sérlega góðir tónleikar sem fóru fram í kvos menntaskólans á akureyri í gærkvöldi þar sem saman komu fræ og lay low. hún lovísa/lay low byrjaði þetta þar sem hún kom fram ein með kassagítarinn sinn. hún sigldi í gegnum prógrammið sitt með einföldu gítarspili og frábærum söng sem skilaði sér vel, hún hélt rólegri og þægilegri stemmning allan tímann. fyrir minn smekk er lay low mun betri læv en af geisladisk.svo tóku fræ við, skipuð palla og danna úr maus, óþekktum bassaleikara, mr. silla og heimi úr skyttunum. þau voru með heldur meiri party stemmingu þar sem rappað og sungið var við popptónlist af miklu kappi. mér fannst silla standa sig frábærlega, ásamt allri hljómsveitinni, en hún stal senunni með skemmtilegri sviðsframkomu og frábærum söng. ég veit ekki hvað það er en mér finnst eins og palli sé að reyna að halda í æskuna því hann er þarna að umgangast mun yngri krakka og hann klæðir sig svipað og þau, fannst hann passa frekar kjánalega inn þarna. en hann kemur með gott gítarspil sem er það sem skiptir máli, ekki aldurinn.
topp tónnleikar sem voru gott framtak
skrifað af criticts 12:51 criticts