það sem mér fannst alveg vonlaust tónlistarlega séð árið 2006 er nýja plata bloc party. það er oft erfitt að fylgja eftir góðri fyrstu plötu en þessi seinni plata þeirra var alveg glötuð, ekki í námunda jafn góð og þeirra fyrsta. ég ætla rétt svo að vona að þriðja plata þeirra verði áhlustanlegri.
það sem kom hvað mest á óvart árið 2006 voru hljómsveitirnar deftones og pendulum. ég bjóst ekki við að þetta væri eitthvað sem myndi heilla mig en annað kom á daginn. ég hef ekki verið mikill deftones fan en nýjasta platan þeirra er bara fremur góð og kom skemmtilega á óvart. pendulum var eitthvað alveg nýtt fyrir mér en þetta kom mjög skemmtilega á óvart og var nóg hlustað á diskinn þeirra hold your colour árið 2006.
meira ætla ég nú ekki að skrifa núna en bráðlega kem ég með topp 5 lista yfir bæði mest hlustuðustu lögin og bestu diskana árið 2006
skrifað af criticts 15:26 criticts