nú bíð ég bara eftir því að sjá modest mouse á listanum yfir hljómsveitir sem ætla að láta sjá sig á hróaskeldu. ég veit ekki hvað þeir ættu að hafa betra að gera en að koma á hróa og kynna nýja diskinn sinnwe were dead before the ship ever sank.
þetta er hress diskur í anda modest mouse þannig að þeir sem hafa hlustað á hljómsveitina áður og líkar við hana ættu svo sannarlega ekki að láta þennan disk framhjá sér fara. ekki skemmir fyrir að gítarhetjan johnny marr fyrverandi gítarleikari goðsagnarkenndu hljómsveitarinnar the smiths spilar með þeim í flest öllum lögunum. söngvarinn í the shins syngur einnig bakraddir í einum þremur lögum eða svo.
svo það er bara að biðja og vona að þeir láti sjá sig á roskilde festival því verði af því þá verður svo sannarlega dansað og tjúttað!
Efnisorð: þorvaldur
skrifað af criticts 17:00 criticts