nú er ég með net og net þýðir nýjar færslur.það fyrsta sem ég ætla að taka fyrir eftir netleysið er íslenska hljómsveitin telepathetics sem nýverið voru að gefa út diskinn ambulance. diskur þessi var allur tekinn upp og masteraður í hljóðveri sigurrósar svo allar útsetningar eru fyrirbragðs góðar.
ég frétti fyrst af þessari hljómsveit í þættinum poppland á rás 2 og fyrir tilstilli skemmtilegrar framkomu meðlima sem voru í spjalli og afburða laga sem spiluð voru ákvað ég að verða mér út um diskinn og leggja á hlustir. ambulance er rokk plata út í gegn, ég geri mér það fullkomlega ljóst að ég á mjög líklega aldrei eftir að vera að tjútta við tónlist telepathetics á dansgólfum bæjarins og er það í fínasta lagi. músík þessi er fín til áhlustunar í heimahúsum, bíl eða öðrum stöðum sem fólk gæti verið spennt fyrir að hlusta á afar muse-lega (á köflum), íslenska rokk tónlist.
það má vera að þessi diskur hafi verið gefinn út um sumartíma en hún hefur svo sannarlega haust-/vetrarblæ yfir sér, þung og innlæg. ég mæli með að þið tékkið á lögunum þeirra á myspace. http://myspace.com/telepathetics
skrifað af criticts 22:03 criticts