áfram með airwaves en þar er pétur ben að spila. ég var að koma af tónleikum með honum sem voru líklega þeir persónulegustu sem ég hef farið á ef þannig má að orði komast. tónleikarnir voru á hrafnagili í litlu samkomuhúsi þar sem 70-80 manns sátu og hlustuðu á hann syngja lög sín, cover lög, þjóðlög og kvæði í um einn og hálfann tíma.það sem var skemmtilegra við þessa tónleika en aðra sem ég hef farið á með pétri ben var að þarna spilaði hann á til skiptis á kassagítar og flýgil, ásamt því að nota ýmsa hljóðgervla og tölvuapparat sem hann var að fá sér og prófa í fyrsta skipti.
hann náði vel til áhorfenda sem voru fengnir til að syngja með í ýmsum lögum ásamt því þar sem hann sjálfur brá sér út í sal, stóð á stól og spilaði og söng. virkilega góðir tónleikar og ef fólk hefur ekki séð pétur ben live þá er algjörlega málið að fara á hann á airwaves.
http://myspace.com/peturben
ekkert nýtt að frétta af britney...
skrifað af criticts 23:26 criticts