nú er um mánuður í iceland airwaves og ekki seinna en vænna að að rannsaka það sem er í boði. ég man eftir að hafa farið á tónleika með jan mayen í sjallanum fyrir einhverjum árum, nýverið eftir að þeir gáfu út fyrsta disk sinn. nú hafa þeir gefið út annan disk og hafa verið þó nokkuð í spilun í útvarpinu, einkum lagið joy ride.ég held að ásamt mörgum öðrum séu jan mayen hljómsveit sem vert er að skoða á airwaves þar sem þeir eru ferskir og nýja efnið þeirra hljómar gríðarlega vel.
http://www.myspace.com/janmayen (skoða joyride og bez)
meira er svo í fréttum af britney spears því hún kom nú fyrst fram í langan tíma og var það á mtv music awards. hún á samt að hafa staðið sig agalega og að hún hafi ekki einu sinni sungið sjálf heldur hafi rödd hennar verið spiluð af segulbandi. hún á að hafa dansað illa og alls ekki verið í sínu besta formi, meira að segja á hún að hafa grátið baksviðs eftir atriðið. comeback-ið eitthvað að fara úr böndunum hjá stelpunni
skrifað af criticts 21:00 criticts