt south park gerðu þeir félagar myndina baseketball sem er hreint út sagt tær snilld og er ég sennilega nálægt því að hafa séð hana 10-15 sinnum. einnig hefur trey parker leikið í myndinni orgazmo sem var jú góð á sinn hátt.



það kom mér í hug að rita þennan pistil þar sem ég var að horfa á nýjustu mynd þeirra félaga, team america. er sú mynd er þannig að hún er leikin af brúðum sem að tekst bara svona ótrúlega vel upp. myndin fjallar um hóp fólks, team america, sem berst gegn hryðjuverkamönnum. myndin er basic þar sem gert er grín af frægu fólki og skila þeir south park húmornum vel í gegnum þessa "brúðumynd". fær hún tvímannalaust 8 af tíu í einkunn og mæli ég með því að allir sem ekki hafa séð hana fari út á leigu þar sem hún var að lenda þar og taki hana fyrir eitt kvöldið.





fannst ég þurfa að skrifa þessa kvikmyndagagnrýni ef svo má kalla það þar sem ég hef ekki gert það í langan tíma


skrifað af criticts 19:16 criticts

mánudagur, maí 09, 2005
dagblöð

þar sem ég og raggi eigum það oft til að kíkja upp í hrísarlund í matarhléum, fá okkur að borða og lesa dagblöð að þá fór ég að spá í hvaða blað það nú væri sem að fólk hefði mest gaman að lesa. ég held að ég verði að segja að ég reyni oftast að lesa dv, það stafar sennilega af því að ég les það svo sjaldan og útaf því að það er svo mikið af rugli í þessu blaði sem gaman er að lesa. trúverðuleiki blaðsins er kannski svona 5% en skemmtanagildi er mun hærra. svo ég kýs dv fyrir skemmtun, moggann fyrir fréttir og fréttablaðið þegar ég þarf að lesa eitthvað í skyndi. en hvað segið þið, hvaða blað er að ykkar mati besta lesningin?


skrifað af criticts 23:00 criticts

laugardagur, maí 07, 2005
bekkjarparty + tær snilld

hvað gerir maður á miðvikudögum annað en að keyra góðar 25 mínútur inn í eyjafjörð með 18 manns, risavaxið hljóðkerfi, grillmat og margt annað og stefnan tekin á að eyða tíma í 80 fermetra sumarbústað við tjörn.

þessi litli inngangur var leiðari að frásögn minni frá bekkjarpartyi annars x síðasta miðvikudag. keyrt var inn í eyjafjörð þar sem búið var að leigja þennan heljarinnar sumarbústað. fyrstu menn til að mæta á staðinn voru ég, raggi, jómbi, danni, óli, siggi, sæþór, aron og örvar sem ákvað að verða aftur x-ari í einn sólarhring. eitthvað um 8- hálf níu leytið komum við á staðinn og fórum að setja hluti á sinn stað. eftir það fór fólk að streyma í bústaðinn og fjörið fór að hefjast. voru grillaðir hamborgarar þar sem ottó fór hamförum á grillinu og gerði þessa dýrindist hamborgara. fær ottó án nokkurs vafa 10 af tíu í einkunn fyrir þessa frábæru hamborgara.

farið var útí bát og haldið útá vatn ásamt ýmsum öðrum uppákomum. ég nenni eiginlega ekki að skrifa mikið meira um þetta en þetta var alot of fun og dæmi um það var að örvar, sem að hafði yfirgefið bekkinn, skemmti sér svo vel að hann sagði:"i feel like home" var það sennilega tengt því að hann var kominn aftur í sinn rétta bekk, allavega eru það getgáturnar.

myndir úr þessari ferð má finna á www.fmkruid.tk .. slæmar myndir, mæli eindregið gegn því að fólk skoði þær þar sem þær geta alvarlega skaðað augu viðkvæmra sála.

en einnig er ég kominn með nýtt sjónvarp sem er tær snilld og er það nú tengdt við tölvuna svo ég get horft á allt sem þarf að horfa á úr tölvunni í sjónvarpinu.. og er það mjög töff


skrifað af criticts 16:06 criticts

sunnudagur, maí 01, 2005
eidur gudjohnsen meistari

eidur smari gudjohnsen varð á dögunum ítalskur meistari með liði sínu bayern leverkusen í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. er þetta í fyrsta sinn sem íslendingur vinnur þetta afrek.

eidur á ekki langt að sækja hæfileikana, því faðir hans, ásgeir sigurvinsson, varð á sínum tíma frakklandsmeistari með liði sínu ac milan.

eidur, sem þegar hefur unnið skoska deildarbikarinn á tímabilinu, á enn möguleika á fleiri titlum því lið hans keppir við hollensku meistarana í real madrid næstkomandi þriðjudag um sæti í úrslitum meistaradeildar asíu, þar sem keppt er um ameríkubikarinn svokallaða.

er þetta stórkostlegur árangur og ég óska eiði innilega til hamingju með þetta allt saman


eidur sést hér fagna eftir að hafa
skorað þriðja mark sitt í leiknum
gegn hartlepool fyrir nokkrum dögum


skrifað af criticts 20:52 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3