haldiði að ellismellirnir í hljómsveitinni rock star supernova séu ekki bara búnir að gefa út sína fyrstu plötu sem ásamt lucas sem sigraði samnefnda keppni. ég get ekki gert sjálfum mér að hlusta á þetta en ég er engu að síður nokkuð viss um að þetta eigi eftir að vera vinsælt meðal einhverra ameríku redneck rokkara. þegar keppnin var í gangi voru rockstar menn með yfirlýsingar um að þeir væru að framkalla eitthvað nýtt og ferskt en ég held að það sanni sig á þessari plötu að þetta eru útbrunnir endar sem ætti bara að segja þetta gott og lifa á þeim miljónum dollara sem þeir eiga eftir.eini maðurinn sem ég ber vott af virðingu fyrir í þessari hljómsveit er jason newstead því hann er þó með eitthvað tónlistarvit, enda á hann að hafa "slasað" sig og getur ekki spilað með þeim á tónleikum. fréttir herma að þetta slys hafi aðeins verið til að covera það að jason vildi út eða að þeir gilby og tommy lee hefðu viljað hann út því hann passaði ekki í hljómsveitina. hvort sem það var held að ég að það hafi verið fínt fyrir hann að losna undan þessari rock star pínu
hvaða hljómsveit ætli púlli svona þátt næst.. rock star queen? rock star joy division? rock star nirvana? möguleikarnir eru óendalegir
http://www.myspace.com/supernova
skrifað af criticts 14:37 criticts