ég gerðist nú svo grófur að kaupa mér geisladisk, sem ég hef ekki gert í langan tíma. var það fyrsti diskur benny crespo's gang sem var að koma út. bjóst ég við miklu af honum þar sem ég hafði mikið hlustað á þrjú lög á myspace-inu þeirra og dýrkaði.diskurinn stenst allar væntingar og gott betur en það, eins og með flesta diska verður hann betri við hverja hlustun og gæti ég trúað að ég verði búinn að læra alla textana við lögin þeirra fyrir næstu tónleika, ef ekki þá er ég með þá alla í bæklingnum sem fylgdi með. les þá bara þar.
ég segi allavegana að allir ættu að prófa að hlusta á þetta og eigandi græna ætti að fá þau að spila.
http://myspace.com/bennycresposgang
skrifað af criticts 23:16 criticts