dönsk tónlist getur víst verið góð og það hefur sannað sig núna árið 2006 en ég held að ég hafi aldrei heillast jafn mikið af hljómsveitum frá danaveldinu en einmitt á þessu ári. ein af þessum hljómsveitum er who made who sem skipuð er af þessum þremur stæðilegu karlmönnum í beinagrindabúningunum.þeir spiluðu á hróaskeldu en af allri flórunni sem finna mátti þar þá sleppti ég því að sjá þá. þeir spiluðu líka á nýafstaðinni airwaves og er ekki spurning um að ég hefði kíkt á þá hefði ég verið fyrir sunnan.
whomadewho - space for rent
skrifað af criticts 16:47 criticts