breskt er alltaf best, það hefur verið sannað ótal sinnum. bresk tónlist er best, breskar myndir eru bestar, breskur húmor er bestur, breskur fótbolti er bestur og svo framvegis. 28. ágúst, eftir viku, kemur út nýja plata bresku hljómsveitarinnar kasabian en þar sem ég er góðvinur hljómsveitarinnar að þá sendu þeir mér eintak af disknum svo ég gæti skrifað um gripinn. diskurinn heitir empire og er annar diskurinn sem þessi hljómsveit gefur út en árið 2004 gáfu þeir út glæsilega frumraun sína sem bar sama nafn og hljómsveitin. sem dæmi um frægð þeirra að þá er lag þeirra, club foot, í upphafsstefi tölvuleiksins pro evolution soccer 5, svo þið getið rétt ýmindað ykkur hversu stórt nafn þeir eru.empire fjallar mikið um hörmungar sem fylgja stríði og vandræðum þeim tengdum, lagið seek and destroy er greinilegt merki um þessa stefnu sveitarinnar. hægt er að hlusta á diskinn í heild sinni á http://myspace.com/kasabian en það sniðuga við það er að þið getið ekki valið lag heldur verður maður að hlusta á allan diskinn.
áhugaverð lög eru empire og by my side
skrifað af criticts 20:57 criticts