til er aragrúi af góðum íslenskum hljómsveitum sem eru hættar en það eru tvær hljómsveitir sem að mér finnst að ættu að taka sig saman og koma með comeback tónleika árið 2008. jafnvel á iceland airwaves.önnur hljómsveitin er botnleðja sem er með betri rokkhljómsveitum sem sungið hafa á íslensku, unnu músíktilraunir 1995, hafa gefið út 5 breiðskífur og unnið til margra verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum t.d. besta lag ársins, besta plata ársins og besta hljómsveit ársins.
hressir og sprækir, leyfðu blur að nota "whoo-hoo" úr laginu þið eruð frábær í stórsmellinum song2 og fóru svo með þeim í tónleikaferðalag til bretlands. væri gaman að sjá þá koma saman og taka eitt stykki tónleika.
http://myspace.com/botnledja
hin hljómsveitin er quarashi, og þá er ég að tala um upprunalegu myndina, með hjössa og án tiny. hljómsveitin sem meikaði það næstum í bandaríkjunum og er meira að segja með lag í myndinni 2 fast 2 furious og í þáttunum alias og smallville.gríðarlega frægir á íslandi og allar þeirra plötur (sem hafa alltaf bara verið gefnar út í 6000 eintökum) hafa selst upp og þar með farið í gull. ég fór einmitt á síðustu tónleika qurashi áður en þeir hættu sem voru haldnir í ka heimilinu af öllum stöðum. mjög góðir tónleikar en ég væri til í að sjá þá spila með hössa þar sem ég held að það sé mun betra.
http://www.myspace.com/quarashimusic
þannig að nú ættu forráðamenn airwaves að demba sér í það að tékka hvort þessar tvær hljómsveitir séu ekki meira en spenntar fyrir að taka eins og eina comeback tónleika á árinu.
skrifað af criticts 18:18 criticts