dísa, dóttir jakobs frímanns magnússonar og ragnhildar gísladóttur hefur greinilega erft sönghæfileika foreldra sinna því það sem ég hef heyrt með henni er stórgott. hún hefur innblástur frá gæða hljómsveitum, saman ber boards of canada, radiohead, bang bang, zero 7, amon tobin og blonde readhead svo eitthvað sé nefnt (tekið af mæspeisinu hennar undir uppáhalds tónlistarmenn) og það virðist skila sér í tónlist hennar þó hún sé nú ekki beint lík þessum hljómsveitum.hún er góð söngkona og semur góð lög, allt sem er á myspace síðunni hennar er gaman að hlusta á og ég verð að fara að verða mér út um plötuna hennar sem kom út síðasta föstudag eftir því sem ég kemst næst.
http://www.myspace.com/disamusic mæli með anniversary og missing part
skrifað af criticts 00:01 criticts