elektróník er öllum holl og new york hljómsveitin ratatat lætur gítarspili mæta elektróník og skapar þar með villtan trans, gott groove og skemmtilega danstónlist. þetta er duo sem samanstendur af gítarleikaranum mike stroud og hins vegar tæknihausnum evan mast.tónlist þeirra svipar til vel þekktu hljómsveitarinnar daft punk og kemur það manni ekki á óvart að finna á allmusic að það er eina hljómsveitin sem þeir telja sig vera undir áhrifum af.
ég segi að við stökkvum úr klassískri party músík næstu helgi yfir í ratatat, smellum þeim í græjurnar og dönsum þar til nóttin hættir að vera ung. að sjálfsögðu meina ég þá fyrir eða eftir ampop, dikta og hermigervils tónleikana
ratatat - seventeen years
næsta mál á dagskrá. upp hefur risið sú umræða að stofna eigin plötubúð sem selur aðeins efni eftir góða tónlistarmenn, í stað þess að vinna í búllu sem selur slæma tónlist. tel ég þetta vera hina bestu hugmynd sem ég hef heyrt lengi og væri gott mál að láta hana verða að veruleika. ég fengi þá með mér vel valið lið innkaupastjóra, einn sem myndi kaupa inn góða hip hop tónlist, einn sem sér um góðu djazz tónlistina, einn sem sér um radiohead plötukaup og annan sem sér um the mars volta, o.s.fr.
einstaklingur sem kæmi inn og spyrði um blink 182, fólk sem ég gef mér leyfi fyrir að segja að sé með lélegan tónlistarsmekk, verður vinsamlegast beðið um að ganga út. það er fátt annað ósanngjarnara en að þyggja peninga þeirra í skiptum fyrir lélega tónlist.
svo getið þið lagt ykkar að mörkum við að fjármagna þessa búð, annað hvort með nóg af lottómiðum eða klinki svo ég geti farið að stunda senjor salsa af miklu kappi í kössum bæjarins
skrifað af criticts 22:46 criticts