það er alltaf gaman að fara á tónlistarhátíð, það sem er hins vegar gríðarlega súrt er þegar maður kemst að því að hljómsveit sem manni finnst skemmtileg en þekkti ekki á þeim tíma var að spila á hátíðinni. dæmi um þetta eru pendulum á hróaskeldu 2006, justice á hróaskeldu 2007 og svo það nýjasta: ungdomskulen á iceland airwaves 2007. held meira að segja að þeir hafi líka verið á annari hróaskeldunni.hver hefði haldið að einhverjir 3 gaurar frá noregi væru eitthvað skemmtilegir og þess virði að eyða dýrmætum tónlistarhátíðartíma í? allavegana eiga þeir eitt gott lag, modern drummer, og ég ætla að setja myndbandið við það hérna. roosalega steikt myndband þannig að fólk getur eiginlega bara startað myndbandinu, sett svo gluggann niður og hlustað bara á lagið.
skrifað af criticts 23:36 criticts