hver kannast ekki við hina fremur slöku hljómsveit keane? menn sem urðu gríðarlega vinsælir fyrir ári eða svo og var ég gjörsamlega kominn með ælu í munninn í hvert skipti sem ég heyrði lag eða sá myndband með þeim.nú voru þeir að gefa út nýjan disk (under the iron sea) og eru lög farin í spilun með þeim, is it any wonder? þ.á.m. alls ekki að gera svakalega hluti fyrir mig, hins vegar margt verra til í heiminum. ég gerðist engu að síður svo grófur og reddaði mér disknum, hlustaði á hann og kom mér mest á óvart hann var bara allt í lagi. sum lög má jafn vel flokka sem góð lög. ég vil ekki segja að ég sé orðinn aðdáandi keane en mér finnst þeir ekki jafn hræðilega óbjóðslegir og áður fyrr. farið á myspace og prófið að hlusta á lagið crystal ball, ef ykkur finnst ekkert varið í það að þá skuluð þið bara láta keane eiga sig.
http://www.myspace.com/keane
ég ætla reyndar ekki að gera ykkur það að tileinka keane heila færslu. ætla að koma að hljómveitinni the whitest boy alive, óeðlilega gott nafn á hljómsveit þó sér í lagi þar sem aðal vítamínsprauta hljómsveitarinnar er norskur, kjánalegur sláni með rautt krullað hár og stór nördaleg gleraugu, og að sjálfsögðu skjanna hvítur. hljómsveit sem byrjaði á að spila elektróníska tónlist en hefur nú fært sig yfir í strengjahlóðfæri, þessi hefðbundnu, og farnir að spila dansvæna indie disco músík. the whitest boy alive munu troða upp á airwaves í ár og væri það ekki amarlegt að skella sér.áhugaverð lög eru burning og inflation
http://www.myspace.com/thewhitestboyalive
skrifað af criticts 22:59 criticts