hljóðbútablandarinn rjd2 er alltaf með nóg af járnum í eldinum og nú árið 2006 gaf hann út diskinn magnificent city með rapparanum aceyalone. ekki nóg með það heldur stuttu seinna gaf hann út magnificent city instrumental sem allir dyggir rjd2 aðdáendur gætu verið sáttir með.ég er viss um að hægt væri að láta hann fá hvaða hljóðbúta sem er, hann gæti skellt þeim öllum í einn pott og soðið saman úrvals efni. ég ætla ekki að kafa djúpt í þessar 2006 plötur hans heldur frekar smella inn lögum af disknum since we last spoke, lögum sem ég hef hlustað mikið á þessa vikuna.
rjd2 - ring finger
rjd2 - making days longer
http://www.myspace.com/rjd2
annar maður sem iðinn er við að henda út efni á stuttum tíma er beck en eftir að hafa gefið út guero og remix diskinn guerolito árið 2005 sendir hann nú frá sér diskinn the information. diskurinn er ótrúlega beck-legur ef svo má að orði komast. djúpur, dimmur pælingar diskur sem grefst mikillar hlustunar til að ná hámarki en þegar þangað er náð mun hann vera tíður gestur í græjum hlustanda.nú er bara spurning hvort beck láti sér nægja að gefa einn disk út árið 2006 en árið 1994 gerðist hann svo grófur að smella þremur stykkjum á markað
á myspace síðu hans má heyra nokkur lög af the information
http://myspace.com/beck
skrifað af criticts 18:32 criticts