indie rokk hljómsveitin blonde redhead hefur alltaf staðið fyrir sínu með ítölsku tvíburana simone og amedeo pace og hina japönsku kazu makino innanborðs. það var því spennandi þegar diskurinn þeirra 23 kom á netið núna fyrir stuttu. ég gerðist ólöglegur og niðurhalaði disknum og hlustaði á hann og það má með sanni segja að ég hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum. diskurinn er fjörugri en síðasti diskur þeirra en í senn drungalegur og þungur sem myndar skemmtilegan þeyting.þetta er diskur sem gæti sterklega lagt kvíurnar í að planta sér á topp lista criticts fyrir árið 2007 því hann er ákaflega áhlustanlegur og virðist ætla að hafa góða endingu. ég hvet því alla til að verða sér út um þennan disk, hvort sem þeir gerist ólöglegir eða bíði eftir að diskurinn komi í búðir hérlendis.
lög sem vert er að hlusta á:
23
sw
spring and by summer fall
heroine
top ranking
Efnisorð: þorvaldur
skrifað af criticts 01:40 criticts