ég og friðgeir nokkur gerðumst svo kræfir að skella okkur á magnaða tónleika fyrir sunnan á vegum skólablaðs menntaskólans á akureyri. þar stigu á stokk ekki færri en 10 hljómsveitir úr öllum áttum tónlistarflórunnar. við mættum þó ekki fyrr en klukkan tíu og misstum þar af leiðandi af fyrstu böndunum en það kom ekki að sök þar sem við komum ákkúrat í tíma til að sjá þá hljómsveit sem við vorum spenntastir fyrir. við komum okkur þægilega fyrir meðal þeirra 60-70 manns sem þá voru á staðnum og fylgdumst með hljómsveitinni ég stilla sér upp á sviðinu. gleðispil, vel spiluð lög og húmor þeirra olli engum vonbrygðum og var sérdeilis skemmtilegt að fylgjast með þeim ég-liðum leika sitt efni.á eftir þeim kom hver hljómsveitin á fætur annari. jan mayen spiluðu sitt prógramm af mikilli prýði og kyrjuðu hvað nick cave væri mikill haglapungur. því næst kom úlpa með sína sækadelik elektróníku sem fáir virtust meðtaka með góðu móti en ég skemmti mér með eindæmum. þá voru það gleðipoppararnir í jakobínurínu sem hoppuðu og skoppuðu um allt svið með tilheyrandi hljóðum og þá var fólksfjöldinn kominn hátt upp í 400-500 manns þó ég hafi nú ekki talið. öskur og illindi fylgdu hinum leðurklæddu og annars nöktu dr.spock liðum sem virtust ná vel til fólksins með skemmtilegri sviðsframkomu og látalætum. það voru síðan jeff who? menn sem slógu botninn í tónleikanna með vönduðu, diskópoppvænu tónlist sinni.
þetta voru sem sagt hinir glæsilegustu tónleikar, algjörlega 1000 króna virði. hins vegar er framtíð þess enn óráðin hvort meint tónleikagagnrýni muni nokkurtíman birtast í hinu virðulega muninsblaði, aðeins framtíðin getur leitt það í ljós.
úlpa - attempded flight
skrifað af criticts 16:20 criticts