nú er ég ekki mikill aðdáandi útvarpsstöðva eins og fm957 og xid977 þar sem aðal málið er að spila vinsælasta lagið sem oftast á dag. ég verð þó að segja að xid er búið að vera óvenju ágætt miðað við mörg önnur sumur. eitt af þessum lögum sem eru búin að vera í spilun í sumar er svo töff að það mætti binda mig fastan við stól og teypa headphone á hausinn á mér, spila þetta lag á reapet í nokkra daga og ég get lofað ykkur að ég fengi ekki leið á því..lagið er well thought out twinkles með hljómsveitinni silversun pickups og má finna það myspace síðunni þeirra
ég veit ekki alveg hvað það er sem mér þykir svona gott við þetta lag, það er bara eitthvað við það sem fær mig til að vilja hlusta á það aftur og aftur
http://www.myspace.com/silversunpickups
skrifað af criticts 14:28 criticts